Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 202024 Haraldur Sturlaugsson hefur var- ið undanförnum 15 árum ævinnar í að safna myndum og heimildum tengdum knattspyrnusögu Akra- ness. Vitaskuld hefur hann ekki varið tímanum óskiptum til verks- ins, heldur sinnt þessu áhugamáli í frítíma sínum. Áhuginn á sögunni og ýmsum sögulegum verðmætum hefur fylgt honum alla tíð. Hann kveðst alltaf hafa verið haldinn söfnunaráráttu og -áhuga. „Hér er engu hent,“ segir Haraldur, en hann geymir í Haraldarhúsi ýmsa sögu- lega muni sem teygja sig allt aftur til ársins 1882. „Þá hófst verslun- ar- og útgerðarsaga fjölskyldunn- ar með langafa mínum, og sama ár íþróttasaga Akraness með stofnun Æfingafélagsins,“ segir hann. Allt hangir síðan saman, atvinnusag- an og íþróttasagan, í gegnum fólk- ið sjálft á staðnum. Íbúarnir mynda þræði sögunnar, sem tengja saman ólíka anga hennar, svo blaðamaður leyfi sér að gerast skáldlegur. Söguáhugi í leik og starfi Áhuginn hefur fylgt Haraldi bæði í leik og starfi. Má þar nefna að í tilefni af 70 ára afmæli Haraldar Böðvarssonar & Co. stóð Haraldur fyrir útgáfu bókar sem geymir við- töl við starfsfólk fyrirtækisins. Hann var þá framkvæmdastjóri HB. „Ég hóf störf mjög ungur, árið 1970. Meginþorri starfsfólksins, milli 200 og 300 manns, var reynslumik- ið fólk. Ég bar mikla virðingu fyr- ir þeirra reynslu, samviskusemi og þeirri fórnfýsi sem þetta fólk bjó yfir. Þegar fyrirtækið varð 70 ára 1976 fékk ég Sigurdór Sigurdórs- son blaðamann til að taka viðtöl við 40 starfsmenn,“ segir Harald- ur. „Þetta þótti nú ekki merkilegt á sínum tíma, í núinu, en ég er ekk- ert viss um að svona bók hafi ver- ið gefin annars staðar út í heimin- um. Það hefur oft verið skrifað um fyrirtæki en ekki starfsfólkið sjálft. Það er þarna að tala um sjálft sig en í leiðinni segir það líka sögu fyrir- tækisins sem það hafði starfað hjá í áratugi og líka sögu atvinnuhátta í landinu,“ segir Haraldur. „Bókin heitir Sjötíu ár á sjó og landi og mér þykir hún mjög skemmtileg heim- ild um veröld sem var,“ bætir hann við og auðheyrt að hann er ánægð- ur að hafa látið verða af útgáfunni á sínum tíma. „Þegar fyrirtækið varð 80 ára 1986 fannst mér kom- inn tími til að gera myndband um söguna og fékk ég Bryndísi Schram til verksins. Hún tók snilldarviðtöl við fólk sem var ekki vant að tjá sig í mynd, en hún kunni að fá fólk til að tala. Skipverjarnir á bátunum tóku sjálfir myndskeið af mismunandi veiðiskap og myndaðist mikil sam- keppni milli áhafna, um hver væri með besta myndbandið. Þá voru líka tekin myndskeið af landvinnsl- unni; fiskvinnsla, síldarsöltun og fleira. Þetta eru hin merkilegustu myndbönd,“ segir Haraldur. Veggirnir svigna undan sögunni Kjallari Haraldarhúss er alsettur myndum sem tengjast sögu fjöl- skyldu Haraldar, bæði í leik og starfi. Veggirnir nánast svigna und- an öllum römmunum. „Myndaröð- in byrjar þegar langafi minn byrj- aði í verslun 1882 og síðan er öllu raðað eftir tímaröð. Afi minni hóf útgerð 1906, þá 17 ára, þegar hann keypti sexæring. Þá þurfti fiskveiði- leyfi frá sýslumanni fyrir árabát, því það voru auðvitað skuttogarar þess tíma. Ég á þetta allt saman hérna, umsóknina og leyfið sjálft. Afi skrifaði hjá sér að hann hefði byrj- að á laugardegi og lýsti því hvernig tunglstaðan var. Síðan er öllu raðað í tímaröð og 100 árum seinna skrif- aði ég hvað var að gerast á mið- unum hjá skipum HB Granda 17. nóvember 2006 og hvernig tungl- staðan væri,“ segir Haraldur. „Hér er líka reikningsbók langafa frá 17. nóvember 1906, um fyrstu úttekt afa eftir að hann hóf útgerð. Þeg- ar afi byrjaði að róa tók hann út í verslun föður síns, sem vildi ekki gera upp á milli systkinanna svo það var allt fært til bókar,“ segir hann. „Hér hefur engu verið hent.“ Útgerðarfyrirtækið Haraldur Böðvarsson hf. varð 98 árar undir stjórn þriggja ættliða. Haraldur var framkvæmdastjóri í 35 ár og kveðst hafa áhuga á að gera sögu fyrir- tækisins frekari skil. „Mér finnst ég eiga eftir að segja frá mestu upp- byggingar- og fjárfestingasögu sjávarútvegs á Akranesi, sem stóð frá 1991 til 2003. Þá sögu á ég eft- ir að segja, það kraumar allavega í mér. En hvort það verður veit ég ekki,“ segir Haraldur. „Fyrirtæk- inu fylgdu miklar minjar, svo sem gjafir frá starfsfólki á merkum tíma- mótum og mörg málverk eftir Eirík Smith sem ég fékk hann til að mála, m.a. af öllum frumherjum fyrir- tækjanna sem sameinuðust HB. Verðlaunagripir sem starfsfólk og fyrirtækið fékk og fleira. Söfnunar- árátta mín sagði mér að skilja þetta eftir í fyrirtækinu, sem ég vonaði að yrði starfsfólkinu til yndis. En núna er þetta allt saman í geymslu ein- hvers staðar,“ segir hann. „En þetta er ekki stórmál, heldur störfin og reynslan sem töpuðust þegar fyr- irtækið flutti sína starfsemi. Sjálf- ur átti ég aldrei meira en um 2% í fyrirtækinu, þannig að allar þessar breytingar voru ekki á mínu valdi,“ segir Haraldur. Eldmóður og áhugi í íþróttastarfi Haraldur kynntist íþróttastarfi á sínum yngri árum og segir að íþróttir hafi gefið honum mik- ið sem ungum manni. „Það hefur hvatt mig til að halda saman sög- unni með hjálp margra, meðal ann- ars Ljósmyndasafni Akraness sem er að gera frábæra hluti. Það sem ég er að gera núna er að setja upp álspjöld með öllum Íslands- og bik- armeisturum í knattspyrnu, allra flokka karla og kvenna, en titlarn- ir eru samtals um hundrað talsins,“ segir hann. Skyldi því engan undra að fjölmörg spjöld með gulum „Þá sögu á ég eftir að segja“ - rætt við söguáhugamanninn og safnarann Harald Sturlaugsson Haraldur Sturlaugsson, söguáhugamaður og safnari á Akranesi. Ljósm. kgk. Heimili og verslun Böðvars Þorvaldssonar og Helgu Guðbrandsdóttur við Bakka­ tún. Haraldur Böðvarssön, afi Haraldar, er á hestbaki lengst til hægri í mynd. Segja má að Kútter Haraldur hafi siglt víða, en þetta líkan af honum var gert fyrir heimssýninguna í New York sem Íslendingar tóku þátt í árið 1939. Böðvar Þorvaldsson, afi Haraldar, flutti kútterinn til Akraness frá Skotlandi árið 1887. Enn er sungið um kútter Harald, vísan um kátu karlana en það var Geir Sigurðsson, skipstjóri á kútter Haraldi, sem orti braginn. Ingunn AK 150 út af Búðum undir Snæfellsjökli í 23. febrúar 2001. Stefnan hefur verið sett á Akranes með fullt skip af loðnu úr vesturgöngu. Skipið ber þarna nafn formóður Haraldar, Ingunnar Jónsdóttur sem bjó á Bakkafit við Búðir. Ingunn réri til fiskjar á svipuðum slóðum fyrir nærri tvö hundruð árum. Hún er talin hafa verið með fyrstu konum á Íslandi sem stundaði róðra til að færa björg í bú ásamt börnum sínum. Varla getur verið tilviljun að nafna hennar Ingunn AK hafi fengið fyrsta fullfermið á þessum sömu slóðum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.