Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 41
41V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
virði fyrirtækja með lægri vöxtum, þar sem lánsfé þeirra
varð ódýrara og frjálst sjóðsstreymi þeirra því verðmætara�
Hins vegar telur Eggert að vaxtalækkanirnar hafi einnig
aukið ásókn í áhættusamari fjárfestingar, þar sem fjármagns
eigendur þyrftu í auknum mæli að leita til hlutabréfamark
aðarins til að halda uppi svipaðri ávöxtun á fé sínu og áður�
Til viðbótar við lægri vexti eru einnig uppi áform um sam
runa og afskráningar í Kauphöllinni� Í nóvemberbyrjun gerði
hópur tíu fjárfesta yfirtökutilboð í Skeljung, en samkvæmt
Eggerti hefur hópurinn í hyggju að taka félagið af markaði�
Einnig bárust fréttir í síðasta mánuði um að Kvika og TM
muni sameinast, að því gefnu að hluthafar, Fjármálaeftirlit
Seðlabankans og Samkeppniseftirlitið samþykki samrunann�
Verði af afskráningu Skeljungs og samruna Kviku
og TM myndi skráðum félögum á markaði fækka um
rúmlega 10 prósent, á sama tíma og aukinn áhugi hefur
myndast á fjárfestingum vegna lágra vaxta� Því er hér
sömu sögu að segja eins og á fasteignamarkaðnum, þ�e�
að hugsanlegum kaupendum fjölgar á meðan útgefendum
fækkar� Ekki er ósennilegt að þessi staða hækki hluta
bréfaverð enn frekar, en Eggert segir í grein sinni að slík
hækkun gæti hæglega leitt til eignabólu�
FERÐAÞJÓNUSTAN SNÝR LÍKLEGA AFTUR – Í BILI
Mikil óvissa ríkir um það hversu hraður batinn verður í
ferðaþjónustunni� Þótt ríkisstjórnin stefni á að ná hjarð
ónæmi gegn kórónuveirunni hér á landi á næstu þremur
mánuðum gæti liðið nokkur tími þar til fólk getur ferðast
á milli landa án mikilla hindrana, auk þess sem enn lengri
tími gæti liðið þangað til að það treystir sér til þess�
Hins vegar býst Seðlabankinn við að viðsnúningur
ferðaþjónustunnar verði tiltölulega skjótur þegar ferða
takmörkunum er aflétt og hættan af veirunni er liðin
hjá, líkt og fram kemur í nýjasta hefti Peningamála, þar
sem atvinnugreinin hafi viðhaldið framleiðslugetu sinni
að mestu leyti� Hótelin standa enn og ekki er skortur á
hugsanlegu starfsfólki í greininni�
Már Guðmundsson fyrrverandi seðlabankastjóri var
einnig sama sinnis í grein sem hann skrifaði í Vísbendingu
í október� Í greininni sagði hann að aukin virkni ferða
þjónustunnar yrði fljótvirkasta leiðin til að ná viðsnúningi
í hagkerfinu, einmitt vegna þess að framleiðsluþættir
hennar væru ennþá til staðar�
Óvíst er þó hvað ferðaþjónustan verður lengi arðbær hér
á landi, ef marka má skrif Gylfa Zoega hagfræðiprófessors í
Vísbendingu í sumar� Samkvæmt Gylfa var atvinnugreinin
komin í vandræði áður en heimsfaraldurinn hófst, þar
sem hún byggði á láglaunastörfum í hálaunalandi� Því til
stuðnings sýndi hann fram á að hlutfall launakostnaðar af
heildarkostnaði í greininni væri hærra hér á landi heldur
en í öðrum ferðaþjónustulöndum, sem benti til þess að
Ísland stæði illa að vígi í samkeppni við þau�
Hann segir enn fremur að vöxtur greinarinnar hafi verið
ósjálfbær, þar sem störfin sem hún bjó til voru að stórum hluta
mönnuð af innfluttu verkafólki á meðan fjöldi Íslendinga
sem leitaði að betri atvinnutækifærum erlendis jókst�
Því er sennilegt að endurreisn ferðaþjónustunnar á næsta
ári verði skammgóður vermir� Þótt ferðamönnum muni
eflaust fjölga töluvert mun samkeppni Íslands við önnur
ferðaþjónustulönd, sem geta greitt mun lægri laun fyrir störf í
greininni, harðna ef keppst verður um að lokka þá til landsins�
ÓJÖFNUÐUR EYKST EF EKKERT ER AÐ GERT
Þar sem megnið af störfunum sem ferðaþjónustan skapaði
á síðustu árum kröfðust lítillar sérhæfingar leiddi hún
til þess að tekjumöguleikar ómenntaðra vænkuðust hér
á landi, en það hafði jákvæð áhrif á tekjujöfnuð� Þetta
sést ef svokallaður Ginistuðull, sem mælir ójöfnuð, er
skoðaður á árunum 20102018, en hann hélst nokkuð
stöðugur á tímabilinu á meðan hann hækkaði á hinum
Norðurlöndunum, líkt og mynd 1 sýnir�
MYND 1 GINI-STUÐULLINN Á NORÐURLÖNDUNUM 2010-2018
Með hruni ferðaþjónustunnar og annarra ósérhæfðra
þjónustustarfa er því líklegt að ójöfnuður hafi aukist hér á
landi á árinu� Nýjustu tölur frá Hagstofunni sýna að launin
í gisti og veitingaþjónustu, sem eru töluvert lægri en með
allaun, lækkuðu að raungildi á öðrum fjórðungi þessa árs,
á meðan þau hækkuðu í öðrum atvinnugreinum� Þannig
virðist sem láglaunastéttir séu að missa af þeirri kaupmáttar
aukningu sem aðrar stéttir upplifa þessa stundina�
Ef spá Gylfa um harða samkeppni við önnur ferða
þjónustulönd verður að veruleika mætti heldur ekki búast
við stórfelldum launahækkunum í greininni, sem myndi
auka ójöfnuð enn frekar�
Ójöfn tekjuskipting er þó aðeins ein birtingamynd vax
andi ójafnaðar, en hana má líka sjá í vinnumarkaðstölum
Hagstofu� Friðrik Már Baldursson hagfræðiprófessor benti
á þetta í grein sem hann skrifaði í Vísbendingu í október, en
samkvæmt honum kemur kórónukreppan verr niður á ungu
fólki, sem hafi að jafnaði minni tekjur en þeir sem eldri eru�
Innflytjendur finna einnig mun meira fyrir kreppunni
heldur en aðrir Íslendingar, en á þriðja fjórðungi þessa árs
fækkaði starfandi innflytjendum um 17 prósent, miðað við
sama tíma í fyrra� Til viðmiðunar fækkaði starfsfólki með
íslenskan bakgrunn einungis um 3 prósent á sama tímabili�
Þessi þróun er áhyggjuefni, þar sem hún bendir til
þess að viðkvæmir þjóðfélagshópar muni eiga erfiðara
uppdráttar en aðrir� Slæmar horfur í láglaunastörfum,
aukið atvinnuleysi ungra og stórfelld fækkun í störfum
innflytjenda gætu stuðlað að auknu bili milli ríkra og
fátækra á komandi misserum, verði ekkert að gert�