Vísbending - 25.12.2020, Blaðsíða 13
13V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
Ef mál hafa mjög víðtæk þjóðfélagsleg áhrif og pólitískar
hliðar, þá verða stjórnmálamennirnir að meta alla kosti
og galla slíkra mála taka þá forystu sem þeir vilja taka á
hverju sviði og þora að standa með því� Þeir geta þá ekki
einungis vísað í að það sé búið að reikna þetta út og það
sé það eina rétta� Því að þannig er það ekki� Hagfræðingar
geta hins vegar kortlagt efnahagslega kosti og galla slíkra
mála og aðstoðað með þeim hætti við stefnumótun�“
SKULUM EKKI AFTUR
STEFNA AÐ HEIMSYFIRRÁÐUM
Þar sem myntbandalag er ekki raunhæfur kostur í nærtíma,
meðal annars af pólitískum aðstæðum, þá er nauðsynlegt að
búa til fyrirkomulag sem sé nægilega gott til að takast á við
þá skelli sem valda sveiflum í þjóðarbúinu, samkvæmt Má�
Þetta væri markmið þess fyrirkomulags sem komið hefur
verið á hér á landi á undanförnum árum og felst í því að
byggja upp viðnámsþrótt, beita fleiri tækjum og stilla þau
betur saman með það að markmiði að varðveita bæði efna
hagslegan og fjármálalegan stöðugleika� Sams konar þróun
hefur verið að eiga sér stað meðal margra lítilla þjóðarbúa,
einkum nýmarkaðsríkja, og á vegum alþjóðastofnana eins
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru miklar rannsóknir og
stefnumótun í gangi varðandi það hvernig þetta sé best gert�
Már birti grein í Vísbendingu 22� nóvember sl� þar sem
hann lýsir þessu nánar en á þessu ári hefur hann m�a� unnið
að þessum málum með samtökum seðlabanka í Suðaustur
Asíu (SEACEN)� Már segir það vera hluta af þessum
ramma að beita við vissar aðstæður tækjum sem setja
hömlur við óhóflegum sveiflum í fjármagnshreyfingum�
Markmiðið væri eigi að síður að njóta eins og kostur er
þess ávinnings sem getur falist í fjármálalegri samþættingu
við umheiminn og tilheyrandi fjármagnshreyfingum�
„Kosturinn við þennan ramma er að hann er sveigjan
legur� Þú getur sett hann saman með mismunandi hætti
eftir því sem þú lærir meira um virkni og samspil tækja
sem getur svo leitt til þess að nota sum tæki meira en
önnur� Þessi tæki eru þau sem peningastefnan og fjár
málastöðugleikastefnan ráða yfir, ríkisfjármálastefnan, og
reglurnar sem sjá til þess að einstök fjármálafyrirtæki og
fjármálakerfið í heild fari ekki út fyrir hættumörk�
Þess vegna er ekki endilega eitthvað sem segir að besta
fyrirkomulagið sé að vera á öllum tímum með algjörlega
óheftar fjármagnshreyfingar� Ýmis lönd eru að reyna að
koma í veg fyrir of mikla alþjóðavæðingu eigin myntar
þar sem þau eru ekki að stefna að heimsyfirráðum� Við
reyndum það og skulum aldrei gera það aftur�“
EKKI SPURNING UM ALGJÖRT
SJÁLFSTÆÐI SEÐLABANKANS
Aðspurður hvort slíkt náið samstarf milli peningastefn
unnar og ríkisfjármálastefnunnar vegi ekki að hug
myndinni um sjálfstæði seðlabanka ssegir hann að sú
hugmynd standi enn fyrir sínu með ákveðnum fyrirvörum
en vissulega felist í þessu viss áskorun�
Sýnt hefði verið fram á að stjórn peningamála væri best í
höndum sjálfstæðra seðlabanka, en það þýðir ekki að hann
sé algjörlega sjálfstæður í öllum viðfangsefnum� „Seðla
bankinn er missjálfstæður eftir því hvert viðfangsefnið er,
það er hvort það er peningastefna, fjármálastöðugleiki,
fjármálaeftirlit eða ýmis verkefni sem Seðlabankinn er
með fyrir ríkisvaldið á grundvelli samninga en þar hefur
fjármálaráðherrann síðasta orðið�“
Már bætir einnig við að hugmyndin um skilyrt sjálf
stæði ætti ekki að vera mörgum framandi� „Mjög góður
vinur minn, Stanley Fischer, fyrrverandi seðlabankastjóri
Ísrael, aðstoðarforstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og pró
fessor við MIT, sagði eitthvað á þá leið að þeir sem fullyrða
að það sé ekki hægt að vera hálfsjálfstæður hafa aldrei
verið giftir�“
Már Guðmundsson tók við sem Seðlabankastjóri árið 2009 og gegndi því embætti þangað til í fyrra. Ljósmynd: Bára Huld Beck