Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 20208 Fyrstu rafrænu samningarnir LANDIÐ: Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa náð samkomu- lagi um nýjan kjarasamning og var hann undirritaður með raf- rænum hætti á milli aðila. „Þetta eru fyrstu samningaviðræðurnar sem hafa allar farið fram í gegn- um netið og eru kláraðar með rafrænum hætti,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samn- inganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þegar Magnús Smári Smárason, formaður LSS, var spurður út í þetta fyrirkomu- lag við samningsgerðina svaraði hann: „Þetta er nútíminn í anda Covit og mun breyta samskiptum manna til framtíðar og því mikil- vægt að aðlaga okkur að breyttu samfélagi.“ Báðir samningsaðilar voru sammála um að samninga- viðræður hefðu gengið vel þrátt fyrir þessa annmarka að geta ekki hist augliti til auglitis. -mm Allir eiga að hlýða Víði LANDIÐ: „Við höfum fengið vísbendingar um að íþróttafólk félaga sé að stunda íþróttaæfing- ar úti í litlum hópum þrátt fyr- ir strangt samkomubann. Það er ekki til fyrirmyndar. Ég hreinlega undrast að fólk haldi að bannið eigi við um aðra, en ekki það sjálft. Við leggjum áherslu við stjórn- endur í íþróttahreyfingunni að allt íþróttastarf eigi að fella niður, bæði barna og fullorðinna, bolta- íþróttir, hestaíþróttir, dans og aðr- ar greinar,“ segir Auður Inga Þor- steinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ í tilkynningu. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 21.-27. mars Tölur (í kílóum) frá Fiski- stofu Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 3.662 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 2.470 kg í einum róðri. Arnarstapi: Engar landanir á tímabilinu. Grundarfjörður: 7 bátar. Heildarlöndun: 370.205 kg. Mestur afli: Hafborg EA: 110.574 kg í sjö róðrum. Ólafsvík: 18 bátar. Heildarlöndun: 641.970 kg. Mestur afli: Bárður SH: 226.198 kg í sjö löndunum. Rif: 12 bátar. Heildarlöndun: 395.864 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 109.164 kg í tveimur róðrum. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 72.081 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 64.244 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Sigurborg SH - GRU: 83.168 kg. 21. mars. 2. Runólfur SH - GRU: 70.412 kg. 23. mars. 3. Þórsnes SH - STY: 64.244 kg. 22. mars. 4. Tjaldur SH - RIF: 63.648 kg. 22. mars. 5. Tjaldur SH - RIF: 45.516 kg. 27. mars. -kgk Skorið á dekk AKRANES: Haft var sam- band við lögreglu laust eftir ellefu á miðvikudagsmorg- un og tilkynnt um skemmd- ir á hjólbörðum á bifreið á Akranesi. Eigandi kvaðst hafa komið að bíl sínum þá um morguninn og tekið eft- ir því að búið væri að skera á og eyðileggja afturhjólbarða bifreiðarinnar. Kvaðst hann hafa mann grunaðan um at- hæfið. Málið er til rannsókn- ar hjá lögreglu. -kgk Bakkað í skurð BORGARBYGGÐ: Bíl var bakkað ofan í skurð við Sól- bakka í Borgarnesi á mið- vikudaginn. Ökumaður var að bakka og ætlaði að snúa við þegar hann bakkaði ofan í skurð þar sem bíllinn fest- ist. Nokkur ungmenni voru í bílnum, sem kváðust ætla að sjá um það sjálf að koma bílnum upp úr skurðinum. Enginn meiddist og bifreið- in skemmdist ekki. -kgk Stungið af frá tjóni GRUNDARFJ: Ekið var á bíl fyrir utan Kaffi 59 í Grundarfirði. Ökumaður lagði bíl sínum þar í bíla- stæði og tók ekki eftir því þegar tjónið varð. Ákveðinn maður er grunaður um að hafa valdið tjóninu en málið er í rannsókn lögreglu. -kgk Skothvellur DALABYGGÐ: Haft var samband við lögreglu skömmu eftir miðnætti sunnudaginn 29. mars. Til- kynnandi kvaðst hafa heyrt skothvell í Haukadal. Sagð- ist hann hafa séð tvo menn á jeppa aka upp í land fyr- ir ofan hús annars staðar í dalnum og síðan skothvell. Viðkomandi kannaðist ekki við bílinn og náði ekki núm- erunum. Taldi hann líklegast að þarna hefðu verið refa- skyttur á ferðinni og ætl- aði að hafa samband við lög- reglu ef mennirnir birtust aftur. Málið er í rannsókn. -kgk Umferðarmál VESTURLAND: Tilkynnt var um rásandi ökulag bif- reiðar að morgni laugardags. Lögregla stöðvaði ökumann- inn við Hvalfjarðargöng og athugaði með ástand hans, sem reyndist vera í góðu lagi. Bíll varð rafmangslaus í göngunum á sunnudag. Ökumaður náði að komast í útskot en varð síðan að að- stoða hann við að koma bíln- um upp úr göngunum. Einn var stöðvaður fyrir að tala í símann undir stýri í Borgar- firði í liðinni viku og sektað- ur um 40 þúsund krónur fyr- ir athæfið. Bílabíó, sem hald- ið var í Borgarnesi á mánu- dagskvöld, fór vel fram. -kgk Atvinnuleysi í landinu var 5% í febrúar á þessu ári samkvæmt mæl- ingum Hagstofunnar. Fjöldi at- vinnulausra var þá um 10.300 sam- kvæmt árstíðaleiðréttum tölum. Vinnumálastofnun áætlar að at- vinnuleysi aukist í 10-11% nú í apríl og maí, bæði vegna fjölgun- ar almennra umsókna um atvinnu- leysisbætur, en fyrst og fremst þó vegna fjölda þeirra sem eru að sækja um vegna minnkaðs starfs- hlutfalls. Áætlað er að um 19.000 manns muni sækja um greiðslur vegna minnkaðs starfshlutfalls, en líklegt nú að sú tala verði hærri. „Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi lækki nokkuð skart aftur yfir sum- armánuðina og verði milli 6 og 7% í september. Því er spáð að meðal- atvinnuleysi ársins 2020 verði um 7,4%, en óvissumörk á þeirri tölu eru eðlilega mikil,“ segir í frétt Vinnumálastofnunar. „Gangi þess- ar spár eftir verður atvinnuleysi í apríl og maí það mesta sem sést hefur í einstökum mánuðum frá því farið var að halda skipulega utan um atvinnuleysisskráningu um 1980. Hins vegar er gert ráð fyrir að þetta verði fremur tímabundið ástand og að atvinnuleysi muni lækka nokkuð hratt á komandi misserum.“ mm Landvernd hefur kært fram- kvæmdaleyfi sem Reykhólahrepp- ur veitti Vegagerðinni til vegalagn- ingar eftir svokallaðri Þ-H leið, sem m.a. liggur um Teigsskóg. Tel- ur stjórn Landverndar að fram- kvæmdaleyfið brjóti í bága við bæði skipulagslög og náttúruverndarlög. Auk þess telja samtökin að stjórn- arskrárákvæði um sjálfstæði sveit- arfélaga hafi ekki verið virt og að Vegagerðin hafi beitt sveitarstjórn þvingunum til að fá Þ-H leiðina samþykkta. „Það er því óhjákvæmilegt að Landvernd sem umhverfisvernd- arsamtök krefjist stöðvunar fram- kvæmda og ógildingu fram- kvæmdaleyfis vegna form- og efnis- annmarka. Stjórn Landverndar tel- ur að lagfæringar á vegum í Reyk- hólahreppi séu nauðsynlegar. Hins vegar hefur ekki verið sýnt fram á brýna nauðsyn þess að velja Þ-H leiðina, Teigsskógarleið, umfram aðrar leiðir sem hafa verið metnar,“ segir í tilkynningu Landverndar. Landvernd minnir á að Teigs- skógur sé stærsta samfellda skóg- lendi Vestfjarðakjálkans, óslitinn frá fjöru og upp í hlíðar. Myndi hann einstakt samspil með leir- um og grunnsævi. Báðar vistgerð- irnar, birkiskógurinn og leirurn- ar, njóta verndar samkvæmt nátt- úruverndarlögum. Svæðið í heild er auk þess verndað með sérlög- um um verndun Breiðafjarðar og áhrifasvæði framkvæmdanna eru á náttúruminjaskrá. Með því að veita framkvæmdaleyfi hafi sveitarstjórn Reykhólahrepps brotið gegn nátt- úruverndarlögum, þar sem ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauð- syn þess að raska skóginum og leir- unum til að bæta samgöngur. Aðrar leiðir hafi verið metnar, sem hefðu haft minni umhverfisáhrif í för með sér. Hefðu þær verið betri kostur að mati samtakanna. Stjórn Land- verndar telur því að sveitarstjórn og Vegagerðin hafi ekki farið eft- ir niðurstöðu valkostamats. „Fjár- hagslegir hagsmunir einir virðast hafa ráðið leiðarvali. Slíkt er ekki réttlætanlegt. Umhverfismat væri í raun óþarft ef eingöngu þyrfti að horfa til kostnaðar við ákvörðun um val á vegstæði.“ Að lokum telur stjórn samtak- anna að í ákvörðunarferlinu hafi verið brotið gegn ákvæði stjórnar- skrár um sjálfstæði sveitarfélaga og farið hafi verið gegn skipulags- lögum. „Eins og fram kemur í bók- unum sveitarstjórnarfulltrúa Reyk- hólahrepps beitti Vegagerðin sveit- arstjórnina þvingunum til þess að fá Þ-H leið, Teigsskógarleið, sam- þykkta.“ kgk/ Ljósm. Landvernd. Fyrsti bátur lagði af stað í netarall Hafrannsóknastofnunar miðviku- daginn 25. mars. Í framhaldinu fara svo aðrir bátar á rallið. Netarallið stendur fram í síðari hluta apríl- mánaðar og taka fimm bátar þátt í því; Magnús SH í Breiðafirði, Sax- hamar SH í Faxaflóa, Friðrik Sig- urðsson ÁR frá Reykjanesi að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvíting- um og Geir ÞH fyrir Norðurlandi. Um 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift inn- an svæða á helstu hrygningarslóð- ir þorsks. Á hverju svæði er helm- ingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta, svokallaðar fastar stöðv- ar, en hinn helmingurinn er lausar stöðvar sem skipstjórar ákveða hvar skulu lagðar. „Markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um lengdar- og þyngdasamsetningu, kynþroska og vöxt eftir aldri á helstu hrygningar- svæðum þorsks. Einnig til að meta árlegt magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðv- um og meta breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum,“ segir í tilkynningu frá Hafró. mm/ Ljósm. Valur Bogason. Atvinnuleysi mun aukast mikið í apríl og maí Netarallið hófst í síðustu viku Kæra framkvæmdaleyfi Vestfjarðavegar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.