Ægir

Árgangur

Ægir - 2020, Síða 30

Ægir - 2020, Síða 30
30 Góður gangur hefur verið í nýju fisk- iðjuveri G.Run í Grundarfirði frá því snemma á síðasta ári. Afköst í vinnsl- unni eru helmingi meiri en áður var í vinnslunni. Tveir togarar fyrirtækis- ins sjá húsinu að mestu leyti fyrir hráefni en vinnsla á ferskum fiski hefur verið uppistaðan í útflutningn- um. Á því varð hins vegar snögg breyting síðustu vikur þar sem far- aldur Covid-19 hefur nær stöðvað út- flutning á ferskum fiski, að minnsta kosti um tíma. Framleiðslan hefur því færst yfir í lausfrystingu. „Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel. Við keyrum hérna á útopnu og höf- um gert í tæpt ár í nýja fiskiðjuverinu. Við sjáum ekkert eftir því að hafa farið í þessa miklu fjárfestingu. Hún skilar sér svo sannarlega á margan hátt. Hér erum við að vinna úr um 500 körum á viku, vinnum þorsk, ýsu, ufsa og karfa og svo ráðast afköstin líka af samspili í stærð- um og tegundum,“ segir Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri G.Run ehf. Svo dó markaðurinn! „Við höfum að mestu leyti verið að vinna ferskar afurðir en svo dó hreinlega markaðurinn vegna Covid-19 faraldurs- ins fyrir skömmu og því frystum við þess í stað af fullum krafti. Um 80% af tekjunum á síðasta ári komu úr sölu á ferskum afurðum og því mun það hafa veruleg áhrif á tekjur og sölu ef sá markaður nær sér ekki fljótlega á strik. Freðfiskmarkaðurinn styrkist þá vænt- anlega aðeins á móti en það er ekki tímabært að meta það. Það eru vænting- ar sem ekki eru í hendi,“ segir Guðmund- ur Smári. Vinna afla af eigin togurum G.Run vinnur nær eingöngu afla af eigin skipum, Runólfi og Hring, en einnig hef- ur verið keypt nokkuð af karfa á mörk- uðum. Veiðin hefur verið góð, þrátt fyrir nær stöðugar brælur. „Það gekk ótrúlega vel hjá okkur í vetur þrátt fyrir þessa miklu brælutíð. Það hefur ekki verið fisk- laust nema einn dag frá áramótum. Við erum að vinna úr 120 til 140 tonnum á viku, erum að losa um 500 tonn á mán- uði. Togararnir landa einu sinni í viku og eru tvo til þrjá daga í hverri veiðiferð að fylla sig og bíða svo bara í landi á milli. Þeir sækja það sem framleiðslu- stjórinn óskar eftir hverju sinni.“ Guðmundur Smári segir að eigendur fyrirtækisins sjái fyrir sér að auka fram- leiðsluna í framtíðinni. Enn sé verið að læra á verksmiðjuna og átta sig betur á möguleikunum sem hún gefi. „Við jukum afköstin um nærri helming í gegnum húsið með nýju verksmiðjunni. Við fækk- uðum ekki fólki og bættum reyndar frek- ar við.“ Með tvo öfluga lausfrysta Fiskurinn sem fer í frost er nær ein- göngu lausfrystur en eitthvað fer í blokkir. „Í nýja húsinu erum við með tvo mjög öfluga lausfrysta sem hjálpar okkur mikið í þessari breyttu heimsmynd,“ seg- ir Guðmundur um stöðuna þessa dagana Ferski fiskurinn hefur að langmestu leyti farið til Frakklands, á Bandaríkja- markað og svolítið á Þýskalandsmarkað. Frysti fiskurinn fer í svipaðan farveg, til Bretlands og meginlands Evrópu, breyti- legt eftir tegundum. Frysti fiskurinn fer margvíslegar leiðir ytra, í fisk og fransk- ar, í endurpökkun og dreifingu í verslan- ir og eitthvað fer í brauðun og þess hátt- ar í verksmiðjum. Gott ár í fyrra „Síðasta ár var mjög gott fyrir okkur, sem er fínt í þessari stöðu sem nú er að koma upp. Þá er gott að hafa borð fyrir báru. Gengið hefur lækkað og verð ytra hækkað en við gerum ráð fyrir því að krónan styrkist fljótlega á ný. Allar að- stæður eru til þess eru góðar. Ríkissjóð- ur er vel settur og Seðlabankinn býr við mjög góðan varasjóð, svo við eigum að geta jafnað okkur nokkuð fljótt þegar þessu ófremdarástandi lýkur, hvenær sem það verður,“ segir Guðmundur Smári Guðmundsson. Fiskvinnsla G.Run ehf. í Grundarfirði Stóraukin afköst með nýja fiskiðjuverinu ■ Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri G.Run ehf. fylgist með vinnslunni. ■Pökkun á lausfrystum flökum.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.