Morgunblaðið - 05.06.2020, Side 4

Morgunblaðið - 05.06.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2020 GMC Denali Ultimate Litur: White frost/ svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Svartur/ Svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. VERÐ 12.990.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ VERÐ 12.990.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Háskóli Íslands hefur sagt sig frá samningi við samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytið um starfsemi og rekstur rannsóknaseturs um sveitar- stjórnarmál og þéttbýlisseturs sem höfðu aðsetur á Laugarvatni. Stofnað var til þessa tilraunaverkefnis fyrir einu og hálfu ári og tilgangurinn var að skapa aukna þekkingu á sviði sveitarstjórnarmála, með rannsókn- um, námslínu og fleiru. Málinu voru tryggðar fjárveitingar í gegnum byggðaáætlun og Jöfnunarsjóð sveit- arfélaga, 12 milljónir króna í ár og alls 36 milljónir 2018-2022. Ráðuneytið vill uppgjör Í bréfum milli aðila málsins kemur fram að væntingar HÍ um verkefnið hafi ekki gengið upp og reynsla af staðsetningu setursins sé ekki góð. Ráðuneytið hefur meðtekið þetta og óskað eftir uppgjöri frá skólanum og segir jafnframt í bréfi að miður sé að „… hagnýting stafrænnar upplýs- ingatækni hafi ekki nýst í því skyni að dreifa störfum um landið“, eins og komist er að orði. „Mér finnst dapurlegt að Háskóli Íslands sem æðsta menntastofnun þjóðarinnar hafi ekki meira úthald í verkefni sem samið hefur verið um og eru spennandi,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Það má ef til vill segja að þessi starfsemi á Laugarvatni hafi aldrei komist á skrið, eins og það er mikilvægt að gerðar séu rannsóknir á sviði byggða- og sveitarstjórnarmála, sem verða æ mikilvægari í allri stjórn- sýslu og þjónustu við almenning. Við hér í ráðuneytinu munum því leita nýrra leiða til að halda þessari starf- semi áfram, í samvinnu við sveitar- félögin á Suðurlandi.“ Í samtali við Morgunblaðið segir Helgi Kjartansson, oddviti Bláskóga- byggðar, að sér þyki þessi málalok miður. Íþróttakennaradeild mennta- vísindasviðs HÍ, áður Íþróttakenn- araskóli Íslands, var um langt skeið með aðsetur á Laugarvatni en var lokað snemma árs 2017. Stofnun rannsóknaseturs í sveitarstjórnar- málum kom í kjölfar þess og var að nokkru leyti, að sögn Helga, hugsuð sem mótvægisaðgerð. „Við töldum þessari deild HÍ á sviði sveitar- stjórnamála, sem var í húsinu þar sem íþróttakennara- og áður hús- mæðraskóli voru, vel fyrir komið á Laugarvatni,“ segir oddvitinn. Flókið í framkvæmd og mygla í húsinu Í samtali við Morgunblaðið sagði Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, ástæður þess að skólinn óskaði eftir að styrkveiting við tilraunaverkefni um rekstur og uppbyggingu rann- sóknasetursins á Laugarvatni yrði felld niður aðal- lega tvær. Í fyrsta lagi hefði kom í ljós, fljótlega eftir að verkefnisstjóri setursins hóf störf, að viðhaldi húsnæðis seturs- ins á Laugarvatni væri ábótavant. Leki var í húsinu og grunur um myglu. Af þeim sökum var húsnæð- inu lokað um langt skeið til að við- haldsframkvæmdir gætu hafist. „Þrátt fyrir að viðgerð sé nú lokið er óvíst hvernig hægt verði að nýta húsnæðið í framtíðinni þar sem ein- kenna myglu gætir ennþá í einhverj- um mæli. Í öðru lagi hefur reynslan af verkefninu sýnt að flókið sé og óskilvirkt að starfsmaður í þróunar- verkefni af þessu tagi sé einn á starfsstöð, langt frá aðalskrifstof- unni. Aftur á móti væri bæði kostn- aðarsamt og tímafrekt að starfsmað- ur setursins á Laugarvatni sækti vinnu daglega eða oft í viku á skrif- stofuna í Reykjavík. Því miður gekk verkefnið ekki jafn vel og vonir stóðu til og niðurstaða Háskólans því að ekki hafi lengur verið forsendur til þess að halda því áfram,“ segir Jón Atli. Háskólasetri á Laugarvatni lokað  Væntingar gengu ekki upp  Átti að sinna sveitarstjórnar- og byggðamálum  Úthaldsleysi HÍ er dapurlegt, segir sveitarstjórnarráðherra  Nýrra leiða leitað  Langt frá aðalskrifstofu, segir rektor Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugsýn Laugarvatn er skólaþorp og menntasetur, en heimamenn eru ósáttir við að Háskóli Íslands skuli hafa hætt allri starfsemi sinni þar. Jón Atli Benediktsson Sigurður Ingi Jóhannsson Helgi Kjartansson Skonnortan Ópal kom til heimahafnar á Húsavík í fyrrakvöld eftir vikulanga siglingu frá Reykjavík. Í ferðinni, sem var í samvinnu við samtökin Ocean Missi- ons, var m.a. farið í land á Hornströndum og tínt upp rusl. Heimir Harðarson skipstjóri segir þetta vera ann- an leiðangurinn sem farinn er hálfhring kringum Ís- land með troll til að rannsaka örplast í sjónum. Auk þess eru fuglar taldir, auðkennismyndir teknar af hvöl- um og ekki síst eru svo strendur á óbyggðum slóðum hreinsaðar eins og kostur er. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Ópal til heimahafnar eftir langa siglingu „Auðvitað reikar hugurinn alltaf þangað og það kemur inn í um- ræðuna þegar leitað er skýringa á orsök slyssins,“ segir Bragi Bjarna- son, deildarstjóri frístunda- og menningardeildar Árborgar. Vísar hann í máli sínu til slysa sem orðið hafa í Sundhöllinni á Selfossi síðustu ár, en eins og áður hefur komið fram lést eldri karlmaður í lauginni sl. mánudag. Á síðustu 16 árum hafa fjögur banaslys orðið í umræddri laug. Fyrst árið 2006 og nú síðast á mánu- dag. Þá urðu tvö banaslys í millitíð- inni, árið 2011 þegar ungur drengur drukknaði og árið 2019 þegar karl- maður lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í gufubaði laugarinnar. Að sögn Braga er nú unnið að því að skoða alla vinnuferla starfsmanna sundlaugarinnar. „Við erum að skoða alla þætti og höfum verið að vinna að því með að- ilum innanhúss frá því að þetta kom upp. Við erum að skoða sérstaklega af hverju það liðu sjö mínútur þar til hann fannst í lauginni og hvort vaktaskipti hafi haft áhrif. Það er einn af mörgum þáttum sem verið er að skoða,“ segir Bragi. Spurður hvort framangreind slys bendi til þess að sundlaugin á Sel- fossi sé slysagildra kveður Bragi nei við. „Maður vill aldrei sjá svona hörmuleg slys á neinum stað, hvort sem það er í sundlaug eða annars staðar. Þegar einstaklingar finnast fara ákveðnir ferlar í gang. Lögregl- an vinnur nú að rannsókn málsins og við erum í góðu samstarfi við þá,“ segir Bragi og bætir við að hugur hans sé fyrst og fremst hjá aðstand- endum hins látna. „Þetta er auðvitað bara hörmulegt slys og maður vill gera allt til að koma í veg fyrir að svona gerist aft- ur. Ég vil bara skila innilegustu sam- úðarkveðjum til fjölskyldu hins látna. Hugur okkar er þar,“ segir Bragi. Fjögur banaslys á 16 árum  Allir vinnuferlar starfsmanna Sundhallar Selfoss skoðaðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.