Ægir

Årgang

Ægir - 2020, Side 16

Ægir - 2020, Side 16
16 til dæmis markaður í Kína. Við höfum bara 45 milljónir dósa á Íslandi, sem reyndar gætu verið 80 milljónir, væri betur farið með hráefnið. Einhverjir hafa kannski haldið að nið- ursuða væri úrelt framleiðsluform á matvælum. En þegar litið er á geymslu- þolið, sem er fimm ár og markast í raun og veru aðeins af endingartíma dósar- innar, þá er þetta mjög góð geymsluað- ferð. Ef dósin heldur er þetta eins og góð vínflaska sem verður bara betri með ár- unum. Lifrin er einnig það ferskasta sem þú færð ef hráefnið er sett ferskt í dós- ina. Hún varðveitir ferskleikann. Líftími niðursuðudósa er að aukast og geymslu- þolið um leið. Því á niðursuðan mikla framtíð fyrir sér,“ segir Guðmundur. Ægir sjávarfang ehf. er með tvö eigin vörumerki, iCan og Westfjords, en selur einnig undir vörumerkjum stórra kaup- enda. Ægir sjávarfang er í nánu sam- starfi við niðursuðuverksmiðjuna í Súðavík, pakkar vörum og selur í gegn- um sameiginlegt sölufélag, iCan sales ehf. Fyrirtækið fær mikið af hráefni á Reykjanesi, en einnig annars staðar af landinu. Rússar að hefja aftur niðursuðu úti á sjó „Rússar eru nú að láta byggja 10 nýja togara í Rússlandi og þar koma íslensk fyrirtæki að hönnun og ýmsum tækja- búnaði. Niðursuða á lifur úti á sjó hefur að mestu leyti lagst niður með úreldingu gömlu stóru verksmiðjutogaranna en nú stendur til að í þremur af þessum nýju skipum verði niðursuða á þorsklifur. Það er jákvætt fyrir markaðinn að fá meira framboð af gæða lifur því það eykur neysluna og stækkar markaðinn,“ segir Guðmundur og bætir við að reynar sé erfitt fyrir litlu vinnslurnar hér að vera um of háðar Rússlandi. Rússarnir setji einhliða ákveðin skilyrði fyrir því að fyrirtækin fái að flytja lifur þangað inn. Þeir hafi sett bann á fyrirtækið og haldið því fram að þeir hefðu fundið kvikasilfur í vöru frá Ísland. Það hafi reyndar ekki verið rétt en Guðmundur segir að svo virðist sem ekki sé sátt milli Matvæla- stofnunar og sambærilegrar stofnunar í Rússlandi um það hvernig staðið er að úttektum á matvælaframleiðslufyrir- tækjum á Íslandi fyrir framleiðslu fyrir Rússland. Rússar setji sín skilyrði og eft- ir þeim verði þeir einfaldlega að fara sem vilji selja matvæli til Rússlands. Tæknivæðing eykur samkeppnishæfnina „Hérna vinna 18-20 manns og í Súðavík eru 10 til 12, þannig að samtals vinna um 30 manns í þessum tveimur verk- smiðjum. Við erum að vinna núna á ver- tíðinni um 10 tíma á dag og því er launa- hlutfallið mjög hátt. Við erum hvergi nærri samkeppnishæfir þegar kemur að launakostnaði en eina ástæðan fyrir því að lifrin er soðin niður hér er sú að ekki er hægt að frysta hana og flytja þannig til vinnslu í löndum þar sem launahlut- fall er miklu lægra en hér. Þannig er nánast útilokað að sjóða niður makríl hér í samkeppni við framleiðslu af lág- launasvæðum annars staðar í heiminum, t.d. í Póllandi þar sem launakostnaður er fimm sinnum lægri en hér. Um leið og hægt er að vélvæða vinnsluna, sem er handan við næsta horn, geta íslenskir framleiðendur komið sterkir inn á þann markað. Það er reyndar sá galli á því að það eru engar lánastofnanir að veita lán til kaupa á framleiðslutækjum. Byggða- stofnun hugsar bara um að lána í hús- næði úti á landi í stað þess að lána til fjárfestinga í vélvæðingu og sjálfvirkni- búnaði. Því þurfum við að flytja inn er- lent vinnuafl sem setur pressu á allt hagkerfið. Bankarnir lána ekkert í fisk- vinnsluvélar og tæki. Þeir lána í jarð- vinnuvélar því þær virka alls staðar og hægt að flytja þær út aftur,“ segir Guð- mundur. ■ Fyrirtækið framleiðir lifur bæði undir eigin vörumerkjum og vörumerkjum erlendra kaupenda. ■ Vinnslulínan. Á henni er lifrinni skammtað í dósir og bragðefni sett í eftir því sem það á við. Framan við vélina er málmleitartæki, sem skilur frá þá lifur sem málagnir er að finna í. Vélin lokar dósunum, sem síðan fara í sjóðara og loks merkingu og pökkun.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.