Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 2020 13MIÐVIKUDAGUR 12. FEB ÚAR 20 Viðbrögð sveitarfélaga Lífið í Covid 19 Í Grundarfirði er áhersla bæjar- stjórnar að veita eins mikla þjón- ustu og mögulegt er, eins lengi og kostur er, við þær aðstæður sem uppi eru. „Við höfum náð að halda úti starfi í bæði leik- og grunnskól- anum fyrir alla nemendur alla virka daga, ásamt heitum skólamáltíð- um, og tónlistarkennslu með breyt- ingum, sem ég tel að sé mjög gott. Við höfum þurft að hafa talsvert fyrir þessu og það er ekki sjálfgef- ið að geta haldið þessari þjónustu gangandi með þeim skilyrðum sem hafa verið sett. Starfsfólkið á hrós skilið, við reynum að vanda okkur og höldum því áfram eins lengi og kostur er,“ segir Björg Ágústsdóttir í samtali við Skessuhorn. Rúm túlkun – engin gjöld fyrir ónýtta þjónustu Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur kynnt fyrstu skref til að koma til móts við íbúa bæjarins í þeirri óvissu sem ríkir. Meginreglan er að taka ekki gjöld fyrir þjónustu sem fólk er ekki að nota. „Síðan túlk- um við þetta rúmt, t.d. ef foreldr- ar leikskólabarna sjá fram á að geta haft börnin sín heima og þannig minnka álagið á leikskólana, eða að fólk neyðist til að vera heima, t.d. af heilsufarsástæðum, þá fell- um við niður gjaldið á meðan, auk þess sem fólk heldur plássum sínum á leikskólanum,“ segir Björg. „Við, eins og aðrir, vitum ekk- ert hve lengi þetta ástand varir og erum ekki enn komin á þann tíma- punkt, að við sjáum áhrifin á fyrir- tæki og fjölskyldur. Það er ljóst að mörg fyrirtæki standa frammi fyr- ir miklum vanda, einkum í ferða- þjónustunni. Það hefur áhrif á tekjur starfsfólks í þeim geira, auk afleiddra áhrifa. Við sjáum þó ekki ennþá nógu vel út um framrúðuna, vitum ekki hve margir verða at- vinnulausir og hve lengi, eða um áhrif á efnahag fólksins og þar með tekjur bæjarins,“ segir Björg. Þá segir hún að frekari viðbrögð bæj- arins vegna þeirra áhrifa sem Co- vid-19 kann að hafa, verði rædd á fundi bæjarstjórnar í næstu viku. „Við fylgjumst með því sem Sam- band íslenskra sveitarfélaga vinnur að og gerum ráð fyrir að okkar ráð- stafanir verði með líkum hætti og annarra sveitarfélaga, t.d. frestun á gjalddögum fasteignagjalda.“ Kæmi sér vel að vita meira um útsvarið Aðspurð segir hún að aðrar aðgerð- ir, eins og að auka við framkvæmd- ir eða breyta áherslum, hafi ekki verið ákveðnar. Það verður rætt í bæjarstjórn í næstu viku og næstu vikurnar, þegar framvinda mála skýrist frekar. Mikilvægt sé sam- hliða því, að bæjarstjórn leggi mat á mögulega tekjuskerðingu bæj- arsjóðs, einkum útsvars og tekna hafnarsjóðs. „Það kemur sér mjög illa við þessar aðstæður hve upplýs- ingar um útsvarið eru ógegnsæjar og litlar, frá ríkinu til sveitarfélaga. Ég hef áður gagnrýnt þetta og bæj- arstjórn hefur gengið eftir því við RSK að við fáum haldbetri upplýs- ingar um uppruna og skiptingu út- svarstekna, t.d. eftir atvinnugrein- um. Við höfum allt of litlar for- sendur til að áætla tekjumissi okkar. Við vitum að ferðaþjónustan mun finna sérlega fyrir þessum faraldri en þar sem við vitum ekki nógu vel hversu miklu ferðaþjónustan er að skila til okkar í útsvari eða hver fjöldi útsvarsgreiðenda er bak við þann hluta, þá getum við illa áætl- að tekjumissinn þar,“ segir Björg. Hún bætir við að erfiðara sé að taka ákvarðanir um framkvæmdir og að- gerðir sveitarfélagsins þegar yfirsýn yfir stærsta tekjustofninn sé með þessum hætti. „Við munum líka skoða okkar ráðstafanir að fengn- um upplýsingum frá fyrirtækjun- um hér í Grundarfirði. Ekki er ólíklegt að við horfum til aukinn- ar markaðssetningar og nýtum tím- ann til enn betri undirbúnings til að taka á móti ferðamönnum þegar landið fer aftur að rísa,“ segir hún. Óheppilegt sé hins vegar að sveit- arfélögin hafi ekki haft neina beina tekjustofna, tengda ferðamönnum, til uppbyggingar síðustu árin. Það komi berlega í ljós núna. Í Grundarfirði standa yfir um- fangsmiklar hafnarframkvæmdir og að sögn Bjargar er ekki svo gott að breyta verkhraða þar. „Við mun- um hvorki flýta þeim framkvæmd- um né seinka þeim. Þær munu að mestu halda sínu striki.“ Spurð hvort gerðar hafi verið áætlanir um aðstoð við íbúa í Grundarfirði segir Björg að enn sé ekki ljóst hver þörf- in verði. „Við þurfum að sjá betur hver þróunin verður og þörfin. Stóru aðgerðirnar felast í ráðstöf- unum ríkisins, t.d. stuðningi við þau sem missa vinnuna að hluta eða öllu leyti. Það sé gott að slík úrræði liggi nú þegar fyrir,“ svarar hún. arg Í Stykkishólmi ætlar bæjarstjórn, að sögn Jakobs Björgvins Jakobs- sonar bæjarstjóra, að bregðast við þessu áður óþekkta ástandi með það að leiðarljósi að milda höggið fyrir bæði heimilin og fyrirtækin í bænum. „Þetta er í undirbúningi eins og er og engar formaðar til- lögur komnar fram en við munum á næstu dögum og vikum leggjast yfir þetta af heilum hug. Við höfum til hliðsjónar tillögur og hugmyndir frá stjórn Samtaka íslenskra sveitar- félaga og vissulega munu okkar við- brögð litast að hluta af ákvörðunum og aðgerðum ríkisstjórnar og Al- þingis. Við erum meðal annars með í huga að fresta, dreifa, fella niður eða leiðrétta ákveðin gjöld og svo auðvitað að ráðast í viðbótar við- haldsframkvæmdir og fjárfesting- ar eða önnur mannaflsfrek og virð- isaukandi verkefni, svona eins og ég held að flestir séu með í huga á þessari stundu,“ segir Jakob í sam- tali við Skessuhorn. Samstaðan er mikilvæg Jakob segir að vissulega ríki óvissa enda hafi faraldurinn haft áhrif á allt okkar daglega líf og þar með samfélagið í heild í óákveðinn tíma. Þannig hafi hann áhyggjur af stöð- unni eins og margir aðrir, en hvað efnahagsleg áhrif varðar nefn- ir hann sérstaklega erfiða stöðu ferðaþjónustufyrirtækja sem glíma við tekjufall og gríðarlega óvissu. „Það er markmið sveitarfélagsins að standa með atvinnulífi og íbúum í gegnum þennan ólgusjó þannig að við stöndum þennan storm af okk- ur í sameiningu og verðum tilbúin að draga upp seglin þegar storminn lægir og sækja fram. Stykkishólm- ur er öflugur ferðaþjónustubær og liggja því mörg ferðaþjónustufyrir- tæki hér í dvala eins og víða annars staðar, en ég hef fulla trú á því að ferðaþjónustufyrirtæki hér í Stykk- ishólmi og annars staðar á Snæ- fellsnesi muni í sameiningu spyrna hressilega við fótum þegar lægir og léttir til,“ segir Jakob og bætir við að Stykkishólmsbær hafi lagt höf- uðáherslu á það á undanförnum vikum að endurskipuleggja sína starfsemi í öllum stofnunum til að draga úr og hefta útbreiðslu þessa faraldurs og farið alfarið að tilmæl- um heilbrigðisyfirvalda en vissu- lega séu tilfinningarnar blendnar á þessari stundu. „Ef satt skal segja hef ég haft mun meiri áhyggjur af hættu á ótíma- bærum fráföllum okkar samferð- arfólks, heldur en til dæmis efna- hagslegum áhrifum sveitarfélags- ins, og hefur það átt hug minn allan undanfarið. Ég er afar stoltur af því hvernig okkar samheldna samfé- lag í Stykkishólmi hefur unnið sem einn maður í tengslum við viðbrögð okkar við faraldrinum sem hefur verið algjört forgangsmál allra hér í bænum. Nú tekur hins vegar við skoðun og greining á efnahagsleg- um mótvægisaðgerðum bæjarins til að verja heimili og rekstraraðila í Stykkishólmi, en það er ljóst að bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar er tilbúin til samstarfs með fyrirtækj- um og íbúum til að mæta í sam- einingu efnahagslegum áhrifum af völdum kórónufaraldursins,“ segir hann. Aðeins greitt fyrir nýtta þjónustu Aðspurður segir Jakob það vera ríkan vilja hjá Stykkishólmsbæ að leggjast á árar með íbúum og rekstr- araðilum í bænum. „Við þurfum að endurskoða fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 og aðra þætti í kringum hana, en vissulega er það möguleiki að við aukum viðhald og fjárfest- ingar til að bregðast við stöðunni líkt og önnur stjórnvöld,“ segir Jak- ob og bætir við að þegar sé búið að ákveða að íbúar sem senda börnin sín ekki á leikskóla vegna kórón- aveirunnar þurfi ekki að borga fyr- ir þá þjónustu. „Við höfum hólf- að bæði leik- og grunnskóla niður og hafa stjórnendur og aðrir starfs- menn þar lyft grettistaki til að halda öllu gangandi. Stjórnendur nýttu helgina eftir að sett var takmörkun á skólastarf vegna farsóttar til að út- færa skipulagið og þurftum við því meðal annars ekki að loka leikskól- anum á mánudeginum heldur opn- uðum við bara aðeins seinna, eða klukkan tíu,“ segir Jakob ánægður og bætir við að það hjálpi vissulega við að halda leikskólanum opnum að sumir foreldrar haldi börnun- um heima. „Þeir sem vilja gera það geta látið okkur vita og þá borga þeir ekki fyrir þá viku sem barnið er heima, en gripið var til þessa úr- ræðis til þess að tryggja fulla starf- semi allra deilda leikskólans í ljósi núverandi aðstæðna.“ segir Jakob. Jákvætt sjónarhorn á ástandið Jakob segist hafa mikla trú á að þetta ástand muni koma til með að breyta mörgu til frambúðar og sér hann ýmis sóknarfæri í þeim breyt- ingum fyrir Stykkishólm. „Við komum út úr þessum öldudal með mun tæknivæddari stjórnsýslu og verðum enn tilbúnari fyrir 21. öld- ina. Þó að margir hafa þegar til- einkað sér tæknina lifum við núna tíma þar sem allir neyðast til að til- einka sér hana og ég held að það sé jákvætt. Þetta opnar fyrir hug- myndir um störf án staðsetning- ar og ég held að þetta opni augu starfsfólks og stjórnenda fyrirtækja og stofnana fyrir því að staðsetn- ing starfsmanna er afstæð með til- liti til tæknimöguleika nútímans. Í því er sóknarfæri fyrir landsbyggð- ina og ég held að nú þurfum við að fara í átak í þeim efnum og grípa þetta tækifæri,“ segir Jakob bjart- sýnn. „Við þurfum að reyna að sjá það jákvæða í þessari stöðu og það ætlum við að gera. Ég er viss um að samfélagið mun rísa úr þessum hremmingum hér á Íslandi áður en langt um líður og þar mun Stykk- ishólmsbær ekki að láta sitt eftir liggja,“ segir hann að endingu. arg Leggja sig fram um að halda sem mestu af þjónustunni gangandi í Grundarfirði Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði. Ljóms. úr safni/tfk Samstaða og jákvæðni í Stykkishólmi þó gefi á bátinn Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri Stykkishólms.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.