Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 202022 Lífið í Covid 19 Hver er maðurinn? Jón Sindri Emilsson, aðstoðar- maður bæjarstjóra Stykkishólms- bæjar, 31 árs, búsettur í Stykkis- hólmi og starfa í ráðhúsinu. Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og ef já hverju helst? Mínar áhyggjur leysa engan vanda og því hefur mér tekist að halda þeim í algjöru lágmarki. Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? Helstu áhrif á daglegt líf er að ég þvæ mér oftar um hendur og hlusta meira á Helga Björns. Hefur þú þurft að gera miklar breytingar á þinni vinnu? Andrúmsloftið er auðvitað að- eins öðruvísi, fólk reynir að halda sig í tveggja metra fjarlægð frá hvert öðru og huga vel að hrein- læti. Helstu breytingar eru senni- lega að kaffistofan er minna notuð og þar af leiðandi vinn ég meira og kjafta minna. Fjarfundir hafa einnig aukist töluvert og undan- farið hefur vinnan að miklu leyti snúist um tilkynningar og fréttir tengdar veirunni. Hvenær fórstu að taka alvarlega ábendingar vegna Covid-19? Málið var auðvitað alvarlegt frá uppáhaldi en um leið og fréttir bárust af smiti í Stykkishólmi fór ég að huga betur að handþvotti og reyna eftir bestu getu að fylgja leiðbeiningum til að hefta smit- leiðir. Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? Ætli sé ekki mikilvægast að fylgja fyrirmælum. Það hentar mér ágæt- lega þar sem ég er vanur því að gera bara eins og mér er sagt, bæði sem aðstoðarmaður og eiginmaður. Hvernig finnst þér stjórnvöld vera að bregðast við? Vel, sérstaklega ánægður með upp- lýsingafundina. Gott að halda fólki vel upplýstu. Hefur samkomubann áhrif á þig? Já, ég eignaðist son 1. mars síðast- liðinn og þar sem ekki er hægt að halda hefðbundna skírnarveislu og í ljósi aðstæðna, tilkynntum við nafn- ið á honum á fjarfundi með nánustu fjölskyldu síðasta sunnudag. Hann fékk nafnið Huginn Emil. Hvernig hagar þú innkaupum í dag? Ég fer sjaldan og kaupi mikið. Hvað munum við Íslendingar læra af þessum heimsfaraldri? Við komum tæknivæddari út úr þessu. Fólk á landsbyggðinni hætt- ir að keyra suður fyrir einn fund og tekur hann í fjarfundi frekar. Hversu lengi telur þú að ástandið muni vara? Ég held að það birti til í maí. Kanntu góðan Covid brandara? Nú er Kalli bretaprins loksins kom- inn með kórónu. – Gísli í bankan- um sagði mér þennan. Hver er maðurinn? Ómar Líndal Marteinsson, tann- læknir á Laugarbraut 11 á Akra- nesi. Á heima að Garðavöllum 4, 301 Akranesi, rétt utan við Leyni- svíkina. Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og ef já hverju helst? Já, hef dálitlar áhyggjur af Co- vid-19. Þá helst að einhver nákom- inn verði illa veikur og nái sér ekki aftur. Eða þá að maður sjálfur verði veikur og smiti einhvern annan sem má ekki við því, að því gefnu að maður sjálfur ráði við það – sé einkennalítill eða laus, og smiti ein- hverja aðra. Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? Maður er meira á tánum, þvær sér oftar og sprittar. Fer minna út og sleppir því að hitta sína ættingja og vini. Bara nánasta fjölskyldan heima sem verður vonandi bara betri eftir allt saman. Hefur þú þurft að gera miklar breytingar á þinni vinnu? Já, þurfti að loka stofunni vegna nálægðar skjólstæðinga við tann- læknana og tannfræðinginn. Meg- um bara sinna bráðahjálp hjá þeim sem eru í bráðri þörf. Hvenær fórstu að taka alvarlega ábendingar vegna Covid-19? Fljótlega eftir að þetta fór að grein- ast í bænum, þá gat maður ekki ann- að, og einnig út af því hversu ná- lægt maður er að vinna með fólk. Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? Halda í vonina - og ekki hafa of miklar áhyggjur. Þetta mun ganga yfir ef við stöndum saman en samt ekki of nálægt. Hvernig finnst þér stjórnvöld vera að bregðast við? Mér finnst þau vera að bregðast vel við og koma sínum skilaboðum vel til skila til fólksins. Hefur samkomubann áhrif á þig? Já, fer ekki í kirkju á sunnudögum, er í Íslensku kristskirkjunni. Þar er búið að loka fyrir samkomur. Sleppi bíói. Hvernig hagar þú innkaupum í dag? Geri ítarlegri lista fyrir innkaupin og kaupa til lengri tíma. Reyna að velja tíma þar sem færri eru líklega að versla. Hvað munum við Íslendingar læra af þessum heimsfaraldri? Vonandi meiri þolinmæði og til- litssemi og svo allra helst hvað gott hreinlæti er mikilvægt, forðast að vera með hendur í andliti nema þær séu nýþvegnar eða sprittaðar. Hversu lengi telur þú að ástandið muni vara? Fram á sumar, og svo ekki laus við þessar áhyggjur af smiti fyrr en eft- ir 1,5 til 2 ár. Kanntu góðan Covid brandara? Dagur 1 í sóttkví: Ég ætla að nota þennan tíma og huga að bættri heilsu. Dagur 2 í sóttkví: Vegna persónulegra ástæðna er ég að borða lasagna í sturtu. „Í ljósi aðstæðna tilkynntum við nafnið á syninum á fjarfundi“ „Helstu breytingar eru sennilega að kaffistofan er minna notuð og þar af leiðandi vinn ég meira og kjafta minna.“ „Þurfum að halda í vonina - og ekki hafa of miklar áhyggjur“ „Við megum bara sinna hjálp hjá þeim sem eru í bráðri þörf.“ Þessa dagana sitja mörg pör og fjölskyldur heima dag eftir dag og viku eftir viku vegna þess ástands sem ríkir í samfélaginu. „Það get- ur reynt á þolrifin fyrir marga, sér- staklega þar sem áður hefur ríkt spenna í samskiptunum. Tím- inn líður og lítið er við að vera hjá mörgum nema sjónvarpsáhorf og tölvuleikir. Og oft þarf ekki mik- ið til að sjóði upp úr,“ segir séra Þórhallur Heimisson ráðgjafi sem á undanförnum árum hefur boð- ið þúsundum Íslendinga að sækja námskeið til að bæta hjónabandið. Hann skýrir út hvernig nota megi þessa ófrjálsu heimavist til þess að bæta og styrkja hjónabandið og sambúðina. Á undanförnum árum hefur Þórhallur haldið hjónanámskeið víða um land undir heitinu „Já- kvætt námskeið um hjónaband og sambúð.“ „Þessi námskeið liggja að sjálfsögðu niðri eins og ann- að samkomuhald. En hjónanám- skeiðin hafa sótt allskonar pör, ung og gömul, pör í vanda og pör sem finnst hamingjan brosa við sér, barnmörg pör og barnlaus pör, gift og ógift og allt þar í milli. Það skemmtilegasta við öll þessi pör er einmitt það hversu fjölbreytt þau eru og hvert öðru ólík, hvert með sínu sniði, sína sögu, sínar skoðanir á lífinu og sína reynslu,“ segir Þór- hallur. Alla dreymir um hamingjuna Hann segir það sama eiga við alla einstaklingana sem mynda þessi pör. „Þeir eru eins ólíkir eins og hugsast getur. Á þessum nám- skeiðum hafa að sjálfsögðu margar spurningar vaknað um hjónaband- ið og stöðu fjölskyldunnar á Íslandi í dag. Hvað er það sem brenn- ur á, hvernig er hægt að bæta og laga það sem miður fer og hvað er hægt að gera til að varðveita ástina í sambúðinni,“ spyr hann. „Því öll pörin voru á sama máli um það, að það væri ástin sem væri drifkraftur- inn í sambandinu. Þegar ástin tæki að dofna, þá færi nú að halla und- an fæti og eitthvað þyrfti að gera í málinu. Auðvitað eru áhyggjurn- ar margar og mismunandi sem á fjölskyldunum hvíla nú sem fyrr. Sumir eru að glíma við fjárhags- erfiðleika, sjúkdóma og félagslega erfiðleika margskonar, aðrir þurfa að taka á framhjáhaldi, óhóflegu vinnuálagi eða samskiptaerfiðleik- um við börnin á heimilinu. En þó að áhyggjurnar séu margar og mis- munandi og aðstæðurnar líka, þá erum við samt hvert öðru lík þegar öllu er á botninn hvolft. Það hafa hjónanámskeiðin kennt mér. Alla dreymir um hamingjuna og sum- um tekst meira að segja að höndla hana. En það er ekkert hjónaband og engin sambúð án einhverra erf- iðleika,“ segir Þórhallur. Heimaverkefni gjaldfrjáls Hann segir að hjónanámskeiðin sem hann hefur boðið uppá endi alltaf með því að pörin fá með sér heim heimaverkefni til þess að halda áfram að rækta sambandið. „Nú ætla ég að bjóða þeim pör- um sem vilja, að fá hluta af þessum heimaverkefnum heimsend ef þau vildu nýta tímann heima til þess að styrkja samband sitt og fjölskyldu. Hægt er að fara inn á fésbókar- síðuna „Hjónaband“ til þess að fá nánari upplýsingar um heimaverk- efnin og hvernig þau eru sótt. Þetta tilboð er að sjálfsögðu ókeypis og öllum pörum opið, óháð aldri, trú, kynhneigð eða öðru,“ segir Þór- hallur Heimisson að endingu. mm Ástin er alltaf drifkrafturinn í sambandinu Þórhallur Heimisson, ráðgjafi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.