Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Blaðsíða 42

Vísbending - 25.12.2020, Blaðsíða 42
42 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 MOLAR ÚR VÍSBENDINGU Á ÁRINU TIL SKAMMS TÍMA GETUR hagkerfið orðið fyrir skell ef farsótt tekur að breiðast út um Evrópu� En slíkur skellur krefst annars konar viðbragða en þeirra sem felast í hefð­ bundinni peningastefnu og fjármálastefnu ríkisins� Þá verður að tryggja að fyrirtæki geti staðið í skilum þótt starfsemi sé í lágmarki og að nauðsynjum sé komið til almennings� Það þarf ekki einungis að gera áætlanir um viðbrögð heilbrigðiskerfisins heldur einnig efnahagsleg viðbrögð� Gylfi Zoega, Vísbending 14. febrúar 2020. NAUÐSYNLEGT ER AÐ GRÍPA til sérsniðinna tilslakana í ríkisfjármálum og innspýtingar opinbers fjár undir þessum kringumstæðum� Aðstoða þarf bæði heimili og fyrirtæki við að standa við skuldbindingar og halda rekstri gangandi� Þar þurfa að koma bætur vegna tapaðra tekna, þeirra sem ekki eiga veikindadaga, atvinnuleysisbætur til handa þeim sem missa vinnu, eða hafa haft tekjur í svarta hagkerfinu� Guðrún Johnsen, Vísbending 13. mars 2020. HAGKERFI HEIMSINS ERU SAMOFIN, þau eru háð við­ skiptum hvort við annað svo efnahagsskellur í einu ríki hefur í för með sér margföldunaráhrif� Stjórnvöld þurfa að bregðast við þeim efnahagslegu áhrifum sem viðbragðs­ aðgerðir hér á landi og erlendis hafa í för með sér� Þórunn Helgadóttir, Vísbending 3. apríl 2020. AÐ LOKUM ER RÉTT að minna á að heilbrigðiskerfið okkar hefur sýnt fram á það í faraldrinum að hægt er að beita mikilli nýsköpun á undraverðum hraða með snjöllum úrræðum til að bregðast við ógninni� Helstu seðlabankar heims hafa gert slíkt hið sama á sínum sviðum� Þannig hefur það afhjúpast að verðmætin sem rekstur hins opin­ bera skapar geta verið mun meiri en kostnaðurinn� Ásgeir Brynjar Torfason, Vísbending 24. apríl 2020. Í KREPPUM OG NIÐURSVEIFLUM síðustu áratuga hafa karlmenn yfirleitt orðið verr úti á vinnumarkaði en konur� Til að mynda jókst atvinnuleysi mun meira á meðal karla en kvenna í kjölfar hrunsins� … Ýmsar vísbendingar benda þó til þess að áhrif þeirrar kreppu sem við göngum inn í nú verði ólík fyrri kreppum, og að í þetta sinn verði áhrifin meiri meðal kvenna� Herdís Steingrímsdóttir, Vísbending 1. maí 2020. ÞEGAR Á REYNDI ÞÁ reyndust nauðsynlegustu störfin vera þau störf sem heilbrigðisstéttirnar vinna� Störfin sem hreingerningarfólk innir af hendi og störfin sem kennarar vinna� Ef til vill er kominn tími til að endur­ meta virði starfa í þessu ljósi� Getum við án þessara starfa verið? Katrín Ólafsdóttir, Vísbending 29. maí 2020. ÞAÐ ER MIKLUM MUN ódýrara að koma í veg fyrir atvinnu­ leysi frekar en að bregðast við því� Þetta gildir á mörgum sviðum, t�d� almennu heilbrigði (viðhald á heilbrigðri sál og líkama er ódýrara en dýr læknismeðferð) og þegar kemur að tryggingum (oft er ódýrara fyrir tryggingafélög að koma í veg fyrir skaða frekar en að borga trygginguna vegna skaðans)� Það er betra að byrgja brunninn áður en barnið fellur ofan í hann� Ólafur Margeirsson, Vísbending 7. ágúst 2020. ENGIN HANDBÓK ER TIL um rétt viðbrögð við heims­ faraldri, en ljóst er að yfirvöld munu ekki leysa þennan vanda ein� Móta þarf stefnur í sátt og sameiningu með gagnkvæmum skilningi á þeim erfiðu kringumstæðum sem launamenn jafnt sem atvinnurekendur standa nú frammi fyrir� Anna Hrefna Ingimundardóttir, Vísbending 28. ágúst 2020. 2020 Ljósmynd: Bára Huld Beck

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.