Skessuhorn - 01.04.2020, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 2020 19MIÐVIKUDAGUR 12. FEB ÚAR 20
Lífið í Covid 19
Hver er konan?
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, húsfreyja
á Litlu Grund í Reykhólahreppi
og grunnskólakennari í Reykhóla-
skóla. Aðeins 48 ára gömul, gift
fjögurra barna móðir og fjögurra
barna amma.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og
ef já hverju helst?
Nei og já. Ég hef ekki miklar
áhyggjur af sjálfri mér en viður-
kenni að ég hef áhyggjur af því að
maðurinn minn fái veikina þar sem
hann er með undirliggjandi sjúk-
dóm. Er samt frekar slök yfir þessu
öllu saman.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Ég á þrjá stráka sem búa heima, einn
þeirra er í framhaldsskóla í Reykja-
vík og hann er komin heim, hinir
tveir eru í grunnskóla. Það er meira
heimanám sem getur stundum tek-
ið á, þrátt fyrir að ég sé kennari.
Uppþvottavélin fær að vinna vinn-
una sína og er hún að lágmarki sett
í gang þrisvar á dag. Fleiri máltíðir
sem þarf að framreiða. Öll innkaup
fara öðruvísi fram og nú er gott að
búa á sauðfjárbúi og eiga nóg í kist-
unni.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Ég hef þurft að hugsa starfið mitt
upp á nýtt og notfæra mér tæknina
þar sem við kennum nemendum
að hluta í gegnum fjarnám. Ég
er heppin að kenna unglingun-
um, fyrir utan að þau eru frábær,
þá eru þau komin ótrúlega langt í
tækninni. Við höfum verið að nota
Google umhverfið í kennslu síðast-
liðin tvö ár. Þannig að við þurftum
ekki að læra eins mikið að vera í
fjarkennslu eins og svo margir hafa
þurft að gera. Einnig hefur ver-
ið mikilvægt að fara aðeins út fyr-
ir kassann og finna verkefni sem
henta öllum. Því foreldrar er mis-
jafnlega í stakk búnir að aðstoða
börnin sín í náminu.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Fyrst trúði ég ekki að þessi vírus
myndi smitast frá Kína til Íslands,
kannski fór ég að taka þessu alvar-
lega eftir að reglulegir blaðamanna-
fundir með Víði, Ölmu og Þórólfi
byrjuðu. Ég les hins vegar mikið
um Covid-19 og hef mest „gaman“
af því að lesa kommentin sem koma
á eftir, finnst ótrúlegt hvað fólk get-
ur skrifað á netinu. Kannski svolítið
skrítið áhugamál!
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Mikilvægt er að vera með sínum
nánustu og njóta augnabliksins.
Vera þakklátur fyrir það sem maður
á. Síðast en ekki síst fara eftir fyrir-
mælum Almannavarna.
Hvernig finnst þér stjórnvöld vera
að bregðast við?
Ég er mjög sátt með stjórnvöld. Al-
mannavarnanefnd hefur unnið frá-
bært starf og ekki látið undan þrýst-
ingi frá almenningi sem eru sjálf-
skipaðir „Covitar“. Stjórnvöld hafa
reynt sitt besta og ég er ánægð
með að þau eru ekki að taka fram
fyrir hendurnar á Almannavörn-
um. Stjórnvöld eru einnig að reyna
koma efnahagslífinu til hjálpar. Ég
held hins vegar að fyrirtæki þurfi að
hugsa til mögru áranna og eiga ein-
hvern sjóð í stað þess að borga eig-
endum þeirra arð upp á milljarða
og þurfa svo að treysta á ríkið þegar
minnsta mótlæti kemur upp.
Hefur samkomubann áhrif á þig?
Já og nei. Ómeðvitað hefur það
áhrif! Ég fer lítið í heimsóknir og
fáir koma til mín (vona að það sé út
af Covid). Við í unglingadeildinni
erum búin að vera í vetur að safna
fyrir Danmerkurferð sem átti að
fara í 17. apríl og við að sjálfsögðu
förum ekki. Árshátíð Reykhólaskóla
átti að verða föstudaginn 27. mars
og verður ekki. Stundum líður mér
eins og ég sé stödd í bíómynd.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Ég versla sjaldnar og meira í einu
í matvælaverslun. Mikilvægt er að
styrkja verslun í heimahéraði til
þess að tryggja að þær geti starfað
áfram. Verst er að vegna fjarkennslu
er ég meira í tölvunni og þar af leið-
andi er ákveðin hætta að freistast
til þess að versla ýmiskonar óþarfa
af netinu. Er að reyna að muna að
spyrja mig lykilspurninga áður en
ég ýti á „kaupa“. Vantar mig hlut-
inn, þarf ég hlutinn og mun ég nota
hlutinn?
Hvað munum við Íslendingar læra
af þessum heimsfaraldri?
Við komum til með að læra að vera
sjálfum okkur næg og vera þakklát
fyrir það sem við eigum. Kosturinn
er líka að Covid hefur haft gífurlega
góð áhrif á umhverfið okkar, kol-
efnisporin okkar hafa snarminnkað
og kannski munum við hugsa aðeins
áður en við framkvæmum.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Mínar björtustu vonir eru að þetta
verði búið um miðjan maí áður en
sauðburður hefst. Meðalbjarsýnin
er um miðan júní því þá ætlar dótt-
ir mín að gifta sig og svartsýnasta
spáin er í ágúst. Annars er ég eng-
inn Coviti og hef bara ekki hug-
mynd um það. Ætla bara að hlusta
og hlýða.
Kanntu góðan Covid brandara?
Ég man ekki eftir neinum sérstöku
í augnablikinu en mér finnst Covit-
arnir í kommentakerfinu oft vera
afskaplega fyndnir. En þeir eru bara
oft og tíðum ekki prenthæfir.
Hver er konan?
Sigrún Vigdis Gylfadóttir, 48 ára
deildarstjóri á leikskólanum Akra-
seli á Akranesi. Búsett í Kalastaða-
koti í Hvalfjarðarsveit.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og
ef já hverju helst?
Já, þetta er ekkert djók – er dauð-
ans alvara.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Hann hefur aðallega tvenns konar
áhrif:
- Ég er heima í hálfan mánuð að
læknisráði vegna meðfædds hjarta-
galla þannig að ég er eiginlega í
sjálfskipaðri sóttkví. Það er mjög
skrýtið að fara ekki í vinnuna en
vera samt ekki lasinn. Leikskóla-
kennarar vinna í mikilli nánd við
börnin og þó öllum reglum um litla
hópa, fjarlægð og hreinlæti sé gætt,
þá er áhættan á smiti alltaf til stað-
ar. Þannig að núna fer ég ekki í æv-
intýraferðir með börnunum heldur
fer ein í göngutúra um landareign-
ina, spjalla aðeins við hrossin (nei
þau eru ekki fleiri en 20 í þessum
hópi!) og segi þeim sjóræningja-
sögurnar sem börnin hefðu annars
fengið að heyra.
- Svo erum við hjónin í ferðaþjón-
ustu. Við leigjum út alveg einstakt
100 ára gamalt kaupfélagshús sem
fjölskyldan hans Kalla gerði upp og
er staðsett nánast í fjöruborðinu.
Afbókanir hafa hrúgast inn sem
hefur í för með sér þónokkuð tekju-
tap því apríl var fullbókaður og maí
bókanirnar eru byrjaðar að detta
út líka. Við erum einnig með sam-
komusal sem er fullbókaður í sumar
undir brúðkaup og það er spurning
hvort veiran og samkomubann nái
að hafa áhrif á það líka.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Get ekki sinnt henni eins og stað-
an er í dag.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Ég man það ekki alveg, en ég verð
að viðurkenna að ég var í hálfgerðri
afneitun til að byrja með eins og
sjálfsagt margir. Maður heyrði
um þetta í fréttunum en svo kom
samkomubannið og þá breyttist allt.
Ég var líka treg að hafa samband
við lækninn minn þegar vinnuveit-
andinn og fjölskyldan báðu mig um
það. Ég væri jú í áhættuhóp en mér
fannst ég ósnertanleg. En þegar
læknirinn segir manni að halda sig
heima þá þarf að taka hlutina alvar-
lega og hlýða (enda vel uppalinn að
eigin sögn).
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að ALLIR beri ábyrgð, við erum í
þessu saman. Það hefur ENGINN
rétt á því að „taka sénsa“, það gæti
kostað uppáhalds frænda vinar þíns
lífið – eða þig!¨
Hvernig finnst þér stjórnvöld vera
að bregðast við?
Mjög vel, ber fullt traust til þeirra
sem og bæjarstjórn- og bæjar-
stjóra.
Hefur samkomubann áhrif á þig?
Ekki núna, en það gerði það fyrstu
vikuna eftur að það var sett á. Þá
var ég í vinnunni og ég gleymi
þeirri viku seint. Það var eins og
sprengju hefði verið kastað inn í
daglegt líf okkar, það þurfti bók-
staflega að endurskoða og endur-
skipuleggja allt. Enginn kunni á
þetta „ástand“ en allir gerðu sitt
allra besta. Hrós á skólastjórnend-
ur. Eins ef samkomu bannið verður
framlengt þá getur það haft áhrif á
brúðkaupsveislur sumarsins.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Börnin mín, Svandís og Gylfi, hafa
séð um það. Hef ekkert verslað á
netinu.
Hvað munum við Íslendingar
læra af þessum heimsfaraldri?
Samheldni og að meta hvort ann-
að og lífið.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Veit það ekki, en vona að það verði
komið jafnvægi aftur á lífið/heim-
inn í lok apríl, (hef alltaf verið
bjartsýnismanneskja).
Kanntu góðan Covid brandara?
Nei, því miður. En ég get sagt frá
því að uppáhalds mamman mín
fékk hryssu í sjötugsafmælisgjöf frá
Magga Magg - og Guðbjörgu kon-
unni hans. Hryssan heitir Kóróna.
Hún er bæði falleg og lætur vel að
stjórn ólíkt hinni kórónunni.
„Mikilvægt að vera þakklátur fyrir það sem maður á“
Ásta Sjöfn ásamt Kristjáni Steini syni sínum. Reykhólar í baksýn.
„Allir verða að bera ábyrgð - við erum í þessu saman“
Sigrún Vigdís er nú í sjálfskipaðri sóttkví í sveitinni sinni. Hér með barnabarninu
Leu Rún að heilsa upp á hestana.