Morgunblaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
YAXELL
GÆÐAHNÍFAR
FYRIR GRILLSUMARIÐ
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég mun flytja lög sem allir þekkja,“ segir Páll
Óskar Hjálmtýsson, sem kemur fram með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands í Eldborg Hörpu ann-
að kvöld, fimmtudag, kl. 20 undir stjórn
Bjarna Frímans Bjarnasonar. Tónleikarnir
eru um klukkustundarlangir án hlés og verða í
beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV, í beinu
streymi á vef hljómsveitarinnar á sinfonia.is og
útvarpað á Rás 1. „Venjulega þegar ég syng
þetta eru áhorfendur að syngja með og þeir
eru helmingurinn af sjóinu,“ segir Páll Óskar,
en þegar blaðamaður ræddi við hann eftir
fyrstu æfingu með hljómsveitinni á mánudag
var enn óljóst hversu margir áhorfendur
fengju að vera í salnum. Síðar sama dag kom í
ljós að selt yrði inn á tónleikana og um 400
miðar væru í boði, en miða má nálgast á tix.is
og sinfonia.is. Samkvæmt upplýsingum frá
hljómsveitinni verður sætaframboðið tak-
markað, þar sem salnum í Eldborg er skipt
upp í nokkur fjöldatakmörkuð svæði í sam-
ræmi við sóttvarnarlög og til að tryggja öryggi
tónleikagesta. Þannig verður eitt sæti á milli
allra pantana en hægt er að kaupa einn stakan
miða eða tvo hlið við hlið. Jafnframt er boðið
upp á sæti sem tryggja tveggja metra regluna.
Farsælast að byrja rólega
„Ég mun spila eins vel út úr þessum að-
stæðum og hægt er. Aðalmálið er að við verð-
um að fara að koma landinu í gang og fara að
lifa lífinu að nýju. Auðvitað mun það gerast
frekar hægt og bítandi og í skrefum. Ef eitt
skrefið er að troða upp fyrir 400 manns í Eld-
borg Hörpu, sem rúmar að jafnaði um 1.600
gesti í sæti, þá er ég til,“ segir Páll Óskar, sem
kom síðast fram með Sinfóníuhljómsveit
Íslands á tónleikum árin 2010 og 2011 þar sem
færri komust að en vildu.
„Hljómsveitin núna er eilítið minni en 2011,
en við náðum að laga útsetningarnar að því.
Mér heyrðist það hins vegar alls ekki koma að
sök á æfingunni í morgun. Það er svo dásam-
legt að geta talið í aftur,“ segir Páll Óskar og
tekur fram að hann hafi komist við í fyrsta lag-
inu. „Mér leið eins og ég væri aftur kominn
heim eftir að hafa gengið í gegnum hremm-
ingar í fylgd með öðrum – og að maður væri
sloppinn í gegn. Sú tilfinning er ómetanleg.
Það sem er mest krefjandi núna er hvernig við
komum þjóðfélaginu aftur í gang,“ segir Páll
Óskar og tekur fram að hann trúi því að far-
sælast sé að gera hlutina rólega. „Þetta er al-
veg eins og ræktin. Ef þú byrjar með látum
gæti það endað með ósköpum. Farsælast er að
byrja rólega,“ segir Páll Óskar.
Breytt verðmætamat að kófi loknu
Samkomubannið sem ríkt hefur frá miðjum
mars hefur bitnað harkalega á lífsafkomu
sviðslistafólks. Aðspurður segist Páll Óskar
hafa verið ótrúlega lánsamur og haft nóg fyrir
stafni í formi minni viðburða og beins streymis
heiman frá sér. „Ég var svo heppinn að í
miðjum faraldrinum fékk ég að vinna. Ýmis
fyrirtæki vildu gleðja starfsfólk sitt og fengu
mig til að troða upp í beinu streymi á netinu.
Ég kom líka fram í beinni útsendingu á Stöð 2
og K100 auk þess sem ég tók að mér nokkur
lítil verkefni. Ég hef því alveg sloppið fyrir
horn. En ég neita því ekki að verðmætamat
mitt hefur breyst og ég hugsa meira um það í
hvað ég vil eyða peningum mínum. Ég notaði
kófið til að taka til í skápum og geymslunni og
uppgötvaði að ég á miklu meira dót en ég þarf
nokkurn tímann að nota. Ég þurfti því að horf-
ast í augu við hvað ég hef eytt miklum pen-
ingum í hluti sem mig vantar ekki, fyrir pen-
inga sem ég á ekki til að ganga í augun á fólki
sem er drullusama. Ef faraldurinn hefur kennt
mér eitthvað þá er það að fara betur með það
sem ég hef milli handanna og nýta betur það
sem ég er til dæmis með í fataskápunum,“ seg-
ir Páll Óskar og tekur fram að hann hafi komið
sjálfum sér á óvart þegar hann uppgötvaði
hvað hann kemst í raun af með lítið. „Hér ber
reyndar að taka fram að ég er ógiftur, ein-
hleypur og hef aðeins fyrir tveimur köttum að
sjá. Ég er ekki fjögurra barna faðir, þannig að
ég er mér meðvitaður um að aðstæður fólks
eru ólíkar,“ segir Páll Óskar og bætir við að
hann voni samt að verðmætamatið hafi breyst
hjá fleirum en sér og fólk kunni til dæmis bet-
ur að meta samverustundirnar með fjölskyld-
unni. Páll Óskar upplýsir að lokum að kófið
hafi reynst sér vel þegar kemur að listsköpun.
„Úr því ég gat ekki troðið upp fyrir fólk uppi
á sviði breytti ég heimaveru minni í sköpun.
Ég er búinn að gera tvö ný lög sem ég er mjög
ánægður með,“ segir Páll Óskar og bendir á að
fyrra lagið til að fara í spilun nefnist „Djöfull
er það gott“ og „beri nafn með rentu“, eins og
Páll Óskar orðar það. „Myndband lagsins fer í
spilun á samfélagsmiðlum mínum að tón-
leikum loknum kl. 21 og á miðnætti fer það síð-
an inn á Spotify,“ segir Páll Óskar að lokum.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Vinsæll „Ég mun flytja lög sem allir þekkja,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands annað kvöld.
„Dásamlegt að geta talið í aftur“
Páll Óskar kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg Hörpu annað kvöld kl. 20
Myndband við lagið „Djöfull er það gott“, sem varð til í kófinu, frumsýnt kl. 21 sama kvöld
Paradísar missir í þýðingu Jóns
Þorlákssonar, útgáfan frá 1828, og
áritaðar frumútgáfur af verkum
Halldórs Laxness og Jóhannesar
Birkilands eru meðal bóka sem
boðnar eru upp á bókauppboði
sumarsins sem haldið er af Bókinni,
fornbókabúð á Klapparstíg 25-27
og Fold uppboðshúsi. Uppboðið er á
vefnum uppbod.is en bækurnar sem
boðnar eru upp eru sérvaldar af
Ara Gísla Bragasyni og eru til sýnis
í Fold við Rauðarárstíg á af-
greiðslutíma uppboðshússins. Upp-
boðið stendur til 7. júní 2020.
Nokkuð er af bókum Halldórs
Laxness í frumútgáfum, og eru
nokkrar bókanna áritaðar af höf-
undi. Í upplýsingum frá uppboðs-
höldurum segir að hin löngu ófáan-
lega bók Galdraskræða Skugga,
hér útgefin 1982, sé á uppboðinu og
einnig hið kunna verk Jóhannesar
Birkilands, Harmsaga ævi minnar.
Öll bindin eru boðin upp saman og
eru þau sérstaklega árituð af Birki-
landi.
Eitt fágætasta ritið er Paradísar
missir Miltons í þýðingu Jóns frá
Bægisá, en eintakið er í samtíma-
bandi. Einnig verða boðin upp ljóð-
mæli Jóns frá Bægisá, tveggja
binda verk, einnig í samtíma bandi.
Ljóðabækur eru allnokkrar, meðal
annars Hélublóm Erlu, bók Stein-
ars Sigurjónssonar Hér erum við,
Ljóðmæli Páls Ólafssonar og rit
Gests Pálssonar í bundnu og
óbundnu máli, prentuð í Winnipeg.
Þá eru þar áritaðar ljóðbækur eftir
Jón úr Vör og fleiri skáld.
Á uppboðinu eru prentgripir frá
Hólum í Hjaltadal og bækur prent-
aðar á Leirárgörðum. Þá má nefna
merka bók um læknisfræði eftir
brautryðjandann Svein Pálsson.
Hin fallega bók Vilborgar Dag-
bjartsdóttur, Sögur af Alla Nalla,
er á uppboðinu og einnig hin fá-
gæta bók Nínu Tryggvadóttur
Fljúgandi fiskisaga, Dimmalimm
Muggs og Jólablað Morgunblaðsins
frá 1913-1916 er þar í risa-fólíó-
bandi, með mjög fallegu bóka-
merki.
Ýmis merkisrit á bókauppboði sumars-
ins á vegum Bókarinnar og Foldar
Merkisbók Titilsíða Paradísar missis, út-
gáfunnar frá 1828, þýtt af Jóni frá Bægisá.