Vísbending - 25.12.2020, Side 34
34 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
LITIÐ YFIR SÉRKENNILEGT ÁR
Fyrir nokkrum dögum var ég spurð að því hvað mér fyndist eftirminnilegast frá þessu ári� Þetta er klassísk spurning í lok árs, en það er ekkert klassískt við árið 2020� Í það minnsta vona ég að
þetta ástand sem brast á í byrjun góu fari í sögubækurnar
sem algjörlega einstakt á okkar tímum� Vissulega hefur
heimurinn gengið í gegnum farsóttir áður, en nútím
inn hefur verið blessunarlega laus við faraldra af þessari
stærðargráðu�
Það leið ekki langur tími frá því að fyrsta tilfellið
greindist hér á landi þangað til ljóst var að grípa þyrfti til
meiriháttar efnahagsaðgerða� Þarna var ég aðstoðarmaður
fjármála og efnahagsráðherra og fylgdist með þegar fyrstu
sviðsmyndirnar voru dregnar upp� Þær svartsýnustu gerðu
ráð fyrir að það versta gengi yfir með haustinu og þær
bjartsýnustu að sumarið yrði þokkalegt� Fljótlega varð sú
versta að þeirri bestu og viðspyrnuferlarnir breyttust úr Vi
í U og svo Nikemerkið� Hvar þeir standa akkúrat núna er
óvíst, en vonandi bjargar bóluefnið okkur frá W eða L�
AÐ GERA MEIRA EN MINNA
Það var algjör eining innan ríkisstjórnar um að draga þyrfti
lærdóm af hruninu og gera frekar meira en minna til að
efla viðnámsþrótt atvinnulífsins, tryggja framfærslugetu
fólks og stytta atrennuna að næsta hagvaxtarskeiði�
Fyrsti aðgerðapakkinn leit ljós 21� mars og maður
fann hvernig margir vörpuðu öndinni aðeins léttar�
Það átti greinilega að stíga fast inn í ástandið� En þetta
margumrædda ástand kallaði fljótt á frekari aðgerðir og
mánuði síðar voru nýjar kynntar til sögunnar – og svo
fylgdu enn fleiri í kjölfarið� Ýmsar þeirra hafa orðið bitbein
af mismunandi ástæðum� Mikil umræða varð í upphafi
um hlutabætur, brúarlánin þóttu ekki nógu vel útfærð
og svo fannst sumum illt að ríkið styddi fyrirtæki til að
segja upp fólki� Síðastnefnda úrræðið var samt sem áður
talið geta gegnt lykilhlutverki við að forða því að fjöldi
fyrirtækja yrði gjaldþrota við það eitt að standa skil á
greiðslum á uppsagnarfresti� Afleiðing þess yrði veikari
viðspyrna þegar birti til�
En það fer enginn í grafgötur með það að þrátt fyrir
öll þessi úrræði hefur ýmislegt þurft undan að láta�
Atvinnuleysi er í sögulegum hæðum og þvi er spáð að
við náum ekki fyrra framleiðslustigi fyrr en eftir tvö til
þrjú ár� Ferðaþjónustan og afleiddar greinar hafa orðið
fyrir miklum búsifjum, en eins og Viðskiptaráð benti á
í umfjöllun sinni fyrir stuttu nær samdrátturinn til allra
atvinnugreina, nema veitustarfsemi og hins opinbera�
Vinnumarkaðurinn vó salt um tíma í haust þegar
stefndi í uppsögn kjarasamninga, enda töldu vinnuveit
endur forsendur þeirra brostnar� Stjórnvöld stigu enn á
ný inn í aðstæður og lofuðu að lækka tryggingagjald til að
mæta launahækkunum á nýju ári og málum var bjargað
fyrir horn� Það verður samt ekki litið framhjá því að valið
stendur að einhverju leyti á milli fleiri starfa eða hærri
launa, en eins og kemur fram í áðurnefndri umfjöllun
Viðskiptaráðs hefði mátt halda nærri 15 þúsund manns
á launaskrá fyrir þær launahækkanir sem komið hafa til
framkvæmda einungis á þessu ári� Til að setja þá tölu í
samhengi nemur hún um 75% einstaklinga á almennum
atvinnuleysisbótum í nóvember�
AÐ FINNA FYRIRSJÁANLEIKA Í ÓVISSUNNI
„Enginn veit neitt, en allir eru að gera sitt besta,“ hefur
ósjaldan flogið í gegnum hug manns þetta ár� Vissulega
vita ýmsir ýmislegt, en oft hefur verið erfitt að sjá í gegnum
kófið� Tölfræðingar og faraldursfræðingar hafa lagst á eitt
um að reyna að sjá fyrir þróun farsóttarinnar eins og hægt
er og hagfræðingar og aðrir markaðsspekúlantar rýna í
efnahagsmálin�
Ég held að enginn geri þá kröfu að sett sé fram ófrá
víkjanleg og tímasett stefna um viðbrögð, en þegar það er
ekki hægt að bjóða upp á vissu, má samt sem áður reyna
SVANHILDUR HÓLM
VALSDÓTTIR
framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs