Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Side 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.5. 2020 Í MYNDUM Ég mátti til með að kíkja þarna inn, fyrst ég var á ferðinni fyrir norðan,og sem hendi væri veifað var mér kippt marga áratugi aftur í tímann.Þrátt fyrir að vera löngu hætt að þjóna sínum tilgangi hefur þessi verksmiðja ennþá sinn sjarma. Gamli tankurinn er til dæmis ótrúlega skemmtilegt mótíf, bæði að innan og utan. Mynstrið í steypunni er eins og listaverk,“ segir Árni Sæberg ljósmyndari sem tók myndirnar sem hér getur að líta í gömlu síldarverksmiðjunni á Hjalteyri. Árni segir það hafa verið undarlegt að aka Eyjafjörðinn á dögunum; varla hafi verið nokkurn mann að sjá og enga túrista, sem alla jafna fylla fjöll og hreppi á þessum tíma árs. „Ég mætti ein- um manni á hjóli. Þetta var bara eins og þegar maður var strákur í sveit fyrir fimmtíu árum. Nú er um að gera fyrir Íslendinga að nýta tækifærið í sumar og njóta þessarar perlu sem við eigum, sem er landið okkar.“ Löng hefð er fyrir síldarvinnslu á Hjalteyri. Norðmenn hófu síldarsöltun um 1880, Svíar, Þjóðverjar og Skotar bættust í hópinn og upp byggðist sjávarpláss með mörgum þorsk- og síldveiðiskipum. Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út 1914 hurfu útlendingarnir á brott og Thor Jensen athafnamaður, sem tekið hafði Hjalteyri á leigu ári áður, byggði upp síldarvinnslu. Árið 1937 var byggð stór síldarverksmiðja við Hjalteyri, sú stærsta í Evrópu á þeim tíma samkvæmt sumum heimildum. Eftir því sem leið á 20. öldina dró úr umsvifum Thorsaranna og eftir að síldarbresturinn varð á sjöunda áratugnum var síldarverksmiðjunni lokað 1966. Þann 4. maí 1954 varð mikill bruni á Hjalteyri. Eldur varð laus í mjöl- skemmu síldarbræðslunnar, en mjölskemma þessi var á þeim tíma sú næst- stærsta á landinu. Mjölskemman var með mun stærri grunnflöt en verk- smiðjan sjálf og notuð að hluta til sem geymsla undir ýmsa hluti. Meðal þess sem brann var bifreið, dráttarvél, uppmokstursvél og nokkrar síldarnætur ásamt færiböndum fyrir mjölsekki. Í dag tengja mun fleiri Hjalteyri við listir en síldarvinnslu en árið 2008 var myndaður hópur listafólks sem ákvað að koma á fót menningarmiðstöð í gömlu verksmiðjuhúsunum. Í hópnum eru íslenskir og erlendir listamenn. Síðan þessi hópur tók til starfa hafa reglulega verið haldnar myndlistarsýn- ingar og aðrar listsýningar en sýningarstaðurinn er einfaldlega kallaður Verksmiðjan. Kannski verða þessar myndir einhvern tíma sýndar þar! Kippt áratugi aftur í tímann Enda þótt gamla síldarverksmiðjan á Hjalteyri við Eyjafjörð megi muna sinn fífil fegri er hún ekkert verra myndefni í dag en þegar starfsemin stóð þar í blóma á síðustu öld, líkt og Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, komst að raun um á dögunum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ljósmyndir ÁRNI SÆBERG  Vefverslun rún.is 20% afsláttur Fatnaður sem hentar bæði innan og utandyra AF SPORTFATNAÐI FRÁ SOUTH WEST SENDUMFRÍTTUM LAND ALLT runverslun

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.