Ægir - 2020, Qupperneq 12
12
„Ef við horfum lengra aftur í tímann
þá sjáum við að reglulega hafa komið
tímapunktar í þróun fiskvinnslubún-
aðar þegar mikil framþróunarstökk
hafa orðið, mælt til dæmis í kílóum á
manntíma. Við erum á einum slíkum
tímapunkti núna í bolfiskvinnslunni,“
segir Jón Birgir Gunnarsson, nýráð-
inn sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs
hátæknifyrirtækisins Völku ehf. Jón
Birgir hefur að baki áralanga reynslu
á þessu sviði en hann réð sig til Völku
síðastliðið haust eftir að hafa starfað
lengstum hjá Marel, Controlant og
Skaganum 3X við þróun og sölu á
búnaði til fiskvinnslu.
Hámarksverðmæti úr hverju flaki
Jón Birgir segir söguna sýna að við upp-
töku kvótakerfisins á Íslandi á sínum
tíma hafi áherslan farið úr magni yfir í
verðmætasköpun. „Og þar erum við enn,
erum sífellt að auka þau verðmæti sem
við getum náð út úr hverju einasta flaki.
Nærtækast er að taka dæmi um nýja
vinnsluhúsið hjá Samherja á Dalvík þar
sem við látum fleiri en eina vatnsskurð-
arvél vinna saman til að hámarka nýt-
ingu og verðmæti á hverju flaki en stýra
á sama tíma flæðinu jafnt um húsið inn
á pökkunarlínur eða lausfrysta, svo
dæmi sé tekið. Þannig ætlum við að
tryggja að aldrei safnist upp hráefni
heldur flæði það á sem allra stystum
tíma í gegnum vinnsluna. Með öðrum
orðum greinum við hvert flak inn í
vinnsluna, búnaðurinn leggur mat á
hvernig best er að skera það til að fá
sem mest út úr því en taka jafnframt til-
lit til mismunandi afurðaleiða í húsinu.
Til grundvallar þessu öllu eru svo pant-
anir frá viðskiptavinum sem verið er að
framleiða upp í. Að baki þessu öllu er Ra-
pidfish hugbúnaðarkerfið sem stýrir öll-
um okkar vinnslubúnaði. Þetta er stökk-
ið sem ég vísaði til áðan því svona stýr-
ing á vinnslu var ekki þekkt fyrir fimm
árum og jafnvel þó við hefðum haft
marga Excel-snillinga til að reikna út þá
hefðu þeir ekki getað náð þeim árangri
sem hugbúnaðurinn okkar og tækjabún-
aðurinn getur náð í dag,“ segir Jón Birg-
ir.
Hátæknifyrirtækið Valka ehf. stígur ný framþróunarskref í nýrri fisk-
vinnslu Samherja á Dalvík
Sjálfvirknin og tæknivæð-
ingin nær nýjum hæðum
Rætt við Jón Birgi Gunnarsson, sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs Völku
■ Jón Birgir Gunnarsson.
■ Nýtt vinnsluhús Samherja hf. á Dalvík verður tekið í gagnið síðar á árinu.
Vinnslan verður ein allra tæknivæddasta bolfiskvinnsla í heimi í dag.