Morgunblaðið - 05.06.2020, Side 6

Morgunblaðið - 05.06.2020, Side 6
Efling krefst sjálf- stæðs samnings Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Efling stéttarfélag leggur áherslu á að gerður verði sjálfstæður kjara- samingur við félagsfólk sem vinnur hjá skólum innan Samtaka sjálf- stæðra skóla. Áður hefur gerið geng- ið frá samningum með því að vísa til efnis kjarasamninga Eflingar við viðkomandi sveitarfélög. Fyrsti fundur samninganefndar Eflingar og Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) var í fyrradag, eftir að deilunni var vísað til ríkissáttasemj- ara. Nýr fundur verður boðaður inn- an tveggja vikna. Sara Dögg Svan- hildardóttir, formaður SSSK, segir að samtökin séu að fara yfir málin og jafnframt að afla fulls umboðs frá aðildarfyrirtækjum. „Við furðum okkur á töfum sem hafa orðið á því að ganga frá þessum málum,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Eflingar. Skýra réttarstöðu starfsfólks „Staða þessa hóps hefur verið of óljós. Við viljum einfaldlega skýra hana með því að gerður verði eig- inlegur kjarasamningur. Það hlýtur að teljast algert lágmark varðandi réttindi launafólks og almennt hafa atvinnurekendur taldið það hags- muni sína að gengið sé á skýran hátt frá kjarasamningum,“ segir Viðar um ástæðu þess að Efling krefst breytinga á formi, það er að gera sjálfstæða kjarasamninga í stað þess að vísa til efnis kjarasaminga félags- ins við viðkomandi sveitarfélög. Sara Dögg segir að þótt fram- kvæmd samninga með núverandi fyrirkomulagi hafi gengið vel og ver- ið farsæl geri samtökin ekki athuga- semdir við að gerðir verði sérstakir samningar. 20 skólar Efling hefur krafist kjarasamn- ings sem grundvallast á samningum félagsins við Reykjavíkurborg fyrir félagsmenn sem vinna í leik- og grunnskólum. Sara Dögg bendir á að Efling hafi einnig gert samninga við Kópavogsbæ og þeir séu ekki sam- hljóða. Hún segir að aðalmálið fyrir sjálfstæða skóla sé að kjarasamning- ar rúmist innan rekstrarsamninga þeirra við sveitarfélögin. Það geti rekist á ef gerður er einn samningur sem taki eingöngu mið af samning- um við Reykjavíkurborg. Efling semur um kjör starfs- manna í um 20 leik- og grunnskólum innan Samtaka sjálfstæðra skóla og eru þeir allir í Reykjavík og Kópa- vogi. Viðar bendir á að flestir skól- arnir séu í Reykjavík og að Efling hafi ekki samninga við Kópavogsbæ um leikskóla. „Þetta er að okkar mati útfærslu- atriði og ég skil ekki að það sé ágreiningur um að kjör þessa hóps eigi að taka mið af þeim,“ segir Viðar og bætir við: „Þetta er bara spurning um að leysa málin og ganga frá þeim, það ætti ekki að vera flókið.“  Fyrsti sáttafundur í deilu Eflingar og sjálfstæðra skóla Sara Dögg Svanhildardóttir Viðar Þorsteinsson Morgunblaðið/Hari Skólabörn Efling semur um kjör starfsmanna í um 20 leik- og grunnskólum innan Samtaka sjálfstæðra skóla, sem eru allir í Reykjavík og Kópavogi. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta hefur gefist vel og felur í sér spennandi möguleika,“ segir Arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir á göngu- deild skurðlækninga á Landspít- alanum, en síðustu mánuði hefur verið í gangi tilraunaverkefnið Rauntímastaðsetning á B3. Það gengur út á að staðsetja í rauntíma hvar sjúklinga og tæki á deildinni er að finna með það að markmiði að spara tíma og bæta þjónustu. Sjúklingar sem koma í innskrift á deildina fá armband með strikamerki og auðkenni sem sendir frá sér staðsetningarmerki. Hægt er að sjá á skjá hvar hver og einn sjúk- lingur er staddur hverju sinni. Hægt að merkja starfsfólk „Um 30% af þeim sem koma í skurðaðgerðir fara í undirbúning sem getur falið í sér blóðprufur, röntgenmyndir og að hitta lækna og hjúkrunarfræðinga. Þeir þurfa að fara á nokkra staði og ferlið tekur alltaf einhverjar klukkustundir. Með þessum hætti sjáum við hvar þeir eru staddir og þetta styttir heildar- tímann sem það tekur sjúklinginn að fara í gegnum þetta ferli. Við notum þetta líka á færanlegan lækninga- búnað og erum nú fljótari að sjá hvar hann er að finna. Það fækkar skrefum,“ segir Arnar. Hann segir að upplýst samþykki sjúklinga þurfi að liggja fyrir til að taka þátt í þessari tilraun. Allir hafi blessunarlega verið til í það enn sem komið er. „Þetta gæti nýst á fleiri stöðum á spítalanum og það væri líka hægt að merkja starfsfólk. Við höfum ekki farið út í það enn þá enda þarf að huga að persónuvernd- armálum,“ segir yfirlæknirinn. Arnar segir búnaðinn ekki dýran. Hvert tæki kosti 2-3 þúsund krónur. Tilraunaverkefni þetta heldur áfram og lagt er upp með að þróa og nýta upplýsingarnar sem úr því koma enn frekar. Stefnt er að því að staðsetn- ingarlausnir verði nýttar í auknum mæli á nýjum spítala. „Það hefur alltaf verið erfitt að reikna út nýtingarhlutfall á spít- alanum en nú er hægt að mæla í rauntíma hver notkunin er. Það gef- ur okkur betri yfirsýn.“ Geta nú fylgst með hverju skrefi sjúklinga  Tilraunaverkefni á Landspítala  Sjúklingar fá staðsetningartæki Staðsetningartæki Hægt er að kortleggja ferðir sjúklinga á B3. Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is Úrval af íslenskri hönnun Unicorn hálsmen frá 5.400,- SEB köttur - gylltur frá 18.600,- Alda hálsmen frá 9.600,- Birki armbands spöng frá 22.400,- Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Íssala hefur gengið vonum framar það sem af er ári. Þetta segir Pálmi Jónsson, fram- kvæmdastjóri Emmessíss, í samtali við Morgunblaðið. Fram til þessa nemur aukn- ing í sölu á boxís um 43% milli ára. Að sögn Pálma munar þar mikið um vit- undarvakningu Íslendinga um mikilvægi umhverfisvænna umbúða. „Emmessís hætti að mestu sölu á boxís í plasti í desember sl. og hóf sölu á boxís í pappaumbúðum. Frá og með 1. júní ætti allur boxís Emmessíss að vera kominn yfir í pappaumbúðir. Við finnum að það hefur haft sitt að segja,“ segir Pálmi og bætir við að fyrirtækið hafi undanfarin misseri víkkað út vöruúrvalið. Það hafi jafnframt hjálpað til við að auka söluna. „Við tókum við sölu á öllum ís frá Unilever á Íslandi. Þar má nefna merki eins og Ben&Jerry’s, Magnum og Twister. Sömuleiðis hófum við í ársbyrjun framleiðslu á ísmolum undir nafni Ísmannsins. Það er óhætt að segja að Íslendingar velji íslenskt og það verður ekki miklu íslenskara en íslenskir ísmolar úr fersku íslensku gæðavatni,“ segir Pálmi. 60 ára afmæli á árinu Spurður hvort faraldur kórónuveiru hafi sett mark sitt á reksturinn kveður Pálmi já við. Það hafi komið einna helst fram í breyttri neysluhegðun. „Veiran og veðurfar hafði áhrif á íssölu á fyrsta ársfjórðungi og við sáum breytta kauphegðun viðskiptavina. Smásala jókst en samdráttur varð á almenningsstöðum sem voru lokaðir. Þá voru færri á ferð um landið,“ segir Pálmi ennfremur. Síðar á árinu er 60 ára afmæli Emmess- íss. Af því tilefni mun fyrirtækið bjóða upp á nýjungar á árinu. „Af þessu tilefni höfum við ákveðið að leyfa Íslendingum að smakka uppáhalds- ísinn sinn; Hnetutopp, sem boxís. Hann verður kominn í flestar verslanir í næstu viku,“ segir Pálmi sem kveðst bjartsýnn á framhaldið. „Miðað við það hvernig sumarið byrjar og hversu áhugasamir Íslendingar virðast vera fyrir sumarfríi innanlands erum við bjartsýn. Við getum ekki beðið eftir því að taka á móti sumrinu með sól í hjarta ásamt því að veita öllum alvörunautnaseggjum gleðistund með Emmessís,“ segir Pálmi. Bjartsýni ríkir um mikla sölu á ís í sumar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sumar Fátt er betra en að fá sér ís á heitum sumardegi, sem vonandi verða margir í ár.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.