Mosfellingur - 08.10.2020, Page 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
Smit í Helgafellsskóla
- allt lokað í viku
Síðasliðinn laugardag fengu allir for-
eldrar í Helgafellsskóla tölvupóst þess
efnis að öllum börnum og starfsfólki
skólans væri skylt að sæta sóttkví í
sjö daga frá og með 1. október. Segir
í póstinum að starfsmaður skólans
hafi greinst með Covid-19 veiruna
og að krafan um sóttkví fyrir þennan
hóp kæmi frá smitrakningarteymi
almannavarna og sóttlækni. Skólinn
verður lokaður í viku en nemendur
og starfsfólk skólans fara í sýnatöku
á sjöunda degi sóttkvíar. Þá kom
upp nýtt smit meðal starfsmanna í
leikskólanum Huldubergi í vikunni.
Einungis þurftu þrír starfsmenn þar
að fara í sóttkví og sjö börn.
- Bæjarblað allra Mosfellinga4
sunnudagur 11. október
Guðsþjónusta kl. 11 í Lágafellskirkju.
Sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson.
sunnudagur 18. október
Guðsþjónusta kl. 20 í Lágafellskirkju.
Sr. Arndís Linn.
sunnudagur 25. október
Guðsþjónusta kl. 11 í Mosfellskirkju.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
kórskóli lágafellskirkju
– æfingar hefjast mánudaginn 12. október:
Ungdómskór fyrir 10 – 14 ára, kóræfingar á mánudögum kl. 15 – 16.15. Barnakór fyrir 7 – 9 ára,
kóræfingar á mánudögum kl. 16.30 – 17.30. Æfingar verða í safnaðarheimili Lágafellssóknar,
Þverholti 3. Nánari upplýsingar og skráning er inn á lagafellskirkja.is. Kórstjóri er Þórdís Sævars-
dóttir, söngkona og tónmenntakennari og Þórður Sigurðsson, organisti sér um undirleik.
sunnudagaskóli
kl. 13 í lágafellskirkju alla sunnudaga.
Söngur, brúðuleikrit, Biblíusaga og krakkar fá fjársjóðskistu og miða með sér heim.
*Verð miðað við gengi USD 132, svartur Compass, hvítur Renegade.
Jeep heldur áfram að vera tákn frelsis og ævintýra. Nú kynnum við nýja plug-in-hybrid jeppa,
sem við bjóðum á frábæru forsöluverði.
Hlaðnir búnaði með alvöru fjórhjóladrifi (lágu drifi), bakkmyndavél, rafdrifnum leðursætum
(Compass), rafdrifnum afturhlera (Compass), lykillausu aðgengi og ræsingu, hita í stýri og
framsætum, 8,4” skjá og leiðsögukerfi, blindhornsvörn og bílastæðaaðstoð.
Skoðaðu rekstrarhagkvæma tvinn-jeppa, rafmagns og bensín, á forsöluverði á jeep.is
PLUG-IN-HYBRIDJEEP RENEGADE TRAILHAWK �X�
5.499.000*
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • JEEP.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
ALVÖRU JEPPAR ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP COMPASS LIMITED �X�
5.999.000*
PLUG-IN-HYBRID
Lorem ipsum
FORSALA Á NÝJUM PLUG�IN HYBRID
JEEP RENEGADE OG COMPASS
ÓTRÚLEGT FORSÖLUVERÐ Á BÍLUM HLÖÐNUM LÚXUSBÚNAÐI
ÖNNUR SENDING VÆNTANLEG Í NÓVEMBER
FYRSTA SENDING UPPSELD!
GOÐSÖGN KNÚIN RAFORKU
Byggingafélagið Bakki hefur byggt tólf
tveggja herbergja íbúðir við Þverholt 21
sem Fasteignasala Mosfellsbæjar auglýsti
til sölu í síðstu viku.
Til sölu voru 12 fullbúnar 41-45 m2,
tveggja herbergja íbúðir. Auglýst söluverð
íbúðanna vakti mikla athygli, enda var
ásett verð 25,9 – 28,5 milljónir, sem er lang
lægsta verð sem sést hefur á nýbyggðum
íbúðum í langan tíma.
lokað fyrir kauptilboð á degi tvö
Svo mikil var eftirspurnin eftir þessum
íbúðum að á fyrstu tveimur dögunum
komum 80 hópar af áhugasömum aðilum
að skoða íbúðirnar og í hádeginu á degi tvö
var ákveðið að loka fyrir frekari kauptilboð í
eignirnar, en þá voru komin 48 kauptilboð
í 12 íbúðir.
„Við áttum alveg von
á því að þessar íbúðir
myndu vekja athygli,
sérstaklega þar sem
verðið var afskaplega
hagstætt,“ segir Einar
Páll Kjærnested hjá
Byggingafélaginu Bakka
og bætir við að þessi
mikli áhugi hafi komið
þeim í opna skjöldu.
„Það sem var sérstaklega ánægjulegt var
hversu mörg tilboð komu frá ungu fólki sem
vildi kaupa sér sína fyrstu íbúð. Stór hluti
var einmitt innfæddir ungir Mosfellingar.
Það hefði verið óskandi að fá tækifæri til
að selja hinar 12 íbúðirnar í næstu blokk
líka en því miður var ekki áhugi fyrir því í
bæjarpólitíkinni. Þær íbúðir skulu leigðar
út. Það er sorglegt þegar maður sér að pól-
itíkin kemur í veg fyrir að góðar hugmyndir
verði að veruleika.“
nýr áfangi hafinn í Helgafellshverfi
Í byrjun október lýkur Byggingafélagið
Bakki byggingaframkvæmdum sínum á
miðbæjarsvæðinu við Þverholt 21-31 og
nýr kafli er hafinn við uppbyggingu áfanga
IV í Helgafellshverfinu.
Þar eru nú risin fyrstu tvö fimm íbúða
fjölbýlishúsin við Liljugötu 1 og 3, þetta eru
sambærileg hús og Byggingafélagið Bakki
byggði við Snæfríðargötu 1-9.
„Við reiknum með að sala á þessum hús-
um hefjist öðru hvoru megin við áramótin
og afhending verði á fyrstu íbúðunum í
áfanga IV næsta sumar. Í næstu viku hefjum
við svo uppbyggingu á tveimur átta íbúða
fjölbýlishúsum við Liljugötu 5 og 7, en þar
verðum við með 50 m2 tveggja herbergja
íbúðir og 70 m2 þriggja herbergja íbúðir.
uppbygging næstu 5-7 ár
Í áfanga fjögur í Helgafelli er áætlað að
byggðar verði 188 íbúðareiningar í litlum
fjölbýlishúsum, en einnig munum við
byggja þarna raðhús og einbýlishús.
Verkefnið í Helgafelli verður 5-7 ár í
uppbyggingu, en Byggingafélagið Bakki
sér einnig um gatnagerð og allan frágang á
opnum svæðum í áfanganum.
Einar Páll
Kjærnested
Litlar og hagstæðar íbúðir Bakka í Þverholti ruku út • 48 kauptilboð á tveimur dögum
Áhuginn kom okkur í opna skjöldu
fullbúnar íbúðir við þverholt 21
Allt tiltækt lið slökkviliðsins kallað á vettvang • Eldur kviknaði í Matfugli að Völuteigi 2
komu í veg fyrir stórtjón
Betur fór en á horfðist í aðalstarfstöð Matfugls að Völuteigi 2 þann
28. september. Eldur kviknaði í stórum ofni þar sem mikil fitusöfn-
un er og var því töluverð hætta á ferðum. Allt tiltækt lið slökkvi-
liðsins var kallað á vettvang og greiðlega tókst að ráða niðurlögum
eldsins.
Á annað hundrað manns starfa hjá Matfugli og vel gekk að rýma
húsið þegar eldsins varð vart. Mikill viðbúnaður var á staðnum
enda vinnustaðurinn fjölmennur og mikill eldsmatur á vettvangi.
Matfugl sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á kjúklingaafurðum og
hefur starfað í Mosfellsbæ frá árinu 2003.
mikill viðbúnaður í völuteig slökkviliðið til taks
Starfsemi Mosfellsbæ-
jar og órofinn rekstur
Áhrif heimsfaraldurs vegna Covid-
19 snertir okkur öll. Hjá Mosfellsbæ
starfa um 800 einstaklingar og rúm-
lega 12.000 íbúar njóta nærþjónustu
skóla, íþróttamiðstöðva, leikskóla,
búsetukjarna og bæjarskrifstofa.
Neyðarstjórn Mosfellsbæjar hefur
fundað vikulega frá því að seinni
bylgjan hófst í ágúst en mestu skiptir
að starfsemi sem
tengist viðkvæm-
um hópum
haldist órofin.
„Viðbúnaðarstig
almannavarna
hefur að nýju verið
sett á neyðarstig og
við tekið verkefni
hjá Mosfellsbæ sem miða að því að
tryggja órofinn rekstur bæjarins.
Leiðbeiningar almannavarna um
daglega starfsemi sveitarfélaga eru
ólíkar eftir starfssviðum sveitarfélaga
en beinast fyrst og fremst að því að
tryggja farsæla framkvæmd verkefna
á grunni tilmæla sóttvarnaryfirvalda.
Allar miða leiðbeiningarnar að því
að tryggja órofna starfsemi og til
staðar er heimild í lögum til að fela
starfsmönnum að gegna störfum
á öðrum starfsstöðvum en þeirra
eigin ef nauðsyn krefur í því skyni að
halda uppi nauðsynlegri starfsemi.
„Við hjá Mosfellsbæ fylgjum þessum
tilmælum út í ystu æsar og sem fyrr
er mikilvægt að starfsmenn og íbúar
vinni sem einn maður að því að láta
starfsemina ganga upp, muna að
við gegnum öll mikilvægu hlutverki,
hlusta á hvert annað og leitast við að
skilja þennan breytta veruleika í þeirri
vissu að öll él birti upp um síðir“ segir
Haraldur að lokum.