Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Qupperneq 4
HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2020 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is Fyrir viku var fjallað hér í blaðinuum mál fimmtán ára stúlku áeinhverfurófi sem átt hefur erfitt uppdráttar vegna félagsfælni, þunglyndis og kvíða. Sú umfjöllun sneri einkum að BUGL en hér verður sjónum beint að skólagöngu stúlk- unnar sem leggur stund á nám við Varmárskóla í Mosfellsbæ. Þvert á vilja stúlkunnar sjálfrar og foreldra hennar sneri hún aftur í Varmárskóla síðasta haust en hún hætti þar í sjöunda bekk vegna ein- eltis og vanlíðunar, að sögn móður hennar. Var í skóla í Reykjavík í milli- tíðinni þar sem gekk vel þangað til hún veiktist. Móður stúlkunnar þykir einkennilegt að dóttir hennar hafi ekki mátt fara í hinn skólann í bæn- um, Lágafellsskóla. „Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar harðneitaði því, þrátt fyrir að vita fullvel að dóttir mín er viðkvæm fyrir vegna þunglyndis. Samt er henni gert að mæta í skólann sem hún óttaðist mest að fara í,“ segir móðirin. Gripið var til sértækra úrræða og var dótturinni til að byrja með kennt einni í gluggalausri kompu í skólanum, svo sem Sunnudagsblaðið greindi frá í október síðastliðnum. Í þeim sama mánuði hætti stúlkan að treysta sér til að mæta í skólann. Skömmu síðar hófst heimasjúkrakennsla, ein og hálf klukkustund á morgnana, en skóla- stjóri Varmárskóla og skólaskrifstofa Mosfellsbæjar ákváðu að það yrði bara íslenska og enska, að sögn móður stúlkunnar. Gekk vel í prófunum „Heimakennslan gekk til að byrja með vel, hún var látin hafa verkefni og próf. Eftir að ég grátbað um stærðfræðikennslu fékk hún fjóra stærðfræðitíma og var svo látin taka sama próf og hinir. Útkoman var B plús,“ segir móðirin, en dóttirin fékk A í ensku og C og B í íslensku. „Mér fannst þetta mikill sigur, þar sem hún hafði nánast ekkert mætt í skólann veturinn á undan í 9. bekk.“ Móðirin óskaði eftir því að sjúkra- kennslan héldi áfram eftir áramót og aukin áhersla yrði lögð á stærðfræð- ina svo að dóttirin myndi ná vor- prófum í 10. bekk. „Niðurstaðan var sú að sjúkra- kennslan hætti bara í janúar, fyrir ut- an þrjá stærðfræðitíma fyrstu vik- una. Þess í stað átti að reyna skóla- aðlögun aftur, sem gekk ekki. Skólaskrifstofan neitaði að útvega húsnæði undir sjúkrakennslu og ekki var vilji til að halda áfram kennslu heima þótt hún hefði gengið vel,“ segir móðirin. BUGL bauð hins vegar fram hús- næði og hófst sjúkrakennsla þar 7. febrúar. Tímum var á hinn bóginn fækkað úr sjö og hálfri klukkustund á viku niður í fjórar klukkustundir, þrjár klukkustundir fóru í stærðfræði og ein í íslensku. Engin enska var kennd. Þegar móðirin óskaði eftir meiri kennslu fékk hún þau svör frá fræðslustjóra Mosfellsbæjar að fyrir- komulag kennslunnar væri sam- kvæmt ráðleggingum frá BUGL. Að sögn móðurinnar kannaðist BUGL ekki við það enda skólamál ekki á þess könnu. „Þau mál eru alfarið á hendi skólayfirvalda, þannig að fræðslustjóri Mosfellsbæjar og skóla- skrifstofan fóru þarna með ósannindi og notuðu BUGL sem skálkaskjól fyrir ófullnægjandi sjúkrakennslu.“ Tilhæfulausar ásakanir Þegar móðirin spurði um móttöku- áætlun fyrir dóttur sína fékk hún það svar í tölvupósti frá skólanum að ís- lenskukennarinn hefði gert einstak- lingsáætlun fyrir barnið og hún ætti að skrifa undir það plagg þegar hún næði í barnið úr sjúkrakennslu á BUGL. „Einstaklingsáætlunin, sem gerð var án samráðs við okkur for- eldrana, gengur út á það að barnið eigi að læra mestallt sjálft heima og fá mjög skerta kennslu. Þegar ég sótti barnið útskýrði ég fyrir kenn- aranum af hverju ég ætlaði ekki að skrifa undir þessa einstaklings- áætlun. Kennarinn lét ekki segjast og hélt áfram að ræða málið fyrir fram- an barnið mitt en ég svaraði því til að þetta væri hvorki staður né stund og yfirgaf svæðið. Þetta hafði þær afleið- ingar að nokkrum dögum síðar kom skólastjórinn með tilhæfulausar ásakanir í minn garð, sem hún sendi í tölvupósti á fleiri aðila. Sem betur fer var starfsmaður BUGL vitni að þess- um orðaskiptum og gat borið þann rógburð til baka.“ Eftir þetta fékk móðirin tölvupóst frá skólastjóranum um að íslensku- kennarinn treysti sér ekki til að halda sjúkrakennslunni áfram. Óskaði hún þá eftir öðrum íslenskukennara en við því hefur ekki verið orðið. 18. febrúar var sjúkrakennslan aukin í fimm og hálfa klukkustund á viku en eingöngu stærðfræði. Þannig gekk það til 13. mars, þegar allt fór úr skorðum í þjóðfélaginu vegna kórónuveirufaraldursins. Þá var sjúkrakennslan minnkuð niður í tvö skipti í viku, og bara stærðfræði. Þannig var staðan þangað til í þessari viku að sjúkrakennsla hófst fjórum sinnum í viku og þannig verður mál- um háttað út mánuðinn. Verður henni mikið áfall „Dóttir mín er búin að fá þrjá ís- lenskutíma frá áramótum og nú eiga fjórir að bætast við í maí. Það gerir samtals sjö íslenskutíma alla önnina. Hún hefur ekki fengið einn einasta enskutíma frá áramótum og á ekki að fá í maí. Hún hefur með öðrum orðum bara fengið stærðfræðikennslu á þessari önn. Fyrir vikið er það kalt mat mitt að skólaskrifstofa, fræðslu- stjóri og skólastjóri Varmárskóla hafi séð til þess að hún falli og nái ekki lokaprófum í 10. bekk. Og það sem verra er; allir þessir aðilar eru full- komlega meðvitaðir um þetta. Skömm þeirra er mikil.“ Afleiðingin er sú, segir móðirin, að dóttir hennar muni ekki geta sótt það framhaldsskólanám sem hugur henn- ar stendur til í haust. „Það verður henni mikið áfall og mun hafa gífur- legar afleiðingar fyrir hana í framtíð- inni. Þar sem hún er á einhverfu- rófinu og hefur glímt við mikið þunglyndi og kvíða eru það litlu þúf- urnar sem fella hana. Það er grátlegt að á meðan BUGL er að reyna að lyfta dóttur minni upp er skólakerfið upptekið við að draga hana niður.“ Móðirin hefur sótt rétt dóttur sinn- ar af miklum þunga og viðurkennir að það hafi mögulega bakað henni óvild innan skólans og skólaskrifstofunnar í Mosfellsbæ. Það sé þó hreint auka- atriði enda eigi hagsmunir barnsins alltaf að ganga fyrir. „Þjónusta við barn má aldrei velta á því hvort skóla- yfirvöldum líkar vel eða illa við for- eldra þess. Það segir sig sjálft. Hefði ég ekki gert kröfur hefði barnið enga kennslu fengið í allan vetur.“ Berskjölduð og réttlaus Móðirin segir þetta ferli hafa opnað augu sín fyrir því hve berskjölduð og réttlaus börn séu sem á einhvern hátt eru sérstök eða standa höllum fæti vegna veikinda. „Þeim er bara ýtt til hliðar og lög og reglur sem sett hafa verið til að vernda börn í þessari stöðu markvisst brotin. Það hefur heldur engar afleiðingar að brjóta á þessum börnum. Ég hef haft sam- band við menntamálastofnun, menntamálaráð, félagsmálaráðu- neytið, heilbrigðisráðuneytið, um- boðsmann barna, og alla sem málið gæti varðað. Svarið er alltaf það sama, „þetta er ekki mitt mál“ og vís- að á einhvern annan.“ Hún kveðst hafa rætt við bæði fag- fólk úti í bæ og foreldra barna í svip- aðri stöðu sem segi henni að þetta sé orðið mjög stórt vandamál. Margir séu að lenda í svipuðum vandræðum með börnin sín. „Ég gerði nokkrar til- raunir til að fá Sjónarhól, sem að- stoðar foreldra með mál af þessu tagi, á fund með mér, en það er svo mikið að gera hjá þeim að það náðist aldrei. Það er svo mikil ásókn í þjónustu Sjónarhóls að þau hafa ekki undan. Það sýnir umfang vandans og hversu víðtæk þessi brot á réttindum barna eru.“ „Skömm þeirra er mikil“ Móðir fimmtán ára stúlku á einhverfurófi segir að skólayfirvöld í Mosfellsbæ hafi komið í veg fyrir að dóttir hennar næði prófum í 10. bekk í vor með því að veita henni ekki fullnægjandi sjúkrakennslu í vetur. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Félagsleg einangrun getur verið ungmennum afar þungbær. Myndin tengist ekki efni greinarinnar með beinum hætti. Colorbox

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.