Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 2020, Qupperneq 17

Ægir - 2020, Qupperneq 17
17 Upphaf niðursuðu á matvælum má rekja til Napoleons Bonaparte, hetju frönsku byltingarinnar og síðar Frakk- landskeisara. Hann stofnaði til samkeppni um það hvernig best væri að geyma mat svo hermenn hans hefðu nóg að bíta og brenna. Þá fóru menn að velta því fyrir sér hvort ekki mætti setja mat í krukku rétt eins og vín á flösku. Niðursuðan var svo notuð til að varð- veita matvæli í herferðum Bonaparte og í þrælastríðinu í Bandaríkjunum og þar þróaðist hún mjög hratt. Fyrst í laxi á Hvítárvöllum Fyrsta niðursuðuverksmiðjan á Íslandi var stofnuð 1858 en þá var soðinn niður lax fyrir Skota við Hvítárvelli í Borgar- firði. Hún lagðist af eftir tæp 19 ár en einhver niðursuða átti sér þá áfram stað, til dæmis á Siglufirði þar sem menn suðu niður rjúpu og lambalifur. Það er svo ekki fyrr en 1908 sem rekstur niðursuðuverksmiðju hefst á ný og þá í Hnífs- dal. Það var Pétur Jónsson sem fór með skarkolabollur á heimssýningu í Róm og fékk verðlaun. Í kjölfarið fékk hann leyfi til að framleiða undir merkingum dönsku krúnunnar. Í framhaldinu varð þar nokkuð öflug niðursuða. Næsta áfanga á þessari vegferð má svo rekja til Þorvald- ar Guðmundssonar í Síld og fiski. Hann var messagutti á einum af fossum Eimskipafélagsins og sigldi til Bremen upp úr 1930. Hann sá þar niðursoðinn sjólax í búð, sem reyndar var ufsi. Hann fékk þar með áhuga á niðursuðu, fór og ræddi við þýska ræðismanninn sem kom Þorvaldi í læri í niðursuðu í Þýskalandi ásamt Tryggva í Ora. Þeir fóru svo að sjóða niður fyrir SÍF og sjálfa sig. Upp úr því tók niður- suðan flug og eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar þegar gerðir voru viðskiptasamningar við Sovétríkin milli 1950 og 1960, opnuðust góðir markaðir fyrir niðursoðna síld, gaffal- bitana gömlu góðu. Þá var einnig mikil niðursuða á rækju á tímabili á Vestfjörðum og víðar, til dæmis í Grindavík. Eftir hrun Sovétríkjanna hrundi meira og minna allur niðursuðubransinn á Íslandi. Þá voru ekki lengur við lýði vöruskiptasamningar við Sovétríkin og nýir markaðir ófundnir. Rækjan hvarf og fyrirtæki í þeirri niðursuðu hætta störfum. Þó voru áfram niðursuðuverksmiðjur í Grindavík í þorskalifur, í Garðinum, í Hafnarfirði, á Akranesi og í Vestmannaeyjum, en auðvitað hefur Ora verið í gangi áratugum saman og framleitt fyrir innanlandsmarkað. Fimm fyrirtæki með sex verksmiðjur Síðan urðu nokkur þáttaskil. Það var nokkur neysla á dósa- lifur í Danmörku og í Eystrasaltslöndunum. Upp kom kvika- silfursmengun í Eystrasaltinu sem fór yfir leyfileg mörk Evrópusambandsins. Niðursuða á þorsklifur á þessum slóð- um féll því niður og menn fóru að koma með gömlu verk- smiðjurnar aftur hingað til Íslands. Þær vantaði hráefni til vinnslu. Ein fór á Súðavík í samstarfi við HG í Hnífsdal. Önnur, sem hafði verið að sjóða niður á Borgundarhólmi fór í samstarf á Akranesi. Annað danskt fyrirtæki kom í sam- starf í Sandgerði og eitt til Grindavíkur, sem er núverandi Ægir sjávarfang. Pólsk niðursuða fór til Hafnar í Hornafirði. Þannig urðu til sex nokkuð öflugar niðursuðuverksmiðjur á landinu. Nú eru fimm fyrirtæki sem reka niðursuðu og eitt þeirra, Akraborg, sem er í eigu Lýsis, rekur tvær. Stiklað á stóru í sögu niðursuðunnar ■ Hér á landi falla til 10-12.000 tonn af þorsklifur á ári. Hluti hennar er soðinn niður en væri hægt að sjóða mun meira niður ef betur væri vandað til meðferðar og kælingar á hráefninu úti á sjó.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.