Morgunblaðið - 05.06.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
BREKKA 34 - 9 fm
518.000 kr.
Tilboðsverð
STAPI - 14,98 fm
389.000 kr.
Tilboðsverð
NAUST - 14,44 fm
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Þetta var fyrsti laxinn minn – og
þetta var rosalega gaman! Mér
fannst gaman að vaða á eftir hon-
um,“ sagði Vilborg Halldórsdóttir
leikkona kát þegar hún hafði sleppt
maríulaxinum sínum í Norðurá í
gærmorgun, eftir 25 mínútna við-
ureign sem barst niður eftir ánni
frá Brotinu neðan Laxfoss, þar sem
laxinn tók. Naut hún aðstoðar Þor-
steins Stefánssonar leiðsögumanns
sem lét Vilborgu kasta fimm ólíkum
flugum fyrir laxa sem hann vissi
þar af, áður en 74 cm nýrunnin
hrygnan tók fluguna rauðan Elliða.
Hjónin Vilborg og tónlistarmað-
urinn og leikarinn Helgi Björnsson
voru sérstakir gestir þegar lax-
veiðitímabilið hófst í Norðurá í
gær. Helgi sagði blaðamanni frá því
áður en veiðin hófst að hann hefði
nú ekki mikla veiðireynslu en hefði
þó mætt í Eystri-Rangá einn morg-
un snemma á síðasta áratug og
fengið fjóra, þar á meðal einn tutt-
ugu pundara! Hann taldi líklegt að
Vilborg myndi nú ná laxi á undan
sér og reyndist sannspár. Helgi óð
hins vegar fram á brotið skömmu
síðar og náði líka að setja í lax og
landa fallegum nýrenningi. Alls var
átta löxum landað í Norðurá á
morgunvaktinni í gær. Morgunblaðið/Einar Falur
„Þetta var
rosalega
gaman“
Laxveiðitímabilið hófst í Norðurá í Borgarfirði í gær
Tilraun var í gær gerð til innbrots í
tölvukerfi Reiknistofu bankanna, en
að sögn Ragnhildar Geirsdóttur, for-
stjóra RB, eru engin merki um að
árásin hafi haft áhrif á kerfi RB eða
upplýsingar sem geymdar eru hjá
fyrirtækinu
Ekki beint að RB sérstaklega
Brotist var inn í ysta netlag fyrir-
tækisins, en sérfræðingar á vegum
Reiknistofu bankanna telja að inn-
brotið hafi ekki beinst að RB sér-
staklega, heldur sé um að ræða svo-
kallaða drive-by-árás.
„Þetta var ekki árás sem var beint
gegn RB til að valda skaða hjá okk-
ur,“ segir Ragnhildur í samtali við
Morgunblaðið, heldur hafi tilgangur
árásarinnar verið að koma fyrir bot-
net-hugbúnaði í tölvukerfi fyrir-
tækisins. Slíkur hugbúnaður er
gjarnan notaður til stærri tölvu-
árása, líkt og svokallaðra DoS-árása,
en ekki er um slíka árás að ræða í
þessu tilfelli.
Í fréttatilkynningu frá RB segir
að tilraunir til netárása og innbrota í
tölvukerfi fyrirtækja séu algengar
og oft séu skotmörk slíkra árása val-
in með handahófskenndum hætti.
Þjónusta rofin tímabundið
Brugðist var við innbrotinu sam-
kvæmt viðbragðsáætlun fyrir-
tækisins, en starfsmenn RB tóku
fyrst eftir óeðlilegri umferð á tölvu-
kerfi fyrirtækisins á miðvikudags-
kvöld.
Í kjölfar innbrotins var þjónusta
tölvukerfa RB rofin, sem hafði áhrif
á starfsemi debetkorta og netbanka.
Þjónusturofið var afleiðing aðgerða
RB við úrlausn málsins, en tengdist
innbrotinu ekki beint.
Í tilkynningu RB segir að þótt
árásinni hafi ekki verið beint að RB
sérstaklega taki þeir málið alvarlega
og muni hafa það að leiðarljósi til að
styrkja varnir fyrirtækisins.
Innbrot í tölvukerfi RB
Úrlausn málsins
hafði áhrif á starf-
semi debetkorta
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tölvuárás Árásinni var ekki beint
að fyrirtækinu sérstaklega.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þau sjónarmið eru uppi að málið sé ekki
fullbúið. Það þarf að vinna það meira,“ segir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður
Viðreisnar og nefndarmaður í utanríkismála-
nefnd. Drög að frumvarpi Guðlaugs Þórs Þórð-
arsonar utanríkisráðherra um breytingar á
lögum um utanríkisþjónustu hafa verið til um-
ræðu. Meðal breytinga sem þar má finna eru
nýjar reglur um skipan sendiherra auk reglna
um að slíkar stöður verði auglýstar.
Drögin birtust fyrst í samráðsgátt stjórnar-
ráðsins snemma í marsmánuði. Málið hefur
undanfarið verið til umræðu hjá utanríkismála-
nefnd. Að því er heimildir Morgunblaðsins
herma eru mjög skiptar skoðanir um frum-
varpið meðal nefndarmanna. Aðspurð segir
Þorgerður að hún vilji sjá breytingar á því.
„Þetta mál er ekki mjög pólitískt, en mér finnst
ekki hægt að afgreiða það eins og það stendur
núna. Það þarf meðal annars að útfæra skip-
anir betur auk þess að skerpa á málum fag-
sendiherra,“ segir Þorgerður.
Málið til umfjöllunar í næstu viku
Umræða í nefndinni er skammt á veg komin,
en frumvarpið verður áfram til umfjöllunar hjá
nefndinni í næstu viku. Nú þegar hafa gestir
komið fyrir nefndina, m.a. starfsmenn í utan-
ríkisráðuneytinu og var Gunnar Pálsson, fyrr-
verandi sendiherra Íslands í Brussel, meðal
þeirra sem komu á fund nefndarinnar. Hann
hafði áður gert fjölda athugasemda í umsögn
sinni um frumvarpið. Taldi hann frumvarpið
fullt af mótsögnum, illa rökstutt og næst væri
að draga það til baka.
Að sögn Þorgerðar er gríðarlega mikilvægt
að vinna frumvarpið vel. Þá verði að tryggja að
utanríkisþjónustan sé í takt við tímann horft til
næstu ára. „Það er ágætis vilji hjá ráðherra, en
það þarf að vinna meira í þessu. Við viljum vera
með skýra stefnu á þessu sviði. Það eru nýir
tímar og við getum ekki haft utanríkis-
þjónustuna eins og hún var þegar við hófum
störf,“ segir Þorgerður og bætir við að gott
væri að fá úttekt á störfum heimasendiherra.
„Það þarf að útfæra skipanir betur. Það væri
ágætt að fá úttekt á því hverju heimasendi-
herrarnir skila. Slíkri úttekt er ekki beint gegn
þeim sem einstaklingum heldur einungis verið
að kanna hvort skipulagið sé í lagi. Stóra málið
er að þetta virki sem skyldi,“ segir Þorgerður.
Sendiherramálið sagt ófullbúið
Skiptar skoðanir á frumvarpi um breytingar á lögum um utanríkisþjónustu Gera verður breyt-
ingar á reglum er snúa að skipan sendiherra Úttekt verði gerð á afköstum heimasendiherra
Morgunblaðið/Kristinn
Utanríkisráðuneytið Frumvarp er snýr að
málefnum sendiherra er til umræðu.