Ægir - 2020, Síða 22
22
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík
Fjölbreytnin góð
„Það er gott að hafa fjölbreytni í rekstr-
inum. Þetta er orðið þannig í dag að
maður veit aldrei hvað gefur best á
hverjum tíma. Því þurfa menn að vera
jafnvígir á allt og fljótir að bregðast við
þegar aðstæður breytast,“ segir Gunnar
Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf. í
Grindavík, en fyrirtækið vinnur fisk fyr-
ir fjölbreytta markaði í Evrópu og Amer-
íku. Gunnar hefur því góða yfirsýn á
áhrifin af Covid-19 á markaði fyrir ís-
lenskar sjávarafurðir.
„Við höfum reyndar ekki séð ástæðu
til að breyta miklu í framleiðslunni hjá
okkur núna. Við erum að vinna í þessu
öllu, fersku, salti, frystu og sjófrystu. Við
höfum reyndar heldur minnkað umsvifin
í ferska fiskinum og byrjað að frysta
meira af léttsöltuðum þorski. Þar er
kannski einhver smávægileg aukning.”
Kaupa fiskinn í stórmörkuðunum
„Breytingin sem við sjáum verða vegna
Covid-19 veirunnar er að fisksalan og
fiskkaupin færast yfir í stórmarkaðina.
Fyrst byrjaði fólk að hamstra þurrmat
og dósamat en í dag er þetta að fara aft-
ur í fyrra form. Fólk er bara farið að
kaupa matvöru eins og áður, hvort sem
það er fiskur, kjöt eða grænmeti og þess
háttar. Fólk heldur sig heima og það eina
sem það má fara og kemst í meginhluta
Evrópu er í stórmarkaði og apótek.
Salan á ferska fiskinum er því að fær-
ast til, frá veitingahúsum og hótelum,
inn í stórmarkaðina. Ferðamannageirinn
er meira og minna lamaður, fólk heldur
sig heima en þarf auðvitað að borða
áfram og gerir það nú heima í stað þess
að fara út að borða,“ segir Gunnar.
Hnökrar á flutningum í Evrópu
En það þarf líka að flytja fiskinn og það
gengur enn sem komið er vel að koma
fiskinum út. Reyndar hefur verð á frakt
til Bandaríkjanna hækkað og segir
Gunnar að kaupendur vilji að útflytjend-
ur taki þá hækkun á sig. Fyrir vikið hef-
ur minna verið flutt vestur um haf upp á
síðkastið. Hann nefnir einnig að flutn-
■ Þorbjörn hefur verið að auka framleiðslu á frystum léttsöltuðum flökum.