Ægir

Volume

Ægir - 2020, Page 28

Ægir - 2020, Page 28
28 „Í kjölfar kaupa Marel á helmingi hlutafjár í Curio gerðum við mjög sterkan samstarfssamning um sölu- mál og vöruþróun sem við sjáum nú þegar að getur skilað báðum fyrir- tækjum miklum ávinningi. Við höfum unnið þétt saman frá áramótum að því að móta samstarfið en líkt og hjá öðrum verður truflun á þeirri vinnu nú þegar Covid-19 faraldurinn gengur yfir. En til lengri tíma litið er ég mjög spenntur fyrir því sem framundan er,“ segir Elliði Hreinsson, fram- kvæmdastjóri og stofnandi fisk- vinnsluvélaframleiðandans Curio. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á sínu sviði síðustu ár, bæði með sölu á vél- búnaði til fiskvinnslna hér á landi og erlendis en Curio hefur einbeitt sér frá stofnun að þróun, framleiðslu og sölu á hausurum, roðflettivélum og flökunarvélum. Í október síðastliðnum fékk fyrirtækið Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019 og í sama mánuði var skrifað undir samning um kaup Marel á helmingi hlutfjár í Curio. Strax í kjölfarið hófst vinna við útfærslu þess samstarfs sem Elliði segist binda mikl- ar vonir við. Innspýting í vöruþróun „Fyrirtækin verða áfram sjálfstæðar ein- ingar en með Marel fáum við til sam- starfs við okkur fyrirtæki í fremstu röð hvað varðar þekkingu á framleiðslu tækjabúnaðar, nýsköpun og sölustarfi út um allan heim. Þetta hefur í för með sér gífurlega innspýtingu í vöruþróun hjá okkur og gerir að verkum að nú verður okkar vélbúnaður hluti af heildstæðum lausnum Marel á fiskvinnslusviðinu. Markaðurinn hefur á undanförnum ár- um þróast mjög hratt og bæði hvað varðar hvítfiskinn og bleika fiskinn þá verður sífellt skýrari ósk viðskiptavina að fá heildarlausnir í vinnslukerfum. Við þeim óskum getum við nú orðið í sam- einingu. Við sáum strax að framleiðsla Curio og Marel fyrir fiskiðnaðinn fellur mjög vel saman og fyrir okkur er t.d. al- veg ljóst að tækifærin til vöruþróunar og framleiðslu búnaðar fyrir eldislaxinn aukast verulega. Við sjáum því víða tækifæri framundan,“ segir Elliði. Bylting í sölustarfinu Frá áramótum hafa fyrirtækin tvö unnið að því að fella framleiðslu Curio inn í sölukerfi Marel út um allan heim. Curio ehf. Mikil tækifæri fólgin í samstarf- inu við Marel segir Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Curio ■ Stöðugar nýjungar eru í þróun vélbúnaðar Curio og meðal annars eru væntan- legar tvær nýjar flökunarvélar sem samhæfðar eru Innova upplýsingakerfinu í fiskvinnslukerfum Marel.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.