Ægir

Volume

Ægir - 2020, Page 15

Ægir - 2020, Page 15
15 suðu á túnfiski í Tælandi. Samdráttur þar leiddi til samþjöppunar fyrirtækja og síðan til sóknar út um allan heim. Þetta fyrirtæki á nú verksmiðjur víða um heim sem sérhæfa sig í niðursuðu á fiski. Thai Union er þá bæði að kaupa verksmiðjur og vörumerki sem eru þekkt. Þeir eru nú komnir inn til okkar með 50% hlut. Það er mjög jákvætt að vera í samtarfi við fyrirtæki sem framleiðir eina af hverjum fimm túnfiskdósum í heiminum en túnfiskur er mest selda niðursoðna sjávarfangið í heiminum. Að það hafi áhuga á að koma til Íslands til framtíðar hlýtur að styrkja sjávarútveg- inn. Hvað verður í framhaldinu er erfitt að segja til um, hvort hér hefjist til dæm- is niðursuða á makríl. Það er ekki bara lifur sem kemur til greina,“ segir Guð- mundur P. Davíðsson, stjórnarformaður Ægis sjávarfangs ehf. Hægt að framleiða mun meira Aðeins þrjú lönd í öllum heiminum fram- leiða þorskalifur í dós; Ísland, Noregur og Rússland enda ekki fleiri þjóðir með aðgengi að þorski úr Norður-Atlantshafi í þeim mæli að beri slíka vinnslu. Færey- ingar eru mest í ufsa og laxi, Danir og Bretar eru nánast ekkert að veiða þorsk og ekki veiða Þjóðverjar þorsk lengur. Heimsframleiðslan er um það bil 70 millj- ónir dósa meðan túnfiskur er framleidd- ur í tugum milljarða dósa. „Ástæðan fyrir því að menn verða að vera með þessa framleiðslu hér er sú að það er ekki hægt að frysta lifrina og flytja úr landi til niðursuðu annars stað- ar. Hún verður að vinnast fersk og sem allra fyrst eftir að hún berst á land. Áskorunin hér á landi er að ganga betur um hráefnið. Ég er ekki að segja að menn gangi illa um það en kælingu er ekki nægilega sinnt til að hráefnið nýtist sem allra best. Það væri hægt að fram- leiða helmingi meira úr lifrinni ef menn fjárfestu í búnaði til að fara jafn vel með hana eins og fiskinn,“ segir Guðmundur. Varan fer að mestu til Austur-Evrópu Uppistaða lifrarinnar héðan fer til landa sem eru fjarri sjó, til dæmis Tékklands, Slóvakíu, Úkraínu og víðar. Íbúar Aust- ur-Evrópu og fyrrum ríkjum Sovétríkj- anna voru aldir á niðursoðinni lifur af stórum verksmiðjuskipum þar sem lifrin var unnin um borð. Þá var enginn tún- fiskur í boði. Því er niðursoðin þorsklifur mjög þekkt á þessum slóðum. „Menn eru líka að reyna að finna nýja markaði en það er erfitt. Ekki eru til neinir peningar til að auglýsa lifur en það getur ýmislegt gerst með tilkomu fyrirtækis eins og Thai Union, sem er með þekkt vörumerki eins og King Oscar og John West. Þannig fyrirtæki getur markaðssett nýjar vörur meðfram sinni hefðbundnu framleiðslu, getur tekið vör- una lengra og til dæmis kynnt lifrina sem heilsufæðu, sem hún vissulega er. Við höfum einir og sér enga burði til að fara í slíka markaðssetningu og höfum heldur ekki nægilegt magn í boði opnist Guðmundur P. Davíðsson, stjórnarforðmaður Ægis sjávarfangs ehf. í Grindavík við nýja sjálfvirka pökkunarlínu fyrirtækisins. Fiskvinnsla

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.