Skessuhorn - 01.04.2020, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 20202
Virðum samkomubannið og förum
eftir þeim fyrirmælum sem okkur eru
gefin. Höldum alltaf tveimur metrum á
milli okkar sé það hægt. Ekki taka æf-
ingar með öðrum en þeim sem við
búum með og pössum að börnin fari
einnig eftir þessum reglum. Kíkjum af
og til á vefinn covid.is og leitum upp-
lýsinga um ástandið og hvað beri að
varast.
Enn eru umhleypingar í veðurkort-
unum og jafnvel ekkert ferðaveður á
laugardaginn. Á morgun er útlit fyr-
ir minnkandi norðanátt, 5-13 m/s síð-
degis en hvassara suðaustanlands.
Léttur til á Suður- og Vesturlandi, ann-
ars verða víða él. Frost 2-8 stig. Á föstu-
dag er spáð norðaustanátt 5-13 m/s
og él verða á Norðurlandi, en bjart
veður sunnan heiða. Frost 0-10 stig og
mildast syðst á landinu. Vaxandi aust-
anátt og fer að snjóa við suðurströnd-
ina um kvöldið. Á laugardag verður
13-20 m/s og snjókoma eða él og kalt
í veðri. Á sunnudag er útlit fyrir norð-
austan storm og snjókomu og minnk-
andi frost. Á mánudag er spáð norð-
austlægri átt og rigningu eða slyddu
með köflum, en snjókumu norðvest-
anlands.
Í síðustu viku spurðum við á vef
Skessuhorns hvernig lesendur vilja
hjúpa snúðana sína. 37% vilja súkkul-
aði á sinn snúð, 24% vilja heldur kara-
mellukrem, 21% vilja glassúr á snúð-
inn, 16% sverenda borða ekki snúða
og 2% vilja eitthvað annað á sinn snúð.
Í næstu viku er spurt:
Lækkar þú í útvarpinu í bílnum þeg-
ar þú ert að leggja honum?
Í skugga kórónuveirunnar hefur líf
okkar tekið töluverðum breytingum
á stuttum tíma. Allir þeir sem taka að-
stæðunum með jákvæðni og fylgja
þeim fyrirmælum sem hafa verið gefin
eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Næsta blað
degi fyrr
SKESSUHORN: Dymbil-
vikan er í næstu viku. Til að
Skessuhorn komist í hend-
ur lesenda fyrir páskahátíðina
verður lokið við vinnslu næsta
blaðs mánudaginn 6. apríl og
það prentað um kvöldið. Út-
gáfudagur er þriðjudagur-
inn 7. apríl. Skilafrestur efn-
is og auglýsinga til birtingar í
næsta blaði er því í síðasta lagi
á hádegi mánudaginn 6. apríl.
-mm
23 smit í gær
VESTURLAND: Alls höfðu
23 greinst með Covid-19 smit
á Vesturlandi í gær, þriðju-
daginn 31. mars. Hafði þeim
fjölgað um fjóra frá því deg-
inum áður. 318 voru í sóttkví
í landshlutanum í gær. Stað-
fest smit á landsvísu voru í gær
1.135 talsins og 960 manns
voru í einangrun. Alls voru þá
30 manns á sjúkrahúsi vegna
Covid-19 sjúkdómsins, þar af
tíu á gjörgæslu. 8.879 manns
voru í sóttkví og 6.214 manns
höfðu lokið sóttkví. 173 hafði
þá batnað af Covid-19. -kgk
Pósturinn
dreifir mat
LANDIÐ: Íslandspóstur býð-
ur nú upp á að dreifingu mat-
væla og annarrar dagvöru í
sveitir landsins. Með þessu er
fyrirtækið að svara mikilli eft-
irspurn sem verið hefur eftir
heimsendingu frá viðskipta-
vinum sem búa í sveitum en
eftirspurn hefur vaxið mik-
ið að undanförnu, segir í til-
kynningu.
-mm
Veðurhorfur
Setja á bundið slitlag á malarvegi víða
um landið og dreifist fjárfestingin í
hlutfalli við þá tengivegi sem eftir eru
á hverju svæði með malarslitlagi.
Fimmtán milljarðar í sérstakt átak
Framkvæmdir við samgöngumann-
virki eru stærsti einstaki liðurinn
í sérstöku 15 milljarða fjárfest-
ingarátaki ríkisstjórnarinnar til að
vinna gegn samdrætti í hagkerfinu.
Þingsályktunartillaga um aðgerð-
irnar var tekin til umræðu á Alþingi
á fimmtudag.
Viðhald húsa
á Vesturlandi
Áformað er að verja rúmum 2,0
milljörðum til endurbóta og við-
halds fasteigna. Þar af verður 400
milljónum ráðstafað í húsnæði heil-
brigðisstofnana. Breytingar innan-
húss á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi
og utanhússviðhald heilsugæslunn-
ar á Akranesi falla þar undir.
Farið verður í viðhald og endur-
bætur á húsnæði lögreglu- og sýslu-
mannsembætta fyrir 210 milljónir.
Meðal annars endurbætur á lög-
reglustöðinni á Akranesi og viðhald
á húsnæði sýslumannsembættisins í
Stykkishólmi.
Til stendur að verja 411 milljón-
um króna í viðhald og endurbætur
á húsnæði framhaldsskóla, meðal
annars utanhússviðgerðir á málm-
iðnadeild Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi.
Skógarstrandarvegur og
Biskupsbeygja
Framkvæmdir við samgöngumann-
virki eru sem fyrr segir stærsti ein-
staki fjárfestingaliður átaksins, en
til þeirra er samtals áformað að
verja 6,2 milljörðum á landsvísu.
Ráðist verður í hafnarframkvæmd-
ir fyrir 750 milljónir króna. Und-
ir þann lið átaksins falla m.a. dýpk-
unarframkvæmdir í Ólafsvík og sjó-
varnir á ýmsum stöðum vegna tjóns
í óveðrum.
Farið verður í vegaframkvæmd-
ir og hönnun fyrir 1,86 milljarða
króna. Snæfellsnesvegur um Skóg-
arströnd er kominn þar á dagskrá,
sem og Biskupsbeygjan svokallaða
á Holtavörðuheiði og framkvæmd-
ir og hönnun við Vesturlandsveg.
Einnig er áformað að setja einn
milljarð króna í framkvæmdir við
tengivegi. Setja á bundið slitlag á
malarvegi um allt land og dreif-
ist fjárfestingin um landið í hlut-
falli við þá tengivegi sem eftir eru
á hverju svæði með malarslitlagi.
Enn fremur er milljarði til viðbót-
ar varið í ýmsar viðhaldsaðgerðir á
vegum um land allt.
15 milljarðar alls
Heildarverðmæti fjárfestingarátaks-
ins nemur sem fyrr segir 15 millj-
örðum króna til verkefna á lands-
vísu. Utan Vesturlands má nefna að
áformað er að 200 milljónum verið
varið til stækkunar Grensássdeildar
Landspítalans á þessu ári, en áætl-
aður heildarkostnaður er 1,6 millj-
arðar á næstu þremur árum. Stefnt
er að því að byggja nýja hjúkrunar-
deild á Húsavík fyrir 200 milljón-
ir, 100 milljónum verður varið í ný-
byggingu áfangaheimilis fyrir þol-
endur kynferðisofbeldis og sömu
upphæð í öryggisvistun, en samtals
er áætlað að verja 700 milljónum
til nýbygginga og meiriháttar end-
urbóta húsnæðis. 100 milljónum
verður varið í byggingu flugskýl-
is fyrir Landhelgisgæsluna og 350
milljónir fara í flughlað á Akureyri
og akbraut á Egilsstaðaflugvelli.
Samtals er áformað að verja
1.365 milljónum til orkuskipta,
grænna lausna og umhverfismála
á landsvísu. Er stærsti liður þess
500 milljóna framlag til orkuskipta
í samgöngum og átaks í bindingu
kolefnis. 1,75 milljörðum verður
varið til rannsókna, nýsköpunar og
skapandi greina, þar af 750 milljóna
framlag til menningar, íþrótta og
lista. Alls verður 1,35 milljörðum
varið í Stafrænt Ísland og verkefni
tengd upplýsingatækni, þar af 500
milljóna framlag í endurnýjun lyk-
ilgrunnkerfa hins opinbera og 500
milljónum til að hraða frekar staf-
væðingu opinberrar þjónustu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Snæfellsnesvegur um Skógarströnd kemst nú á framkvæmdaáætlun.
Meðal tillagna er að Heilbrigðisstofnun Vesturlands fái 200 milljónir króna til
viðhalds og endurbóta á starfsstöðvum stofnunarinnar. Meðal annars er áformað
að færa öll endurhæfingarrýmin í Stykkishólmi á einn stað.
Farið verður í dýpkunarframkvæmdir á höfninni í Ólafsvík.
ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
NET
LAGERSALA
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS