Mosfellingur - 08.10.2020, Blaðsíða 14
- Fréttir úr bæjarlífinu14
Fellin eru opin og aðgengileg öllum.
Nánari upplýsingar á mos.is/utivist
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Notaðu
N1 kortið
Alla leið
á öruggari
dekkjum
ALLA LEIÐ
Michelin X-ICE North 4
Besta hemlun í hálku, hvort sem dekkin
eru ný eða ekin 10.000 km
Betri aksturseiginleikar m.v.
helstu samkeppnisaðila
Hámarks grip með sérhönnuðu
mynstri fyrir hverja stærð
Einstök ending
Michelin Alpin 6
Nýr mynsturskurður sem opnast
eftir því sem dekkið slitnar
Endingargott grip út líftímann
Lagskipt gúmmíblanda sem veitir
hámarks grip
Nýtt
Michelin X-ICE Snow
Nýjasti meðlimurinn í vetrardekkjalínu Michelin
Aukið grip hvort sem í hálku, snjó eða slabbi
Endingargott grip út líftímann
Einstakir akstureiginleikar og þægindi við erfiðustu aðstæður
Allir bestu eiginleikarnir – Michelin Total Performance
Pantaðu tíma
í dekkjaskipti
á n1.is
Ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafn-
arfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes,
hafa gengið frá stofnun opinbers hlutafélags sem ber heitið Betri
samgöngur ohf. um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborg-
arsvæðinu.
Alþingi samþykkti í sumar lög um sem heimiluðu stofnun opinbers
hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæð-
inu. Nýja félagið mun hafa yfirumsjón með framkvæmdum vegna
uppbyggingar samgangna og fjármögnun þeirra samkvæmt sam-
göngusáttmálanum sem er hluti af samgönguáætlun 2020-2034.
Stytta tíma sem fer í ferðaölög innan höfuðborgarsvæðisins
„Nú er okkur ekkert að vanbúnaði við að fara á fullt í þá vegferð að
umbreyta samgöngum á höfuðborgarsvæðinu okkur öllum til heilla.
Verkefnið er vel undirbyggt og við sjáum til lands í fjármögnun þess
þrátt fyrir víðsjárverða tíma í opinberum fjármálum. Þessi vegferð
er studd af meginþorra bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ og það er mitt
mat að verkefnið varði lífsgæði bæjarbúa, sé til þess fallið að stytta
þann tíma sem fer í ferðalög innan höfuðborgarsvæðisins auk þess
að hafa jákvæð áhrif á markmið stjórnvalda í loftslagsmálum.
Allt eru þetta þættir sem falla vel að áherslum í umhverfisstefnu
Mosfellsbæjar og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálf-
bæra þróun, segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Hlutur sveitarfélaganna skiptist eftir stærð
Ríkið mun eiga stærstan hlut í félaginu, eða 75%, en sveitarfélög-
in sex ráða yfir 25% hlut sem skiptist eftir stærð þeirra. Félagið mun
einnig, með sérstökum samningi, taka við landi ríkisins að Keldum
eða öðru sambærilegu landi og þeim réttindum sem því tengjast
og sjá um þróun þess í samvinnu við skipulagsyfirvöld með það að
markmiði að hámarka virði landsins og uppbyggingu þess. Afkoma
af þróun landsins verður nýtt til að fjármagna framkvæmdir og
rekstur Betri samgangna ohf.
Frekari upplýsingar má finna á mos.is og for.is.
Opinbert hlutafélag stofnað um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu
Umbreyta samgöngum öllum til heilla
80 í sóttkví á Reykja
lundi þegar mest lét
Fimm manns smituðust af veirunni
á Reykjalundi í lok september, sem
hafði þær afleiðingar að hlé var
gert á meðferð og fóru 80 manns í
sóttkví þegar mest lét. Starfsemin
var í lágmarki í lok september en er
hins vegar nú komin í gott horf eftir
hertar sóttvarnarráðstafanir. Um
100-120 manns heimsækja stofnunina
daglega. Reykjalundur þjónustar við-
kvæman hóp og því mikilvægt að sýna
ítrustu varkárni til að tryggja sem best
hag skjólstæðinga og allra annarra
sem tengjast Reykjalundi. Stjórn-
endur Reykjalundar fylgjast grannt
með stöðu mála og bregðast við eftir
þörfum. „Það verður að teljast eins-
dæmi í 75 ára sögu Reykjalundar að
starfsemin sé sett í hlé í langan tíma
vegna sýkingar og smita,“ segir Pétur
Magnússon forstjóri Reykjalundar.
fulltrúar ríkis og sveita