Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 8

Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 8
8 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 STJÓRNMÁLAMENN ÆTLAST STUNDUM TIL ÞESS AÐ HAGFRÆÐINGAR „REIKNI ÞÁ INN Í LAUSNINA“ Már Guðmundsson fyrrverandi seðlabankastjóri segir að ekki sé hægt að stjórna heims­ faraldrinum með takka og að hafa verði hliðsjón af því við útfærslu sóttvarnaaðgerða� Hann telur að enn sé svigrúm til staðar fyrir hið opinbera til að bregðast við efnahags­ áhrifum kreppunnar og að breytingar í kjölfar fjármálakreppunnar hafi eflt viðnámsþrótt þjóðarbúsins og fjármálakerfisins� Að hans mati geta hagfræðingar ekki gefið einhlítt svar við því hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið eða ekki� Þegar rætt er um hagstjórn á krísutímum hér á landi er ekki ólíklegt að minnst sé á Má Guð­mundsson oftar en einu sinni� Í embættistíð Más sem seðlabankastjóra, sem hófst í miðri fjármálakreppu árið 2009 og náði í gegnum eitt lengsta hagvaxtarskeið Íslandssögunnar, náði bankinn meðal annars að ná verðbólgu nálægt markmiði og treysta kjöl­ festu þess í verðbólguvæntingum auk þess sem fjármagns­ höft voru losuð tiltölulega áfallalaust og viðnámsþróttur fjármálakerfisins var efldur� Nú, þegar ljóst er að önnur efnahagskreppa hefur skollið á vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar, hefur Már svo fengið annað hlutverk hjá hinu opinbera� Í sept­ ember síðastliðnum skipaði fjármála­ og efnahagsráðherra hann í starfshóp sem ætlað er að meta efnahagsáhrif þeirra sóttvarnaaðgerða sem ríkisstjórnin hefur ráðist í til að sporna gegn frekari útbreiðslu veirunnar� RÉTT AÐ HJÁLPA ÞEIM SEM VERÐA FYRIR TJÓNI VEGNA SÓTTVARNAAÐGERÐA Þegar blaðamaður spyr Má um hans álit á efnahagsað­ gerðum ríkisstjórnarinnar finnst honum hún í megin­ atriðum hafa brugðist rétt við og unnið eftir svipaðri uppskrift og ýmis önnur lönd� Til að mynda bendir hann á að rétt sé að veita þeim aðilum bætur sem verða fyrir neikvæðum efnahagsáhrifum vegna sóttvarnaaðgerða sem miða að því að vernda hags­ muni heildarinnar� „Í þeim tilfellum er náttúrulega rétt lætan legt að bæta fyrir slíkt tjón� Það er í rauninni beint úr hagfræðibókunum, og er líka það sem hefur verið að gerast hér,“ segir Már� Varðandi almenna hagstjórn bendir hann á að það sé mikilvægt að átta sig á því hvert eðli áfalla er hverju sinni, það er, hvort áföll eru tímabundin, líkt og talið er að núverandi heimsfaraldur sé, eða varanleg� „Þú getur á vissan hátt straujað yfir tímabundin áföll með lántökum, tímabundnum hallarekstri eða með því að færa vexti í einhvern tíma langt niður fyrir lengri tíma jafnvægisvexti� Þegar áföll eru varanleg, þá er ekkert annað í boði heldur en að aðlagast nýjum veruleika með einhverjum hætti�“ HÖFUM HAFT DÝRMÆTT SVIGRÚM TIL AÐGERÐA Már segir að það skipta miklu máli varðandi efnahags­ aðgerðirnar að hér hafi verið svigrúm til þess að grípa til aðgerða� „Þetta svigrúm felst náttúrulega í því að skuldir ríkissjóðs höfðu lækkað verulega í uppsveiflunni og við­ námsþróttur var byggður upp í þjóðarbúinu og í fjármála­ kerfinu� Gjaldeyrisforðinn og eigið fé bankanna hafði auk­ ist, auk þess sem skuldsetning heimilanna hafði minnkað� Þá sköpuðu þær aðstæður að verðbólguvæntingar voru við markmið mun meira svigrúm til að lækka vexti heldur en ella hefur verið�“ Samkvæmt honum voru ekki öll lönd með þetta svig­ rúm: „Í upphafi faraldursins lentu t�d� ýmis nýmarkaðsríki í miklu fjármagnsútstreymi og markaðsvextir hækkuðu verulega, sem var einmitt ekki það sem þau þurftu, en það Lj ós m yn d: B ár a H ul d Be ck

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.