Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 202020
Lífið í Covid 19
Hver er konan?
Áslaug Þorvaldsdóttir, 63 ára og
bý á Berugötu 7 í Borgarnesi.
Ég starfa sem framkvæmdastjóri
Landnámsseturs Íslands.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19,
og ef já hverju helst?
Hef ekki miklar áhyggjur af CO-
VID-19 fyrir mig persónulega, en
áhrifin sem þessi heimsfaraldur
hefur á efnahag Íslands og heims-
ins alls er nokkuð uggvænlegur.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Fyrir utan að vinnustaðurinn
minn er lokaður, þá kom dótt-
ir mín snögglega heim úr heims-
reisu og hefur það núna gott hjá
múttu sinni.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Mínum vinnustað, Landnámssetr-
inu, var lokað tímabundið mánu-
daginn 23. mars sl. þannig að
áhrifin eru mjög mikil.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
þann 29. febrúar kl. 14:45... En að
öllu gríni slepptu þá tók ég þessu
ekki svo alvarlega svona í fyrstu,
en þegar veiran fór að nálgast
hratt og smit að koma upp í nær-
umhverfi mínu, þá svona fóru að
renna á mann tvær, ef ekki fleiri,
grímur.
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að missa ekki gleðina. Og þvo
hendur.
Hvernig finnst þér stjórnvöld vera
að bregðast við?
Ég er mjög sátt við stjórnvöld í
þessu fordæmalausa ástandi og
treysti þeim fullkomlega.
Hefur samkomubann áhrif á þig?
Já alveg. Til dæmis þá falla nið-
ur kóræfingar hjá Freyjukórnum
„mínum“. Það hefur áhrif á mitt
félagslíf. Svo sem ekki meiri áhrif,
þannig lagað, enn sem komið er.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Það hefur nú ekki breyst að neinu
ráði. Fer ekki oft í búðir alla jafnan
og ekkert hamstur hér á bæ, hvorki
klósettpappír né annað!
Hvað munum við Íslendingar læra
af þessum heimsfaraldri?
Eftir þessi ósköp verður lítið eins
og áður var hér í heimi. Hugsan-
lega verður samkennd með náung-
anum eitthvað meiri og svo ætla ég
að vona að virðing gagnvart um-
hverfinu verði meiri. Ekkert er
sjálfgefið í þessum heimi, hvorki
heilsa né virðing. Ég sem vaknaði
upp þann 1. janúar 2020 og fann á
mér hversu gott þetta nýja ár yrði
nú! Hverjum hefði dottið öll þessi
ósköp í hug?
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Það er nú það. Vonandi verða há-
tíðahöldin 17. júní nk. í Skalla-
grímsgarði fjölmenn og frábær.
Kanntu góðan Covid brandara?
Mér finnst þessi með Karl Breta-
prins og kórónuna bestur!
Hver er maðurinn?
Guðmundur Skúli Halldórsson,
öryrki, gæludýraeftilitsmaður og
áhugamaður um fornbíla. Bý á Þor-
steinsgötu í Borgarnesi en er tíma-
bundið búsettur í Hlíðartúni á með-
an frúin fær nýtt eldhús.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og
ef já hverju helst?
Já, ég hef ákveðnar áhyggjur og þá
sérstaklega af þeim sem eru veik-
ir fyrir og í áhættuhópum. Ég á nú
að flokkast sem slíkur en hef meiri
áhyggjur af öðrum í nærumhverf-
inu. Einnig mun þetta hafa miklar
efnahagslegar afleiðingar og hefur
þegar gert.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Fer ekki jafn víða og hef minnk-
að höfuðborgarferðirnar mikið.
Eins frestað öllu læknastússi utan
Borgarness. Átti að fara í lok apríl
til Stokkhólms en þar í landi hefur
heilbrigðiskerfið skellt í lás og frest-
að öllu. Ætla að einbeita sér að eig-
in þegnum á meðan kúrfan fer yfir.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Þar sem ég vinn í hlutastarfi hjá
fjölskyldufyrirtækinu þá höfum við
stigið skrefið svolítið aftur á bak.
Erum öll í áhættuhópi og hver þarf
þá að geta stigið inn í næsta starf ef
einhver veikist. Í sjálboðastarfinu á
Samgöngusafninu er nánast algjör
lömun en við höfðum tekið ákvörð-
un um að loka rétt fyrir samgöngu-
bann.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Í rauninni strax og fréttir byrjuðu
að berast en alvarleikinn varð raun-
verulegri því nær sem veikin nálg-
aðist. Þegar fyrstu smit voru að
greinast í Borgarnesi þá kannski
fyrst fór maður að breyta út af dag-
legum venjum. Sennilega vaknar al-
varleikinn ekki fyrr en vinir og fjöl-
skylda fá greiningu, þá opnast aug-
un upp á gátt.
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Við megum ekki glata húmornum
þó svo ástandið sé alvarlegt. Gleði
og glens er það sem kemur okkur í
gegnum svona ástand heil á geðs-
munum. Húmor er sáluhjálp. Við
þurfum að huga að fólkinu okk-
ar og líta til með þeim sem verða
utan gátta.
Hvernig finnst þér stjórnvöld vera
að bregðast við?
Mér fannst stjórnvöld bregðast
of seint við og ekki með nægilega
kröftugum hætti. Stjórnvöld þurfa
að standa vel að baki þeim sem
standa vaktina í samfélaginu. Ef við
horfum að heimilunum þá finnst
mér efnahagsaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar vega lítið og aðgerðapakk-
inn fyrir fyrirtækin virðist sniðinn
að stærri fyrirtækjum og vandséð
hvernig efnahagslífið mun bragg-
ast að veirunni lokinni.
Hefur samkomubann áhrif á þig?
Það helsta er lokun Samgöngu-
safnsins í Brákarey og sú ákvörð-
un okkar í Fornbílafjelaginu og
Röftum að aflýsa árlegri vorsýn-
ingu okkar í Brákarey. Við höld-
um þó í vonina að geta gert eitt-
hvað smærra í sniðum ef aðstæð-
ur leyfa.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Finnst ég vera alltaf í búðinni þó
ferðum hafi fækkað til muna. Hver
búðaferð verður að athöfn með
bláum hönskum, vel sprittuðum.
Annars er mjög gætt að viðskipta-
vinum og starfsfólki í Bónus versl-
uninni okkar og talið inn. Eins höf-
um við verslað á netinu hjá Nettó og
er sú þjónusta þeim til sóma.
Hvað munum við Íslendingar læra
af þessum heimsfaraldri?
Ekkert. En netverslun mun aukast
til muna. Jú, jú að sjálfsögðu mun
lærdómur standa eftir. Við munum
læra að meta fólkið okkar betur, þá
sem hafa þurft að loka sig frá okk-
ur en að sama skapi hefur eldri kyn-
slóðin lært að nota tæknina til sam-
skipta við þá yngri og vonandi eykur
það tengslin til frambúðar.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Íslendingar verða alltaf bjartsýnni
með hækkandi sól og ég efast stór-
lega um að einhver veira muni lifa af
sumarjákvæðni Íslendinga.
Kanntu góðan Covid brandara?
Þessi sóttkví er ekki að virka. Ég og
konan erum að verða vinir. Ég sagði
henni næstum því frá kærustunni!
Hver er maðurinn?
Svanur H. Guðmundsson. Er lög-
gilt gamalmenni, fjárbónd, rækta
og tem fjárhunda. Bý á Dalsmynni
í Eyja- og Miklaholtshreppi.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og
ef já hverju helst?
Hef áhyggjur af þeim sem veikjast
illa ásamt þeim sem fara fjárhags-
lega illa á þessu.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Er óvanalega hreinn um hendurn-
ar.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Nei.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Fyrir svona þremur vikum.
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Samheldni og góða skapið. Og
náttúrulega fara eftir leiðbeining-
um.
Hvernig finnst þér stjórnvöld
vera að bregðast við?
Mjög vel.
Hefur samkomubann áhrif á
þig?
Nei. Er einfari í grunninn.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Fækka innkaupaferðum og tek dag-
inn snemma.
Hvað munum við Íslendingar
læra af þessum heimsfaraldri?
Heilmargt sem við höfum gott
af. En trúlega ekki að halda sig
heima!
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Held að toppnum verði náð inn-
an tveggja til þriggja vikna. Svo er
það spurning hvað eftirhreyturnar
ná inn í sumarið.
„Hér var ég stödd á Spáni.“
„Hugsanlega verður
samkennd með náunganum
eitthvað meiri“
„Samheldni og góða skapið gildir“
Svanur að þjálfa fjárhundana.
„Efast stórlega um að einhver veira muni lifa af
sumarjákvæðni Íslendinga“
Guðmundur Skúli Halldórsson.