Mosfellingur - 08.10.2020, Page 7
á samvinnu margra fagaðila, sjúklings og
hans nánustu. Beitt er sálfræðilegum, lík-
amlegum og félagslegum aðferðum með
það að markmiði að uppræta, minnka eða
bæta fyrir skerðingu í færni og virkni sem
sjúkdómur eða slys hafa valdið.
Endurhæfing er teymisvinna sem er
einstaklingsmiðuð fyrir hvern sjúkling.
Tekið er mið af getu hans og færni sem og
persónulegum þáttum eins og menntun,
fjölskyldu, búsetu, kyni, vinnu og fleira
allt eftir því hvað er verið að vinna með.
Mikil áhersla er lögð á fræðslu og þátttöku
sjúklings. Lögð er áhersla á grunnþætti
heilbrigðs lífs svo sem heilsusamlegt
mataræði, reykleysi, hæfilega hreyfingu og
góðan svefn.
Markmið endurhæfingarinnar er að bæta
líðan og lífsgæði sjúklings og getu hans til
að nýta sér ýmis bjargráð sem honum eru
kennd.
Vettvangur þverfaglegrar samvinnu
Í upphafi voru aðeins læknar og hjúkr-
unarfræðingar starfandi á Reykjalundi. En
fagfólki hefur fjölgað jafnt og þétt í gegnum
árin. Meðal helstu fagstétta sem koma að
beinni meðferð sjúklinga á Reykjalundi eru
félagsráðgjafar, heilsuþjálfarar, hjúkrunar-
fræðingar, sjúkraliðar, iðjuþjálfar, læknar,
næringarfræðingar, sálfræðingar, sjúkra-
þjálfarar og talmeinafræðingar.
Saman unnið að betri líðan
Hjartað í starfsemi Reykjalundar er teym-
isvinna fjölbreytts hóps sérhæfðs heilbrigð-
isstarfsfólks sem mynda meðferðarteymi.
Í meðferðarteymunum er sett upp ein-
staklingsmiðað endurhæfingarprógramm
fyrir hvern og einn sjúkling sem miðar að
því að bæta líkamlega getu og andlega og
félagslega líðan. Misjafnt er hvernig endur-
hæfingu hver og einn þarf á að halda og því
skiptir miklu máli að heilbrigðisstarfsfólk
með ólíka sérfræðiþekkingu vinni saman
að bættri líðan. Markmið teymisvinnu er
að veita þverfaglega, heildræna meðferð
byggða á gagnreyndri þekkingu. Áhersla
er lögð á samtalsmeðferð, einstaklings- og
hópmeðferð, fjölbreytta hreyfingu, nám-
skeið og fræðslu.
Fyrsta flokks aðstaða á Reykjalundi
Á Reykjalundi er fyrsta flokks aðstaða til
endurhæfingar á öllum sviðum. Markmiðið
er að hafa heimilislegt, vinalegt og þægi-
legt umhverfi svo öllum líði sem best. Á
Reykjalundi er æfingatækjasalur, fullbúinn
íþróttasalur, meðferðarstofur, vinnustofur,
smíðaverkstæði, rými fyrir alls kyns hand-
mennt, æfingaeldhús, fræðsluherbergi,
slökunarsalur, hvíldarherbergi, setustofur,
starfsendurhæfingar vinnustaður og tvær
sundlaugar svo eitthvað sé nefnt. Á Reykja-
lundi eru tiltæk hvers kyns hjálpartæki til
að aðstoða fólk með mismunandi líkamlega
færni við daglega iðju.
Hollvinasamtök Reykjalundar
Hollvinasamtök Reykjalundar voru
stofnuð árið 2013. Tilgangur samtakanna
er að styðja við þá endurhæfingarstarfsemi
sem fram fer á Reykjalundi í samráði við
stjórnendur Reykjalundar.
Fyrrum sjúklingar Reykjalundar og aðrir
velunnarar stóðu að stofnun samtakanna
og hafa þau gefið Reykjalundi gjafir fyrir
rúmar 60 milljónir. Allir eru velkomnir
í Hollvinasamtökin. Skráning fer fram á
heimasíðu Reykjalundar.
Heilbrigðisþjónusta hornsteinninn
„Þrátt fyrir að flestir telji heilbrigðisþjón-
ustu vera einn af hornsteinum samfélags-
ins, er ljóst að fjármunir í heilbrigðismál
eru og munu verða takmarkaðir. Vegna
þessa er mjög mikilvægt að nota þessa
fjármuni með eins markvissum hætti og
mögulegt er með það að leiðarljósi að há-
marka þjónustu og gæði.
Mín skoðun er sú að endurhæfing og
forvarnir séu vannýttur þáttur í því sam-
bandi og við getum gert töluvert betur. Með
fjölgun þjóðarinnar og vaxandi meðalaldri
er nauðsynlegt að skoða og tileinka sér
aukna þjónustu og nýja möguleika,“ segir
Pétur Magnússon forstjóri Reykjalundar.
„Það eru mörg tækifæri og möguleikar
í stöðunni í framtíðarsýn Reykjalundar og
ég er spenntur að fá að leggjast á árar með
starfsfólki að gera þetta að veruleika með
hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.“
Endurhæfing Covid-sjúklinga
Í upphafi faraldursins gerðu Reykja-
lundur og Landspítali samning um að
Reykjalundur myndi sinna endurhæfingu
Covid-sjúklinga af Landspítala. Það voru þá
sjúklingar sem lagst höfðu inn á spítalann
með Covid og þurftu endurhæfingu til að
geta útskrifast; komast á fætur og aftur út í
hið daglega líf. Sextán einstaklingar fóru í
gegnum þetta ferli á Reykjalundi í vor.
Í sumar og haust hefur orðið töluverð
umræða um eftirköst þeirra sem sýkst hafa
af Covid og endurhæfingu þeirra.
„Þetta er hópur fólks sem sýktist en fékk
ekki mikil einkenni, a.m.k. ekki það mikil
að þurfa að leggjast inn á spítala. Hins veg-
ar eru komnar margar beiðnir á Reykjalund
um endurhæfingu þessa hóps. Enginn veit
hvað hópurinn er stór en leitt hefur verið
að því líkum að það séu að minnsta kosti
10%.
Þó nákvæmari rannsóknir skorti ennþá
er flestum að verða ljóst að töluverður
hluti þeirra sem sýkjast og jafnvel fá ekki
mikil einkenni, geta verið að glíma við eft-
irstöðvarnar mörgum vikum eftir sýkingu,
sem lýsa sér í formi þreytu, úthaldsleysis
og öndunarfæraeinkenna svo dæmi séu
nefnd. Nú er komnir sjö í meðferð inn á
Reykjalund með þessa lýsingu og yfir fjörtíu
einstaklingar eru á biðlista,“ segir Pétur að
lokum.
Reykjalundur 75 ára - 7
umhverfi reykjalundar
er kjörið til útivistar