Ægir - 2020, Page 13
13
Samherjavinnslan flaggskipið
hingað til
Valka hefur með höndum framleiðslu og
uppsetningu á lang stærstum hluta
vinnslubúnaðar í nýja húsinu hjá Sam-
herja á Dalvík. Húsið verður tekið í notk-
un síðar á árinu en uppsetning búnaðar
er komin vel á veg. Vinnslan verður
tæknilega í allra fremstu röð bolfisk-
vinnslna í heiminum. Jón Birgir segir
framþróunina á öllum sviðum vinnsl-
unnar, hvort heldur þegar horft er til
vinnslunnar sjálfrar, flæðistýringar,
hugbúnaðarkerfa, rekjanleikakerfa eða
annarra þátta.
„Þetta er flottasta vinnsluhús sem
Valka hefur sett upp og flaggskip í því
sem við höfum gert hingað til. Við getum
orðað það svo að þarna sé rjóminn af
okkar vöruþróun sem hefur verið unnin
í nánu samstarfi við Samherja allt frá
því að fyrsti búnaðurinn var settur upp
í ÚA árið 2013,“ segir Jón Birgir.
„Sjálfvirknin í húsinu á Dalvík er með
því mesta sem sést hefur í fiskvinnslu og
erum við í Völku virkilega þakklát fyrir
kjarkinn sem Samherji sýnir að stíga
skrefið til fulls með Völku í þessu verk-
efni. Mannshöndin kemur við sögu í for-
snyrtingunni en eftir það fara flökin inn
í vatnsskurðinn og í framhaldinu eru
handtökin fyrst og fremst gæðaskoðun-
ar- og eftirlitsstörf. Það er ekki verið að
bera fisk, raða honum handvirkt eða
neitt slíkt. Við stefnum t.d. á að senda
afurðir frá vinnslukerfinu inn á laus-
frysta nánast sjálfvirkt en hingað til
hefur verið mannaflafrekt að raða inn á
lausfrysta. Við viljum hafa stjórn á
hverjum einasta bita í ferlinu, vita hvert
hann fer í kerfinu, hvernig hann snýr á
færiböndunum og til þess hafa verið þró-
aðir róbótar sem ýta vörunni milli færi-
banda eftir vatnskurðarlínunni. Við er-
um líka með róbóta í pökkunarenda kerf-
isins, til dæmis í pökkun á ferskum af-
urðum í frauðkassa,“ segir Jón Birgir og
svarar því svo að með víðustu skilgrein-
ingu sé hægt að segja að í Samherjahús-
inu séu tugir róbóta innan vinnslukerf-
isins.
Sjálfvirkni á stórum svæðum
vinnslunnar
„Það atriði sem ég staldra fyrst við ef
lýsa ætti nýju vinnslunni á Dalvík í fáum
orðum er flæðið í gegnum húsið og
vinnsluhraðinn. Með meiri vinnsluhraða
er stefnt á meiri gæði á lokaafurðinni en
svo er vert að nefna færri handtök við
fiskinn, minna hnjask og mikla stjórn á
afurðasamsetningu og flæði í gegnum
allan ferilinn. Vinnslulínurnar eru fjórar,
hver með vatnsskurðarvél í lykilhlut-
verki. Hver vinnslulína getur svo skilað
bitum inn á hvern og einn af þremur
lausfrystum, í ferska pökkun eða inn á
„vacuum“ vélar. Sveigjanleikinn er mikill
og því auðveldlega hægt að stýra hversu
mikið af hverri bitategund fer hvaða
vinnsluleið en kerfið tekur þó alltaf tillit
til afkastagetu hverrar vinnsluleiðar.
Ein af nýjungum hússins í búnaði Völku
er flokkunarkerfi fyrir lausfrystu afurð-
irnar.
„Við erum að ná með þeim búnaði að
vera með mun meiri afköst á minna
svæði en þekkst hefur í pökkun laus-
frystu afurðanna í húsunum hingað til.
Með öðrum orðum eru því svæðin beggja
vegna lausfrystanna ekki eins manna-
flafrek,“ segir Jón Birgir og undirstrikar
hversu mikilvægt það er að vinna með
stórum framleiðanda á borð við Sam-
herja sem taki allar þessar nýjungar inn
í sína vinnslu og gefi þannig framþróun-
inni tækifæri.
„Klárlega erum við þarna að stíga
stórt þróunarskref. Það felst í vinnslu-
kerfinu sjálfu, hvernig vinnslulínurnar
fjórar vinna saman allt til enda fram-
leiðslunnar án þess að í því felist aukið
flækjustig fyrir stjórnendur vinnslunnar
á hverjum tíma. Allt er þetta mikil ögrun
fyrir okkur sem hönnuði og framleiðend-
ur búnaðarins og eins fyrir Samherja
sem setur traust sitt á Völku að þessi
sameiginlegu þróunarskref eigi eftir að
ná tilætluðum árangri. Við erum að
breyta störfum í vinnslunni, auka sveigj-
anleikann í framleiðslunni, bjóða upp á
flóknari skurðarmynstur og meiri mögu-
leika til að framleiða upp í litlar pantan-
ir, samhliða þeim stærri. Í þessari nýju
kynslóð fiskvinnslunnar er auðveldara
fyrir framleiðendur að vera með margar
sérhæfðar pantanir í gangi á sama tím
en í eldri kynslóðum af vinnslukerfum
voru framleiðslustopp oft nauðsynleg
þegar breytt var um framleiðslumynstur.
Það undirstrikar þróunina,“ segir Jón
Birgir.
Hvíti fiskurinn á mikið inni í
smásölupökkun
Þó verkefnið á Dalvík sé fyrirferðarmikið
þessar vikurnar hjá Völku hefur fyrir-
tækið mörg járn í eldinum og víða um
heim. Sem dæmi um áhugaverð verkefni
nefnir Jón Birgir þróun á endaafurðum
fyrir smásölu í þeim stíl sem tíðkast hef-
ur í bleika fiskinum.
„Þegar ég fer um heiminn skoða ég
gjarnan í stórmörkuðum hvernig fram-
setning er á fiski og tek eftir að fjöldi
vörunúmera í bleika fiskinum er mun
meiri en í hvítfiskinum. Hvíti fiskurinn á
því talsvert inni hvað fjölbreytni í enda-
afurðum varðar. Á meðan við sjáum fjöl-
breyttar smápakkningar með laxi er
hvíti fiskurinn annað hvort frosinn eða
þá seldur inni í stórmarkaðnum úr fisk-
borði. Það eru dæmi um stórmarkaði sem
eru að hætta með slík borð og það þýðir
að framsetningin á hvíta fiskinum verð-
ur að breytast og færast yfir í hliðstæðar
smásölupakkningar og við höfum séð í
kjúklingi og laxi. Við sjáum því fullt af
tækifærum framundan, bæði fyrir okkur
og viðskiptavini okkar,“ segir Jón Birgir.
Fiskvinnsla
■ Tæknin í húsinu gefur færi á fjölbreyttum skurðarmögu-
leikum á flökunum.
■ Fjórar bitaskurðarvélar eru í húsinu og gegna þær
lykilhlutverki í vinnslukerfinu.