Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Page 13
Morgunblaðið/Árni Sæberg
una, Bragi að nafni, sá líka um bíóið á staðn-
um. „Stundum komu blöðin ekki í tvo eða þrjá
daga vegna veðurs og þegar þau loksins komu
vorum við peyjarnir vel klifjaðir. Bragi átti því
til að lauma að okkur bíómiðum sem kaupauka.
Ég var því mikið í bíó. Mánudagsmyndir Sjón-
varpsins víkkuðu svo sjóndeildarhringinn og
maður áttaði sig á því að til væri meira en bara
Hollywood. Maður þurfti að hafa fyrir því að
upplifa sumar myndirnar, alveg eins og bæk-
urnar. Þetta er sama rótin.“
Í samkeppni við bókasöfnin
Talið berst aftur að varnarbaráttu myndbands-
ins. Aðal-Reynir segir netið, streymisveiturnar,
ólöglega niðurhalið og allt það löngu búið að
ræna öllu af sér en hitt skilur hann ekki, hvers
vegna sveitarfélög landsins leggist þar á árarn-
ar. „Þau eru í beinni samkeppni við mig gegnum
bókasöfnin. Fólk kemur reglulega til mín vegna
þess að það fékk ekki myndina á bókasafninu
sínu. Líkja má þessu við veru RÚV á auglýs-
ingamarkaði. Hvernig á einyrki eins og ég að
keppa við þetta? Aðalvídeóleigan er eina há-
menningarlega afþreyingarfyrirtækið í mið-
bænum sem hefur aldrei fengið neina hjálp eða
verið styrkt af hinu opinbera.“
Í því hringir síminn. Spurt er um The Pian-
ist og að sjálfsögðu er hún til. Aðal-Reynir
býður viðmælanda sinn velkominn við fyrsta
tækifæri.
Við tökum upp þráðinn og Aðal-Reynir viður-
kennir að honum finnist hann ábyrgur fyrir
þeim 30.000 titlum sem leigan hans hefur yfir að
ráða. „Ég er búinn að byggja upp ótrúlegt safn
af kvikmyndum með útsjónarsemi, elju og gríð-
arlegum kostnaði. Í þessu safni er bundið tölu-
vert fjármagn og best væri að finna einhverja
framtíðarleið til að halda safninu saman.“
– Eins og með systkini sem ættleidd eru
saman?
„Nákvæmlega! Ég vil helst ekki yfirgefa
þetta safn nema það verði komið í örugga höfn
og best færi hugsanlega á því og ofurlítill
mannsbragur væri að, ef borgin gerði mér til-
boð í safnið í einu lagi inn á bókasöfnin eða sem
væri ennþá betra, ef hægt væri að veita mér
brautargengi með smá hjálp. Halló! Dagur og
borgarstjórn.“
Hugur og hönd
Þegar þar að kemur, vel að merkja, en Aðal-
Reynir er hvergi nærri hættur – og langt í næstu
áramót. „Einhvern tíma lýkur líklega þessu
ævintýri hjá mér, en menn þurfa ekki að hafa
áhyggjur af mér. Ég heiti Aðal-Reynir, ég er
kamelljón! Ég get gert allt mögulegt; er til dæm-
is jafnvígur á Photoshop og Excel sem er frekar
sjaldgæft. Ég er líka fæddur með þeim ósköpum
að vera býsna handlaginn, þannig að ég verð í
góðu lagi hvernig sem þetta allt saman fer.“
Við endum samtalið úti á stétt enda Aðal-
Reynir ekki í minnsta vafa um að Klapparstíg-
urinn sé ein fallegasta gata borgarinnar.
„Horfðu bara hérna niður. Sérðu sjóinn?“ Sann-
arlega. „Það jafnast ekkert á við sjávarlyktina.“
Nema þá kannski góð kvikmynd á DVD ...
Aðal-Reynir svipast um eftir viðskiptavinum. Margir úr stétt íslenskra leikstjórahafa verið fastagestir hjá honum og stórstjörnur á borð við Clint
Eastwood, Juliu Stiles, Evu Mendes og Ryan Gosling hafa leigt hjá honum myndir. Hverjir skyldu stinga inn nefinu í dag?
Úrvalið er fjölbreytt í Aðalvideoleigunni. Hér
má sjá forvitnilega titla og Hitchcock áberandi.
10.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13