Ægir - 2020, Side 10
10
Við erum einnig að lausfrysta heilan
fisk, flök og bita, pakka í lofttæmdar um-
búðir og svo framvegis, fer eftir óskum
markaðarins á hverjum tíma. Það sem er
unnið að morgni er yfirleitt að fara út úr
húsi klukkan 12 á hádegi því flugin
standa þannig af sér að við þurfum að
vera búin að skila af okkur milli tólf og
eitt. Ferski heili fiskurinn fer því alltaf
samdægurs úr húsi,“ segir Bergþóra.
Mest til Bandaríkjanna
Stærsti markaðurinn er Bandaríkin en
einnig er bleikjan seld inn til Evrópu-
landa, t.d. Finnlands, Svíþjóðar og
Þýskalands. „Í Bandaríkjunum erum við
að selja bæði ferskt og frosið í Whole Fo-
ods búðirnar, sem eru vandaðar mat-
vælaverslanir þar vestra. Í Evrópu fer
bleikjan beint til kaupenda, þar eru engir
milliliðir. Whole Foods hafa verið að taka
af okkur í nokkuð mörg ár og gríðarlega
gott að geta selt inn á svo flottan mark-
að. Í Evrópu dreifist bleikjan inn á veit-
ingahús og verslanir. Við höfum líka
verið að selja ferska bleikju til Japans og
frysta bleikju fyrir Kínamarkað. Bleikjan
okkar fer því ansi víða,“ segir Bergþóra.
Stærsti framleiðandi í heimi
Ársframleiðslan af bleikju hjá Samherja
fiskeldi er um 3.800 tonn og það þýðir að
Samherji er stærsti bleikjuframleiðandi í
heiminum. Ísland er stærsta framleiðslu-
landið en heimsmarkaðurinn er í kring-
um 7.000 tonn. Markaðirnir eru að mestu
í norðanverðri Evrópu og Ameríku þar
sem fiskurinn er einnig þekktur í nátt-
úrulegu umhverfi. Bergþóra segir að
tekið hafi töluverðan tíma að markaðs-
setja bleikjuna því hún hafi verið lítt
þekkt þegar þau hófu framleiðslu. Því
hafi mikil vinna farið í kynningu og
markaðssetningu.
Bleikjan hefur mikla sérstöðu því hún
er svo ólík flestum öðrum fisktegundum.
Holdið er fíngert og fallega rautt og
bragðið svolítið villt og sérstakt. Gríðar-
lega bragðgóður fiskur.
Mjög tæknivætt hús
Vinnslan var flutt frá Grindavík til Sand-
gerðis fyrir tveimur árum og er í húsi
sem áður var í eigu Marmetis. „Húsnæð-
ið í Grindavík var orðið lítið og erfitt og
þetta hús stóð eiginlega og beið eftir
okkur með öflugan lausfrysti enda byggt
sem frystihús. Við þurftum auðvitað að
skipta út ýmsum tólum og tækjum en
húsnæðið er að nýtast okkur mjög vel,“
segir Bergþóra.
Í vinnslunni í Sandgerði vinna um 20
manns og er vinnudagurinn átta tímar
og hefst klukkan átta á morgnana. Einn
maður mætir þó klukkan sex til að hefja
slátrum þannig að allt er klárt fyrir
vinnsluna þegar mannskapurinn kemur
klukkan átta. Þá er komið í öll „buffer-
kör“ og hægt að byrja að slægja og flaka.
„Sláturrýmið er að virka gríðarlega vel,
þar er einn starfsmaður sem hefur um-
sjón með slátrun og flokkun. Vinnslan er
mjög tæknivædd, við erum með fjóra ró-
bóta sem eru til þess hugsaðir að hlífa
fólkinu okkar við erfiðustu störfunum,
eins og að stafla kössum og burðast með
hlutina fram og til baka. Við erum með
róbót í blóðgun, róbóta sem staflar öllum
kössum á bretti og róbóta í flokkun,“
segir Bergþóra Gísladóttir.
■ Lausfrystir fyrirtækisins er mjög öflugur en hvert flak er aðeins nokkrar
mínútur á leiðinni i gegnum hann.
■ Bleikjunni er dælt lifandi inn úr tankbíl og eftir að henni hefur verið slátrað
tekur róbóti við og blóðgar fiskinn.