Morgunblaðið - 27.05.2020, Page 22
FJÖLNIR
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Hans Viktor
Guðmundsson er ungur að árum,
verður 24 ára í september, en engu
að síður verður hann einn af reynd-
ustu leikmönnum nýliðanna Fjölnis
á Íslandsmótinu í knattspyrnu sem
hefst í næsta mánuði.
Fjölnir féll úr úrvalsdeildinni
haustið 2018 en komst strax upp
aftur eftir að hafa hafnað í öðru
sæti 1. deildarinnar á síðustu leik-
tíð. Síðan þá hafa þrír reyndir leik-
menn horfið á brott. Daninn Ras-
mus Christiansen er kominn aftur í
Val, en hann var að láni hjá Fjölni á
síðustu leiktíð. Fyrirliðinn Berg-
sveinn Ólafsson lagði skóna óvænt á
hilluna fyrir nokkrum vikum og Al-
bert Brynjar Ingason er farinn í
Kórdrengi. Þeir þrír léku allir 21 af
22 leikjum Fjölnis á síðustu leiktíð
og því er ljóst að um mikla blóðtöku
er að ræða. Engan bilbug er þó að
finna á Hans, sem sjálfur verður
fyrirliði liðsins í sumar. Hann segir
ungt og óreynt lið Fjölnis tilbúið að
berjast fyrir lífi sínu í deild þeirra
bestu.
„Það er mjög spennandi að geta
farið að æfa af alvöru aftur, maður
er búinn að bíða lengi eftir því. Það
er ekki jafn skemmtilegt að æfa fót-
bolta með þessum takmörkunum
sem hafa verið,“ sagði Hans í sam-
tali við Morgunblaðið á mánudag-
inn, en hann var þá að undirbúa sig
fyrir fyrstu æfingu liðsins án tak-
markana eins og heilbrigðisráðu-
neytið heimilaði frá og með 25. maí.
„Við náum þremur æfingaleikjum
fyrir mót, sem er mjög gott. Undir-
búningstímabilið er náttúrulega bú-
ið að vera mjög sérstakt en við
fáum að spila eitthvað og tæklum
þetta alveg. Þetta er bara jafn erfitt
fyrir öll liðin.“
Óreyndara lið en það sem féll
Hans segir auðvitað mikinn missi
vera að þeim leikmönnum sem eru
farnir en það breyti engu um mark-
mið Fjölnis. Liðið er ungt og hungr-
að í að sanna sig í efstu deild.
„Fyrst og fremst er ég bara
spenntur fyrir sumrinu. Við erum
komnir upp aftur og viljum vera í
efstu deild. Þetta er mjög ungt lið
sem við höfum og í raun miklu
óreyndara lið en þegar við féllum.
Við vorum með reynda menn fyrir
tveimur árum og ég bjóst aldrei við
falli, mér fannst það eiginlega ekki
koma til greina. Núna er þetta ungt
og efnilegt lið og það er bara spenn-
andi að sjá hvernig þetta gengur
hjá okkur.“
„Það eru ekki margir í þessu liði
sem hafa spilað eitthvað af viti í
efstu deild, bara mjög fáir. En þetta
er þar sem allir vilja vera og við er-
um spenntir. Við viljum sýna það og
sanna að við getum spilað í úrvals-
deildinni.“
Þá segir hann markmið liðsins
nokkuð skýr, að halda sér uppi með
öllum tiltækum ráðum. „Við erum
ekki búnir að setjast niður og koma
einhverjum markmiðum niður á
blað, ætli það verði ekki gert í vik-
unni eða næstu. En auðvitað er að-
alatriðið að halda okkur uppi, með
þetta unga lið. Halda okkur í deild
þeirra bestu.“
Gaman að spila á miðjunni
Þeir Bergsveinn og Rasmus voru
miðvarðapar Fjölnis á síðustu leik-
tíð og var aðeins eitt lið sem fékk á
sig færri mörk í deildinni allt
sumarið, Víkingur Ólafsvík. Hans,
sem að upplagi er miðvörður, lék
því meginþorra leikja sinna á miðj-
unni og stóð sig þar vel, skoraði
fimm mörk í 21 leik. Spurður hvort
hann þurfi nú að snúa aftur í vörn-
ina segist hann einfaldlega ekki
vera viss. Hann er einfaldlega klár í
að spila báðar stöður. „Ég held ég
verði bara til skiptis uppi á miðju
eða niðri í vörn, þótt ekkert sé
ákveðið akkúrat núna. Það gæti far-
ið eftir leikjum, meiðslum og öðru.
Það verður að koma í ljós.“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari
liðsins, viðurkenndi í samtali við
Morgunblaðið fyrr í mánuðinum að
það væri ekki ákjósanlegt að hefja
Íslandsmótið án þess að styrkja
leikmannahópinn. Það er hins vegar
hægara sagt en gert í núverandi
ástandi og alls óvíst að Grafar-
vogsbúum takist að bæta í hópinn.
Hans segir það einfaldlega þjálf-
arans að velja liðið en hann viður-
kennir þó að spennandi sé að spila á
miðjunni í efstu deild. „Mér finnst
mjög gaman að spila á miðjunni og
ég er spenntur að prófa það í Pepsi-
deildinni en að sama skapi er ekkert
mál að fara aftur í miðvörðinn.
Annars velur bara Ási liðið.“
Þar sem allir vilja vera
Hans Viktor fyrirliði Fjölnis þrátt fyrir ungan aldur Getur spilað bæði í vörn
og á miðju Ungt lið sem ætlar að berjast fyrir sæti sínu í deild þeirra bestu
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliði Hans Viktor Guðmundsson er einn reyndasti leikmaður Fjölnis þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára.
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020
27. maí 1978
Þórunn Alfreðsdóttir hlýtur
afreksbikar Sundsambandsins
á sundmóti Ármanns í Laug-
ardal. Bikarinn er veittur
fyrir besta afrekið samkvæmt
stigatöflu. Þórunn tryggði
sér bikarinn með því að
synda 200 metra fjórsund á
2:36,01 mínútu og setti um
leið Íslandsmet.
27. maí 1993
Kvennalandslið Íslands í
körfuknattleik vinnur óvænt-
an sigur á Kýp-
ur, 64:54, á
Smáþjóðaleik-
unum á Möltu
og leikur um
gullverðlaunin á
mótinu. Björg
Hafsteinsdóttir
skorar 20 stig fyrir íslenska
liðið.
27. maí 1997
Ísland sigrar Noreg, 32:28, í
16-liða úrslitum heimsmeist-
aramóts karla
í handknatt-
leik í Kuma-
moto í Japan
og tryggir sér
með því leik
gegn Ungverj-
um í
8-liða úrslitunum. Geir
Sveinsson og Róbert Julian
Duranona skora 7 mörk hvor
fyrir
íslenska liðið sem þar með
hefur unnið fimm leiki og
gert eitt jafntefli á mótinu.
27. maí 2009
Eiður Smári Guðjohnsen
fagnar Evrópumeistaratitl-
inum í knattspyrnu, fyrstur
Íslendinga, þegar Barcelona
sigrar Manchester United,
2:0, í úrslitaleik Meistara-
deildar Evrópu í Róm. Eiður
spilar fjóra leiki í Meistara-
deildinni en er varamaður í
sjálfum úrslitaleiknum.
27. maí 2017
Sara Björk Gunnarsdóttir
verður þýskur bikarmeistari
fyrst íslenskra kvenna í
knattspyrnu. Lið hennar
Wolfsburg vinnur Sand 2:1 í
úrslitaleik í Köln. Sara fékk
að sjá rauða spjaldið í upp-
bótartíma en það kom ekki
að sök. Sara vinnur tvöfalt á
sínu fyrsta tímabili í Þýska-
landi því Wolfsburg verður
einnig þýskur meistari.
Á ÞESSUM DEGI
Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Vict-
or Pálsson lék allan leikinn á mið-
svæðinu hjá Darmstadt þegar liðið
vann útisigur gegn Aue í þýsku B-
deildinni í gær. Leiknum lauk með
3:1-sigri Darmstadt en liðið fer með
sigrinum upp í fimmta sæti deild-
arinnar og er nú með 42 stig eftir 28
leiki. Darmstadt er með þremur
stigum minna en Stuttgart, sem er í
þriðja sæti deildarinnar og umspils-
sæti um sæti í efstu deild, en Stutt-
gart á leik til góða á Darmstadt. Þá
er Hamburger í öðru sæti deild-
arinnar með 46 stig eftir 27 leiki.
Darmstadt færist
nær umspilssæti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigur Guðlaugur Victor Pálsson og
félagar eru í harðri toppbaráttu.
KSÍ, Knattspyrnusamband Ís-
lands, hefur gert sex ára samn-
ing við íþróttavöruframleiðand-
ann Puma. Þetta tilkynnti
sambandið á heimasíðu sinni í
gær. Samningurinn gildir til
næstu sex ára en íslensku lands-
liðin hafa leikið í búningum frá
íþróttavöruframleiðandanum Er-
rea undanfarin nítján ár eða frá
árinu 2001. Þá tilkynnti KSÍ
einnig að nýtt landsliðsmerki
yrði kynnt í lok júní en nýi lands-
liðsbúningurinn verður formlega
kynntur um miðjan júlí.
Landsliðin í nýja
búninga í sumar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
19 Knattspyrnulandsliðin hafa
klæðst Errea-búningum frá 2001.
Þýskaland
Dortmund – Bayern München ................ 0:1
Bayer Leverkusen – Wolfsburg ............. 1:4
Eintracht Frankfurt – Freiburg............. 3:3
Werder Bremen – Mönchengladbach .... 0:0
Staðan:
Bayern M. 28 20 4 4 81:28 64
Dortmund 28 17 6 5 74:34 57
RB Leipzig 27 15 9 3 68:27 54
Mönchengladb. 28 16 5 7 53:34 53
Leverkusen 28 16 5 7 53:36 53
Wolfsburg 28 11 9 8 40:34 42
Freiburg 28 10 8 10 38:40 38
Schalke 27 9 10 8 33:43 37
Hoffenheim 27 10 6 11 36:47 36
Köln 27 10 4 13 43:49 34
Hertha Berlín 27 9 7 11 39:48 34
Augsburg 27 8 6 13 40:54 30
Union Berlin 27 9 3 15 32:47 30
E.Frankfurt 27 8 5 14 44:52 29
Mainz 27 8 3 16 36:60 27
Düsseldorf 27 5 9 13 29:52 24
Werder Bremen 27 5 7 15 29:59 22
Paderborn 27 4 6 17 31:55 18
B-deild:
Wehen Wiesbaden – Sandhausen .......... 0:1
Rúrik Gíslason var ekki í leikmannahópi
Sandhausen.
Aue – Darmstadt...................................... 1:3
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Þýskalandsmeistarar Bayern
München eru komnir með aðra hönd
á meistaratitilinn þar í landi eftir
1:0-sigur gegn Borussia Dortmund í
toppslag þýsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu á Signal Iduna Park í
Dortmund í gær. Það var Joshua
Kimmich, miðjumaður Bayern
München, sem skoraði sigurmark
leiksins á 43. mínútu. Kimmich fékk
þá boltann rétt utan teigs og ákvað
að vippa honum yfir Roman Bürki í
marki Dortmund. Bayern München,
sem hefur unnið þýsku 1. deildina
undanfarin sjö ár, er nú með 64 stig
á toppi deildarinnar. Dortmund er í
öðru sætinu með 57 stig eftir 28
leiknar umferðir. Bayern er því með
sjö stiga forskot þegar sex umferðir
eru eftir af tímabilinu og það er erf-
itt að sjá meistarana misstíga sig á
lokakaflanum. bjarnih@mbl.is
Meistararnir nálgast
áttunda titilinn í röð
AFP
Fagn Joshua Kimmich og fyrirliðinn Manuel Neuer gleðjast í leikslok.