Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Page 32
SUNNUDAGUR 10. MAÍ 2020
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
LOLLY SVEFNSÓF I
Lolly er fáanlegur í ljós- og dökkgráu
slitsterku áklæði. Vönduð 18 cm þykk
heilsudýna í stærðinni 140 x 200 cm.
ÁT TU VON Á
NÆTURGES TUM?
Svefnsófi er frábær lausn fyrir þá sem þurfa að
gera mikið úr litlu plássi. Hugmyndafræðin er
ofureinföld; sófi á daginn — rúm á nóttunni.
Hjá okkur færðu virkilega vandaða ítalska svefnsófa.
202.425 kr.
Fullt verð: 269.900 kr.
AFSLÁTTUR
25%
QUADRO SVEFNSÓF I
Ítölsk hönnun. Einstaklega góður svefnsófi. Bakinu
hvolft fram á einfaldan hátt. Kemur í dökkgráu,
ljósgráu og bláu slitsterku Austin áklæði. Hægt
að sérpanta í mörgum litum. Vönduð 13 cm þykk
heilsudýna í stærðinni 140 x 200 cm.
149.925 kr.
Fullt verð: 199.900 kr.
AFSLÁTTUR
25%
„Hugmyndin er að vera með sumarbúðir þar sem krakkar á aldr-
inum tíu til tuttugu ára læra dans og leiklist,“ segir Chantelle
Carey, dansari og danshöfundur.
„Krakkarnir gista í sex nætur og á daginn læra þau dans og leik-
list af bæði íslensku og erlendu fagfólki. Allan daginn eru þau að
æfa og læra. Svo að vikunni lokinni verða þau með sýningu fyrir
foreldra.“
Chantelle segir að allir geta tekið þátt og enn eru laus pláss á
síðara námskeiðinu.
„Fyrri vikan er hugsuð fyrir krakka með reynslu af leikhús-
heiminum en seinni vikan er opin öllum. Krakkarnir munu læra
margt og bæta sig og um leið skemmta sér vel í íslenskri náttúru.
Við munum kenna steppdans, jazzdans, nútímadans og einnig bæði
söng- og leiktækni,“ segir Chantelle, en þess má geta að upplýs-
ingar má finna á Facebook-síðunni Sumarbúðir Chantelle Carey.
Chantelle Carey, dansari og danshöfundur, ætlar að vera með dans- og leiklistarbúðir á Laugarvatni í sumar.
Morgunblaðið/Ásdís
Dansað á Laugarvatni
Tvennar sex daga sumarbúðir verða haldnar í
Héraðsskólanum á Laugarvatni í júlí.
Morgunblaðið/Golli
Í júlí verða haldnar nýstárlegar dans- og
leiklistarsumarbúðir á Laugarvatni.
Innbrot var framið í sendiráð
Íslands í London aðfaranótt 12.
október 1949 og birtist æsileg
frásögn af því í Morgunblaðinu
fjórum dögum síðar. Kom þar
fram að kona húsvarðarins,
Mrs. Wackett, hefði orðið vör
við umgang í skrifstofu sendi-
ráðsritarans, Pjeturs Eggerz, og
sent mann sinn á vettvang.
Hann hefði gengið fram á inn-
brotsþjóf við skrifborð Pjeturs,
sem aðeins hefði þó verið bú-
inn að stinga á sig blýanti og
inniskóm sendiráðsritarans
þegar hann var staðinn að
verki.
Segir að innbrotsþjófurinn
hafi veist að Mr. Wackett og
haft hann undir í fyrstu lotu, en
taflið hafi snúist þegar frú Wac-
kett kom til skjalanna „og inn-
legg hennar í málið gjörbreytti
gangi þess á skömmum tíma.
Veitti hún þjófinum mörg högg
og þung, uns hann var kominn
undir og að fyllu yfirunninn.
Reið það baggamuninn að Mr.
Wackett tókst að ná kverkataki
á kaupa og halda honum í því á
meðan frúin hringdi í lögregl-
una“.
Í fréttinni segir að húsvarðar-
hjónin þyki hafa unnið mikið af-
rek, ekki síst þegar að því sé
gætt að hann sé 63 ára og hún
sextug. „Mundi víst fæsta
gruna, að þessi litli, broshýri,
pervisni dyravörður gæti átt í
höggi við harðsvíraða innbrots-
þjóna og borið sigur af hólmi,“
segir í fréttinni. „En þetta gerði
Mr. Wackett, að vísu með að-
stoð konu sinnar – en vel má
þess minnast.“
Í fréttinni segir einnig að inn-
brotsþjófurinn hafi skilið skóna
sína eftir úti í garðinum, „og er
þá ekki nema skiljanlegt að
hann fengi áhuga fyrir inniskón-
um!!“
GAMLA FRÉTTIN
Pervisinn hús-
vörður hetja
Sagt var frá innbrotinu á forsíðu
Morgunblaðsins 16. 10. 1949
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Inga Hugborg Ómarsdóttir
flugfreyja
Jacinda Ardern
forsætisráðherra Nýja Sjálands.
Alexía Björg Jóhannesdóttir
kynningarstjóri