Vísbending - 25.12.2020, Blaðsíða 25
25V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
KRAFTMIKIL UPPBYGGING
Árið 2020 verður vafalaust lengi í minnum haft� Komandi kynslóðir munu lesa í sögu
bókum um árið sem kórónuveirufaraldurinn skaut heimsbyggðinni skelk í bringu�
Faraldurinn sem dreifðist með ógnarhraða um heim allan� Þetta er árið þar sem mannlíf
margra landa svo gott sem lamaðist, fólk víða um heim þurfti að halda sig heima vikum
og jafnvel mánuðum saman� Þetta er árið sem flest okkar héldu að við myndum aldrei
upplifa�
Áhrifin hafa verið mikil á fjölmörg svið samfélagsins� Margir hafa unnið heima meiri
hluta ársins, aðrir hafa misst vinnuna eða ekki getað sinnt lífsviðurværi sínu� Mennta og
háskólanemar hafa setið heima löngum stundum og þannig farið á mis við mikilvæga og
skemmtilega tíma� Alvarlegastar eru þó afleiðingarnar fyrir þá sem hafa veikst alvarlega
af veirunni, eru að glíma við langvarandi eftirköst eða hafa misst ástvin�
En það er einmitt þegar á móti blæs sem við sýnum hvað í okkur býr, bæði sem
einstaklingar og ekki síður sem samfélög� Það hefur t�a�m� verið ánægjulegt að sjá hið
alþjóðlega vísindasamfélag taka höndum saman og þróa bóluefni hraðar en nokkur þorði
að vona� Aðilar sem áður tókust á í harðri samkeppni hafa deilt upplýsingum sín á milli
til að flýta þróun bóluefnis eins og frekast er unnt� Ef að líkum lætur verður böndum að
miklu leyti komið á veiruna á næsta ári, hér á landi og vonandi um heim allan�
Hins vegar er risastórt verkefni fram undan: Sjálf uppbyggingin� Stjórnvöld hafa hingað
til gripið inn í efnahags og atvinnulífið í Covidkrísunni af nokkurri festu� Við höfum
notið góðs af því hve sterkir innviðir Íslands eru� Innviðir sem voru byggðir upp í kjölfar
alþjóðlegu fjármálakrísunnar� Milljarðar hafa verið veittir til að styðja við þá sem hafa
orðið fyrir mestum efnahagslegum áhrifum veirunnar� Nú skiptir mestu að halda áfram á
þessari braut til að ná sterkri og hraðri viðspyrnu� Hið jákvæða er að það er svigrúm fyrir
hendi til að fara í umfangsmiklar opinberar fjárfestingar og þar blasir við okkur einstakt
tækifæri til að leggja áherslu á græna uppbyggingu�
Afar mikilvægt er að stjórnvöld dragi ekki að sér hendur of snemma og að allir leggi
sitt af mörkum: íslenska ríkið, Seðlabankinn, fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóðir og aðrir
fjárfestar� Verði efnahagsbatinn of hægur getur það haft alvarlegar langvarandi afleiðingar,
takmarkaðan hagvöxt eða áframhaldandi samdrátt og atvinnuleysi� Kröftug viðspyrna
er það sem við þurfum�
Meðal þess sem stjórnvöld þurfa að gera er að koma á öflugum hvötum til að örva
fjárfestingu innan einkageirans og hvötum sem stuðla að hraðri fjárhagslegri endur
skipulagningu þeirra fyrirtækja sem hafa farið hvað verst út úr niðursveiflunni� Styðja
við fyrirtæki sem líklegust eru til að vera hluti af uppbyggingunni með því að skapa
störf, skila arðsemi og greiða skatta til samfélagsins� Hér skiptir ekki síst stuðningur við
lítil og meðalstór fyrirtæki miklu máli� Jafnframt þarf að hlúa að nýjum kröftum sem
leysast úr læðingi þegar við endurheimtum frelsið�
Einum mannskæðasta heimsfaraldri síðustu aldar, inflúensufaraldrinum árið 1968,
fylgdi tímaskeið grósku, sjálfbærni og frelsis á mörgum sviðum� Framundan er nýtt ár
sem vonandi verður minnst í sögubókum framtíðarinnar fyrir snöggan viðsnúning,
endurreisn og frjálsræði� Við getum og eigum að taka á málum af myndugleika og
byggja upp, t�a�m� á sviði ferðaþjónustunnar sem er okkur svo mikilvæg, með sjálfbærni
að leiðarljósi� Óskandi er að kraftur einkaframtaksins, hugvitssemi og elja fá notið sín á
grunni sterkra innviða þar sem langtímasjónarmið eru höfð að leiðarljósi�
BENEDIKT GÍSLASON
bankastjóri Arion banka