Skessuhorn - 01.04.2020, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 2020 15
Borg útfararþjónusta er nýstofn-
að þjónustufyrirtæki sem er í eigu
Grétu Björgvinsdóttur og Guð-
nýjar Bjarnadóttur í Borgarnesi.
Fyrsta útförin í umsjón þeirra fór
fram í liðinni viku. Skessuhorn fékk
að forvitnast nánar um Borg útfar-
arþjónustu og heyrði hugmynd-
ir þeirra Grétu og Guðnýjar um
starfsemina. ,,Fátt er tilviljun í líf-
inu og margt virðist vera skrifað í
handrit. Við stöllurnar þekktumst
ekkert þegar við fluttum í Borgar-
nes með þriggja mánaða millibili
í kringum áramótin 2017 - 2018.
Rúmum tveimur árum síðar rekum
við saman nýstofnaða útfararþjón-
ustu,“ segja þær Gréta og Guðný
aðspurðar um aðdragandann að
stofnun fyrirtækisins. Þær segjast
ætla að leggja áherslu á að þjóna
öllu Vesturlandi og að útfararstofu-
leyfið sé ekki bundið við eitt svæði
frekar en annað. Engu að síður vilja
þær þjóna hverjum sem vill nýta
þjónustu óháð staðsetningu.
Dúfan er merkið
Guðný og Gréta segja að Borg út-
fararþjónusta muni leggja áherslu á
persónulega þjónustu með virðingu
og fagmennsku í fyrirrúmi. Samfé-
lagið sé sífellt að verða flóknara,
fjölmenning að aukast og mikilvægt
sé að virða ólíkar þarfir og skoðanir
fólks. „Við ætlum að leggja áherslu
á að Borg útfararþjónusta veiti
upplýsingar um útfararkostnað svo
hann sé þekktur áður en til útfar-
ar kemur og rík áhersla verður lögð
á að þjónustan taki mið af aðstæð-
um fólks á sorgartíma. Við leggjum
einnig áherslu á gott samstarf við
aðra aðila sem koma að þjónustu í
tengslum við andlát og útför,“ seg-
ir Gréta. Hún bætir við að merki
fyrirtækisins, dúfan, sé samnefnari
fyrir þær áherslur sem Borg hafi í
þjónustu sinni. „Við völdum dúfuna
hans Nóa sem sagt er frá í fyrstu
Mósebók,“ segir Guðný. „Dúfuna
sem sveif yfir ólgandi ringulreið
hafsins og færði Nóa von í formi
trjágreinar, sem sýndi að það var
land og gróður framundan. Þann-
ig viljum við skapa fólki von um að
það sé land framundan og að í sorg-
inni megi rækta það nýja land sem
birtist eftir lát ástvina,“ segja þær
Guðný og Gréta.
Þegar byrjaðar
,,Ég hafði kynnt mér rekstur útfar-
arþjónustu þegar ég flutti í Borgar-
nes en taldi ekki tímabært að fara
lengra með það verkefni á þeim
tíma. Gréta starfaði sumarið eftir
að hún flutti með þeim aðila sem
hér hefur rekið útfararþjónustu.
Við stöllurnar höfum ólíkan bak-
grunn og teljum það jákvætt þegar
kemur að því að þjóna fólki við erf-
iðar aðstæður,“ segur Guðný. „Það
var svo sameiginleg vinkona sem
kynnti okkur og niðurstaðan var
að við hófum í haust undirbúning
að stofnun útfararþjónustu og áætl-
uðum að hefja þjónustu í byrjun
apríl. Við fengum starfsleyfi í mars
og erum komnar með það sem til
þarf fyrir þjónustuna,“ segir Guðný
og bætir við að þær hafi þegar haf-
ið störf en apríl var ekki genginn í
garð þegar rætt var við þær.
Bakgrunnurinn hjálpar
Guðný er ættuð frá Kjalvararstöð-
um í Reykholtsdal og er hjúkrun-
arfræðingur, ljósmóðir og djákni.
Hún hefur starfað víða í heilbrigð-
iskerfinu allt frá 1972, lengst bjó
hún í fjóra áratugi í Vestmanna-
eyjum. Hún var vígð sem djákni til
Ofanleitissóknar í Vestmannaeyj-
um 2008.
Gréta bjó á Álftanesi ásamt fjöl-
skyldu sinni í þrjátíu ár áður en þau
hjónin fluttu í Borgarnes. Hún hef-
ur alið upp fjögur börn og er orðin
tíu barna amma. Lengst af starfaði
hún á ljósmyndastofu í eigu fjöl-
skyldunnar. Þá hefur hún unnið
við umönnunarstörf og starfað sem
sjálfboðaliði hjá RKÍ. Gréta lærði
hárgreiðslu og fleira sem snýr að
snyrtingu. Þá lagði hún stund á list-
og hönnunarnám sem lauk með út-
skrift frá keramikdeild Myndlista-
skólans í Reykjavík. Í dag rekur hún
leirverkstæðið Litlu-Ljót í Borgar-
nesi.
Aðspurðar segjast þær Guðný og
Gréta líta björtum augum til þjón-
ustu við íbúa á Vesturlandi. „Við
sjáum að það er þörf fyrir þjón-
ustu af því tagi sem við ætlum að
bjóða. Við erum komnar með það
sem til þarf og erum til þjónustu
reiðubúnar,“ segja Guðný Bjarna-
dóttir og Gréta Björgvinsdóttir að
endingu.
Að endingu má benda á heima-
síðuna borgutfor.is og á Facebook
undir Borg útfararþjónusta.
mm
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd umhverfis- og auðlindarráðuneytisins, óskar eftir
tilboðum í verkið: Þjóðgarðsmiðstöð Hellissandi - Byggingarútboð.
Verkið felst í uppbyggingu nýrrar Þjónustumiðstöðvar í Þjóðgarði Snæfellsjökuls á Hellissandi.
Bygging gestastofunnar mun hýsa fjölbreytta starfsemi þjóðgarðsins. Húsgrunnur nýbyggingar
samanstendur af tveimur megin byggingum er tengjast með miðrými. Hluti byggingar
kragar út yfir grunna, þar sem ekki má valda yfirborðsskemmdum á landi umfram það sem
óhjákvæmilegt er. Húsið er á einni hæð staðsteypt og stálvirki að hluta, klætt með lerki.
Búið er að grafa fyrir húsi, grafa og fylla í bílastæði og setja upp heildargirðingu fyrir
verksvæðið, sem var framkvæmt í sérstöku jarðvinnuútboði. Jarðvinna í þessu verki felst í
að fylla í sökkla, fylla að húsi, grafa og endurfylla í lagnaskurði undir og meðfram húsi. Um
jarðvinnu gildir að lágmarka skal allt jarðrask, þannig að yfirborð lands umhverfis mannvirkin
verði eins ósnortið og mögulegt er. Í fyrra útboði var vinnusvæðið girt af. Verktaki tekur við
þessum girðingum, sér um að viðhalda þeim til að hindra óviðkomandi umferð fari um svæðið.
Verktaki tekur á sama hátt við aksturshliði og gönguhliði og sér til þess að þau séu lokuð utan
vinnutíma. Byggingarreiturinn er á hornlóð og liggur þjóðvegur í þéttbýli, Útnesvegur, með
henni að norðanverðu. Norðan við þjóðveginn er íbúðabyggð Hellissands.
Helstu stærðir:
Brúttó flötur byggingar: 698 m²
Brúttó rúmmál: 2.400 m³,
Steinsteypa: 400 m³
Stálvirki: 24.000 kg.
Timburklæðning útveggja: 850 m²
Fyllingar: 1.200 m³
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar í hinu
rafræna útboðskerfi TendSign, laugardaginn 28. mars 2020.
Ákvæði um val á tilboði er í grein 2.7 í ÍST 30 og í 79. gr. laga um opinber innkaup.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 21163 skulu sendar rafrænt í gegnum útboðskerfið TendSign og
verða svör birt þar.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 26. apríl 2020 en svarfrestur er til og með 30. apríl 2020.
Tilboðum skal skila rafrænt í TendSign eigi síðar en kl. 12:00 þriðjudaginn 5. maí 2020.
Sjá frekari upplýsingar á vefsíðunni: www.utbodsvefur.is
21163 – Þjóðgarðsmiðstöð Hellissandi
– Byggingarútboð
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Tilkynning um breytta þjónustu á
velferðar- og mannréttindasviði
Akraneskaupstaðar
Til að auka aðgengi íbúa Akraness og Hvalfjarðarsveitar að starfsfólki
félagsþjónustu og barnaverndar á tímum COVID-19 þá viljum við upplýsa
um eftirfarandi:
Hægt er að ná í starfsmenn á símatímum eða með því að
senda tölvupóst. Símatímar starfsmanna eru í gegnum skiptiborð
Akraneskaupstaðar í síma 433-1000:
Símatímar félagsþjónustu eru: mánu- og fimmtudaga •
milli kl. 11-12. Netfangið er: velferd@akranes.is
Símatímar barnaverndar eru: þriðju- og miðvikudaga •
á milli kl. 11-12. Netfangið er: barnavernd@akranes.is
Ef um neyðartilvik er að ræða utan dagvinnutíma eða •
um helgar, er alltaf hægt að ná sambandi við starfsmann
barnaverndar á bakvakt í gegnum neyðarnúmerið 112.
Mikilvægt er að samfélagið standi saman á þessum fordæmalausum
tímum og fylgist vel með nærumhverfi sínu. Vegna einangrunar skapar
Covid-19 hættu fyrir brotaþola heimilisofbeldis og fyrir börn í erfiðum
heimilisaðstæðum. Íbúar eru hvattir til að hafa samband við félagsráð-
gjafa vakni grunur um slíkar aðstæður. Hjálpumst að við að hjálpa öðrum.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Borg útfararþjónusta er nýtt
fyrirtæki á Vesturlandi
Guðný Bjarnadóttir og Gréta Björgvinsdóttir hafa opnað Borg útfararþjónustu.