Morgunblaðið - 27.05.2020, Qupperneq 28
Hljómsveitin Skítamórall heldur tónleika í Eldborgar-
sal Hörpu 26. júní næstkomandi og mun þá fagna 30
ára afmæli sínu sem til stóð að gera 9. maí en þeir
tónleikar voru blásnir af vegna samkomubanns.
Hljómsveitin mun spila öll sín vinsælustu lög í sveita-
ballastíl. Eldborgarsalnum verður skipt í svæði mið-
að við gildandi hámarksfjölda sem líkur eru á að
verði a.m.k. 500 manns þegar þar að kemur og verða
inngangar í salinn aðgreindir fyrir mismunandi hópa
og sömuleiðis salerni og veitingasala. Nokkur skil-
greind svæði verða í boði fyrir þá sem óska eftir að fá
sæti með tveggja metra fjarlægð.
Skítamórall í Eldborg 26. júní
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Reynslubanki Íslands (rbi.is) var
formlega stofnaður sumardaginn
fyrsta síðastliðinn, „á degi vona um
gróanda og betri tíð“, segir Þráinn
Þorvaldsson, en um er að ræða til-
raunaverkefni hans og Guðmundar
G. Haukssonar til stuðnings íslensku
atvinnulífi með áherslu á aðstoð við
fyrirtæki með fáa starfsmenn.
Þráinn segist oft hafa velt fyrir
sér hvernig hægt væri að nýta
reynslu fólks sem hætt væri að vinna
en vildi leggja sitt af mörkum án
skuldbindinga. „Þegar ég byrjaði að
vinna sem viðskipta- og hagfræð-
ingur gerði ég ýmis mistök í ákvarð-
anatöku, sem ég gerði mér grein fyr-
ir seinna meir, þegar ég horfði til
baka,“ segir hann um stofnun
Reynslubankans. „Hugmyndin er að
fólk geti boðið fram þjónustu sína og
forsvarsmenn fyrirtækja geti óskað
eftir því að fá reyndan leiðbeinanda í
heimsókn. Á vissan hátt er stöðugt
verið að finna upp hjólið og þó að
margt gagnlegt sé í kennslubókum
um stjórnun og fleira jafnast ekkert
á við eigin reynslu.“
Fyrir um fimm árum skrifaði Þrá-
inn grein um
þessa hugmynd
sína en hún varð
ekki að veruleika
fyrr en eftir að
hann kynntist
Guðmundi, þar
sem þeir voru í
sjálfboðaliða-
starfi hjá Krabbameinsfélaginu í
vetur. Ásamt fleirum vinna þeir að
uppbyggingu samtaka þeirra sem
hafa greinst með blöðruhálskirtils-
krabbamein.
Hugsjónamenn
Félagarnir eiga það sameiginlegt
að vera miklir hugsjónamenn, að
sögn Þráins, sem kom víða við á
löngum starfsferli. Eftir að hafa lok-
ið mastersprófi í markaðs- og sölu-
málum 1974 vann hann meðal ann-
ars sem framkvæmdastjóri hjá
ullarvöruútflutningsfyrirtækinu
Hildu hf. á sviði sölu- og markaðs-
mála, var fyrsti framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs, sinnti ráðgjafar-
störfum og stofnaði ásamt Sigmundi
Guðbjarnasyni, mági sínum, og fleir-
um SagaMedica. Guðmundur er
frumkvöðla- og viðskiptamarkþjálfi
með menntun og þjálfun á því sviði.
Hann er umboðsmaður fyrir Gordon
Training International og með víð-
tæka starfsreynslu á sviði sölu- og
markaðsmála. Guðmundur hefur
verið virkur í félagsstarfi og var einn
af stofnendum og fyrsti formaður
íþróttafélagsins Fjölnis í Grafarvogi.
Þráinn leggur áherslu á að ekki sé
verið að fara inn á svið ráðgjafa
heldur leiðsögn í trúnaði án endur-
gjalds. Viðbrögðin sýni að mörgum
finnist gott að geta rætt vandamál
við einhvern utanaðkomandi, sem
geti lagt gott til málanna. Kórónu-
veiran hafi skapað mikla erfiðleika
en ný tækifæri verði til. „Þetta er
leiðbeinandi starf án skuldbind-
inga,“ áréttar hann.
Verkefnið er komið í gang, tilvon-
andi leiðbeinendur hafa haft sam-
band, talsmenn fyrirtækja hafa ósk-
að eftir liðsinni og reynsluviðtöl
farið fram. „Framtíðarsýnin er að til
verði öflug bakvarðarsveit reynslu-
mikilla fyrrverandi stjórnenda í
fyrirtækjum,“ segir Þráinn. „Þeir
verði reiðubúnir til þess að setjast
niður í sjálfboðavinnu í leiðbeinandi
hlutverki með stjórnendum lítilla
fyrirtækja sem eru í endur-
skipulagningu eða frumkvöðla-
starfi.“
Ljósmynd/Sif Þráinsdóttir
Á gamalli og traustri brú Guðmundur Hauksson og Þráinn Þorvaldsson tengja bil reynslu á milli kynslóða.
Bakverðir atvinnulífsins
Reynslubanka Íslands ætlað að brúa bil á milli kynslóða
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 148. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Í vikunni var Darri Freyr Atlason ráðinn þjálfari karla-
liðs KR í körfuknattleik en hann er aðeins 25 ára og
verður 26 ára á mánudaginn. Morgunblaðið skoðaði
ýmsa þjálfara í efstu deild karla í gegnum tíðina og
hversu gamlir þeir voru þegar þeir fengu tækifæri sem
þjálfarar í deildinni. Í ljós kemur að nokkrir voru yngri
en Darri og náðu í sumum tilfellum að verða Íslands-
meistarar á fyrsta ári. Njarðvíkingurinn Friðrik Ingi
Rúnarsson er sá yngsti sem ráðinn hefur verið þjálfari í
efstu deild eftir því sem blaðið kemst næst. »22
Friðrik Ingi sá yngsti sem fengið
hefur tækifæri í efstu deild karla
ÍÞRÓTTIR MENNING