Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Side 29
merki um einstakt keppnisskap og
sigurvilja Jordans eða einfaldlega
hrottaskap er erfitt að segja. Lítið
virðist vera tekið á þessari hlið Jor-
dans í þáttunum, hingað til að
minnsta kosti. Tveir þættir koma út á
hverjum mánudegi um þessar mund-
ir, sjöundi og áttundi á morgun og
þeir tveir síðustu viku seinna.
Það verður þó ekki deilt um getu
Jordans á vellinum, vægi hans utan
hans og óbilandi sjálfstraust. Þætt-
irnir varpa ljósi á það hversu mikill
sigurvegari Jordan var og er þeir líta
yfir feril hans sjáum við umbreytingu
hans frá einum besta stigaskorara
deildarinnar yfir í leiðtoga sem veit
hvað þarf til að vinna og gerir allt til
að lið hans nái árangri.
Zen-meistarinn
Þjálfarinn Phil Jackson átti stóran
hlut í þeirri breytingu. Hann var ráð-
inn sem aðstoðarþjálfari Bulls árið
1987. Hjá Bulls varð Jackson hrifinn
af þríhyrningssókninni svokölluðu
sem Tex Winter, sem einnig þjálfaði
hjá liðinu, átti hlut í að þróa. Þegar
Jackson var svo ráðinn aðalþjálfari
liðsins varð sóknarafbrigðið aðals-
merki liðsins.
Þetta krafðist þess að Jordan
treysti meira á liðsfélaga sína og bolt-
inn fengi að ganga betur á milli
manna. Í fyrstu var Jordan ekki alls
kostar sáttur við ráðningu Jackson en
árangurinn stóð ekki á sér; liðið vann
meistaratitilinn strax á öðru ári Jack-
sons og undir lok ferilsins vildi Jor-
dan ekki spila fyrir neinn annan.
Þegar komið var fram á árið 1997
var þungt á samskiptum þeirra Jack-
son og Krause og eftir að Jackson
skrifaði undir eins árs samning við
Bulls sagði Krause við fjölmiðla að
þetta yrði síðasta ár Jackson hjá lið-
inu. Tjáði hann Jackson að þótt liðið
ynni hvern einasta leik á tímabilinu
yrði hann samt látinn fara.
Jackson fór óhefðbundnar leiðir í
þjálfun sinni, lét leikmenn sína
stunda jóga og hugleiða, og var kall-
aður Zen-meistarinn. Titill
þáttaraðarinnar er kominn frá Jack-
son, en í aðdraganda umrædds tíma-
bils kallaði hann það „síðasta dans-
inn“.
Sóttur til Vegas
Scottie Pippen var Bulls-liðinu
gríðarlega mikilvægur. Hann var,
eins og áður sagði, ósáttur við laun
sín hjá liðinu og eldaði grátt silfur við
Jerry Krause. Því er lýst í þáttunum
þegar Pippen jós svívirðingum yfir
Krause aftan úr liðsrútunni þar sem
Krause sat fremst.
Til að láta skoðun sína í ljós frest-
aði Pippen aðgerð, sem hann hefði átt
að fara í sumarið 1997 þegar tíma-
bilinu lauk, til haustsins svo hann
myndi missa af upphafi tímabilsins.
Þegar það var svo hafið krafðist hann
þess að vera skipt til annars liðs. Ekki
var ósk hans uppfyllt og á endanum
ákvað hann að vera um kyrrt eitt ár
til viðbótar og freista þess að vinna
sjötta meistaratitil sinn með Jordan
og Jackson.
Annað mikilvægt púsl í liðinu var
glaumgosinn Dennis Rodman. Innan
vallar var hann þekktur fyrir gríðar-
lega vinnusemi og grófan en frábær-
an varnarleik en utan hans fyrir
partístand og hármúnderingar.
Rodman vann tvo meistaratitla
með Detroit Pistons áður en hann
færði sig yfir til San Antonio Spurs.
Þar átti hann erfitt uppdráttar en hjá
Bulls blómstraði hann. Jordan og
Jackson skildu að ekki var hægt að
temja manninn, heldur gáfu honum
þess í stað frelsi innan ákveðins
ramma sem varð til þess að hann skil-
aði sem mestu til liðsins.
Gott dæmi um það er á miðju tíma-
bilinu 1997-98 þegar Rodman fannst
hann þurfa frí frá daglegu amstri at-
vinnumanns í körfubolta. Hann vildi
þó ekki fara á sólarströnd og slaka á
eins og flestir aðrir heldur til Las Ve-
gas og detta í það með kærustu sinni,
Carmen Electra. Jackson var efins en
samþykkti að leyfa honum að
djamma í tvo sólarhringa. Jordan var
ekki sáttur, sagði að hann yrði aldrei
kominn aftur eftir þann tíma. Fór það
svo að tæplega fjórum dögum seinna
kom Jordan sjálfur á hótelherbergi
Rodman í Vegas og sagði honum að
hypja sig á æfingu.
Þættirnir eru kærkomnir fyrir
íþróttaunnendur sem eru orðnir lang-
þreyttir á því að hafa ekkert til að
horfa á á meðan kórónufaraldurinn
gengur yfir. Þeir veita þeim sem ekki
þekkja til innsýn á yfirburði Jordans
á sínum tíma en fyrst og fremst nýtt
sjónarhorn á þetta ótrúlega Bulls-lið.
Michael Jordan og Phil Jackson
fagna sjötta og síðasta meist-
aratitli sínum saman árið 1998.
AFP
10.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
HEIMILDARMYNDIR Á morgun, mánu-
dag, verður heimildarmyndin Have a
Good Trip: Adventures in Psychedelics
frumsýnd á Netflix. Eins og nafnið gefur
til kynna munu sögur af inntöku ofskynj-
unarlyfja eiga sviðið og koma fram marg-
ir sem áhorfendur þekkja úr skemmtana-
bransanum vestanhafs á borð við ASAP
Rocky, Sting og Söruh Silverman. Mynd-
in mun ekki einungis skoða fyndnar sög-
ur frægra heldur einnig leita svara við
áleitnum spurningum eins og hvort of-
skynjunarlyf geti nýst í baráttunni gegn
þunglyndi og fíkn svo eitthvað sé nefnt.
Segja frá ofskynjunarreynslu
Sting er einn þeirra sem ræða lyfin.
AFP
BÓKSALA 29. APRÍL-5. MAÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Milljarðastrákurinn David Walliams
2 Þess vegna sofum við Matthew Walker
3 Skólaráðgátan Martin Wildmark
4 Afnám haftanna Sigurður Már Jónsson
5 Sumarbókin Tove Jansson
6 Morðin í Háskólabíó Stella Blómkvist
7 Eldum björn Mikeal Niemi
8 Í vondum félagsskap Viveca Sten
9 Framkoma Edda Hermannsdóttir
10 Depill á bókasafninu Eric Hill
1 Aðferðir til að lifa af Guðrún Eva Mínervudóttir
2 Bókasafn föður míns Ragnar Helgi Ólafsson
3 Tregasteinn Arnaldur Indriðason
4 Innflytjandinn Ólafur Jóhann Ólafsson
5 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir
6 Við erum ekki morðingjar Dagur Hjartarson
7 Helköld sól Lilja Sigurðardóttir
8 Skáldið er eitt skrípatól Guðbergur Bergsson
9 Stelpur sem ljúga Eva Björg Ægisdóttir
10 Stormfuglar Einar Kárason
Allar bækur
Skáldverk og hljóðbækur
Ég stofnaði bókaklúbb ásamt
nokkrum vinkonum í vinnunni og
við áttum sameiginlegan draum að
lesa fleiri bækur. Þessi klúbbur fékk
heitið „Ferðab(r)ækurnar“. Við
setjum okkur markmið um hvaða
bók skal lesa, áætlum hversu lang-
an tíma þarf í lesturinn og síðan
hittumst við á kaffihúsi til að ræða
bókina. Það er
metnaður og algjör
nördaskapur í hópn-
um.
Það er ár síðan
við lásum bók Sig-
ríðar Hagalín
Björnsdóttur, Ey-
land. Mér finnst merkilegt hvað
bókin rímar við aðstæður sam-
félagsins í dag því Sigríður varpar
fram mynd af því hvernig Íslend-
ingar bregðast við skyndilegum og
stórvægilegum breytingum í sam-
félaginu.
Við upphaf
samkomubannsins
ákváðum við að líta
djúpt í eigin barm og
lesa bókina Man’s
Search for a Mean-
ing eftir Viktor E.
Frankl. Þrátt fyrir
sorgmæta upplifun Viktors í út-
rýmingarbúðum nasista í seinni
heimstyrjöldinni svarar hann
stórum spurningum um ástæðu
þess að lifa. Fyrri hluti bókarinnar
er stórmerkilegur og fyrir alla les-
endur.
Þegar ég vel bækur finnst mér
áhugavert að lesa sjálfsævisögur
frá mismunandi heimshornum. Á
þennan hátt kynnist maður nýjum
slóðum og menningu. Það eru
nokkrar sögur sem hafa verið mér
eftirminnilegar, Dóttirin eftir
Hannah Shah, Ég er Malala eftir
Malala Yousafzai og Með lífið að
veði eftir Yeonmi Park. Þetta eru
sögur kvenna sem lifðu af átök á
heimaslóðum sínum. Trú, menn-
ing og pólitík
neyddu þær til að
flýja heimili sín í leit
að betra lífi.
Síðasta sjálfs-
ævisaga sem ég las
var þó af öðrum
toga, Shoe Dog eftir
Phil Knight, stofnanda Nike. Sú
bók er skemmtileg fyrir íþrótta- og
viðskiptaáhugamenn.
Rithöfundur sem ég hef leitað til
í gegnum tíðina er Cecelia Ahern.
Hún skrifar hugljúfar bækur og hef-
ur frjótt ímyndunar-
afl. Sú bók sem er í
uppáhaldi eftir hana
er Lyrebird. Henni
svipar til vinsælu
bókarinnar Where
the Crawdads Sing
eftir Delia Owens. Í
báð-
um bókunum verða
einstaklingar fé-
lagslega einangraðir
og alast, á magn-
aðan hátt, upp í nán-
um tengslum við
náttúruna.
Nú þegar búið er að létta á
samkomubanninu mæli ég með að
gera lífið á vinnustaðnum
skemmtilegra. Bókin Fish! Tales er
stutt og gaf mér margar góðar
hugmyndir til að verða besta útgáf-
an af sjálfum mér!
DAGNÝ ÁGÚSTSDÓTTIR ER AÐ LESA
Dagný Ágústs-
dóttir er
ferðaráðgjafi í
fæðingarorlofi.
Metnaður og algjör
nördaskapur