Ægir - 2020, Síða 32
32
Fiskvinnsla
„Það hefur verið jöfn og stöðug aukn-
ing í sölu hjá okkur enda má segja að
allir þeir sem kynnast okkar aðferða-
fræði við sótthreinsunina átti sig
strax á að hér er um hreina byltingu
að ræða frá því sem áður var.
Listeríu smitunina, sem er alvarlegt
vandamál í matvælavinnslum, hefur
verið auðvelt að ráða við með notkun
D-SAN kerfa frá okkur og aðrar ör-
verumælingar í afurð minnkað til
muna sem gefur lengri líftíma vöru.
Það segir sína sögu,“ segir Ragnar
Ólafsson, tæknilegur framkvæmda-
stjóri D-Tech ehf.
„Umboðsmaður okkar í Noregi gekk
nýverið frá fyrsta samningnum við
MOWI (Marine Harvest) fyrir verksmiðj-
una í Heröy. Það er stórt skref fyrir okk-
ur að komast inn hjá einu stærsta lax-
eldisfyrirtæki heims. Reynsla okkar er sú
að erfiðast er að ná fyrsta kerfinu inn
þar sem almennt gera menn sér ekki
grein fyrir því hversu vel lausnir okkar
virka. Sem dæmi má nefna að fyrir 3-4
árum seldum við fyrstu kerfin inn í tvö
af stærstu matvælafyrirtækjum Pól-
lands, Superdrób og Tarzcynsky, eitt
kerfi á hvorn stað. Í lok síðasta árs og í
byrjun þessa árs keyptu bæði þessi fyr-
irtæki fjögur kerfi til viðbótar þegar þau
voru sjálf búin að sannreyna virknina.
Þannig að við lítum svo á að samningur
okkar við MOWI sé stórt skref fram á við
og við væntum mikils af samstarfi við þá
í framtíðinni,“ segir Ragnar. Fram-
kvæmdastjóri D-Tech tók þátt í North
Atlantic Seafood Forum í Bergen nú í
byrjun mars. Nokkrir stórir aðilar sýndu
lausnum okkar verulegan áhuga og í
kjölfar á ráðstefnunni erum við í við-
ræðum við nokkra mjög stóra framleið-
endur um samstarf,“ segir Ragnar.
Öruggari framleiðsla og betri
loftgæði
D-SAN kerfið samanstendur af lögnum
með sérstökum úðastútum á og síðan
móðurstöðinni sjálfri sem dælir út sótt-
hreinsiefninu í þau rými sem við á. Þeg-
ar kerfið er keyrt þá verður til inni í
rýmunum sótthreinsandi þoka sem fyllir
allt rýmið.
„Kerfið okkar vinnur hratt og vel
þannig að sótthreinsun í hverju rými fer
niður í allt að 10 mínútur og tekur mun
skemmri tíma ef rýmin eru smá. Því tap-
ast ekki dýrmætur tími fyrir vinnslurn-
ar. Tölurnar sýna okkur mikinn árangur
og yfirleitt hríðfalla allar örverutölur í
vinnsluhúsunum og matvælunum sjálf-
um þar sem lausnin er tekin í notkun.
Við sjáum líka mælingar sem sýna að
loftgæðin á vinnustöðunum stórbatna
samfara þessu þannig að ávinningurinn
af kerfinu er margþættur,“ segir Ragnar
en sótthreinsiefnið er umhverfisvænt og
viðurkennt.
„Þetta sjálfvirka kerfi okkar notar að-
eins um 5% af vatni og sótthreinsiefni
miðað við það sem algengt er þegar
menn gera þetta handvirkt. Í vinnslum
er líka oft mikið af vélbúnaði og mjög
þröngt og sem dæmi um slíkt eru
vinnsluþilför í frystitogurum. Tíma-
D-Tech ehf.
Fiskvinnslan sótt-
hreinsuð á 10 mínútum
tímamótasamningur við MOWI, Marine Harvest
■ Ragnar Ólafsson, tæknilegur framkvæmdastjóri D-Tech.