Morgunblaðið - 05.06.2020, Síða 10
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sala á áfengi jókst um 3% í Vínbúð-
unum á síðasta ári í lítrum talið.
Þetta kemur fram í nýbirtri árs-
skýrslu ÁTVR. Vínbúðir eru nú 51
talsins um allt land. Það þýðir að
5.366 einstaklingar 20 ára og eldri
eru um hverja Vínbúð. Í skýrslunni
er rakið hvaða tegundir og vörur
njóta mestra vinsælda meðal ís-
lenskra neytenda og er margt for-
vitnilegt þar að finna.
Sífellt meira drukkið
af innfluttum bjór
Athygli vekur að sífellt meira
selst nú af innfluttum bjór hér á
kostnað þess íslenska. Í fyrra voru
65% af þeim bjór sem seldist í rík-
inu innlend á móti 35% innfluttum.
Hlutfall innflutta bjórsins hefur
aukist jafnt og þétt undanfarinn
áratug, en árið 2010 var hlutfallið
75% innlendur á móti 25% inn-
fluttum bjór. Þetta er sérstaklega
áhugavert í því ljósi að á sama tíma
hafa fjölmörg íslensk handverks-
brugghús sprottið upp og mikið hef-
ur verið látið með gæði og fjöl-
breytni innlendrar framleiðslu.
Ljóst virðist að það vegur lítið upp
á móti vinsældum innflutts lager-
bjórs.
Ótrúlegar vinsældir Víking
Bjór er alls 48% af sölunni í Vín-
búðunum en það er nærri þrefalt
meira en selst af næststærstu vöru-
tegundinni, rauðvíni. Mest selst af
lagerbjór og ein tegund sker sig úr
í vinsældum. Það er Víking gylltur
en nærri lætur að tvöfalt meira selj-
ist af honum en næstvinsælustu
tegundinni, Faxe Premium. Raunar
selst álíka mikið af Faxe, Víking
lager, Tuborg og Bola. Skammt á
eftir koma Egils Gull, Gull lite, Tu-
borg Classic og nokkru neðar eru
Faxe Royal og Thule.
Vinsælasti bjórinn í flokki öls og
annarra bjórtegunda er Víking lite
lime. Aðrar tegundir sem njóta vin-
sælda eru Einstök White Ale,
Guinness, Úlfrún, Einstök Arctic
Pale Ale, Úlfur, Kronenbourg Blanc
og Albani Mosaic IPA.
Ítalskt, já takk
Léttvín frá Ítalíu njóta mestrar
hylli íslenskra neytenda. Spænsk
rauðvín komast ekki í hálfkvisti við
þau ítölsku og ítölsk hvítvín eru
nær þrefalt vinsælli en vín frá Síle.
Vinsældir ítalskra vína hafa farið
stigvaxandi síðustu ár. Árið 2015
var 31% heildarsölu rauðvíns frá
Ítalíu en í fyrra var sú tala komin
upp í tæp 38%. Sömu sögu er að
segja af hvítvíni. Árið 2015 voru
16% af hvítvíni frá Ítalíu en árið
2019 var hlutfallið komið upp í 26%.
Ódýr vín njóta vinsælda
Helmingur alls léttvíns hér er
seldur í beljum og fernum og raun-
ar er vinsælasta hvítvínið í smærri
umbúðum hið spænska Don Simon
sem kostar 1.779 krónur lítrinn. Af
rauðvíni ber hið ítalska Tommasi
Appassionato Graticcio af í sölu.
Alls seldist 168.671 lítri af því hér á
landi á síðasta ári.
Ljóst virðist að Íslendingar kjósa
helst ódýr léttvín. Flest mest seldu
hvítvínin kosta á bilinu 1.500-2.000
krónur og það dýrasta tæpar 2.500
krónur. Svipað er upp á teningnum
með rauðvín en þau dýrustu á topp-
tíu-listanum kosta 2.800 krónur.
Sala á neftóbaki eykst enn
Þegar litið er til tóbakssölu
ÁTVR má sjá að sala á sígarettum
minnkaði um 1,5% á síðasta ári. Alls
seldust sem nemur 30 sígarettu-
pökkum á hvern landsmann eldri en
15 ára, einum færri en árið á undan.
Sala á vindlum og reyktóbaki dróst
sömuleiðis saman. Sala neftóbaks
jókst hins vegar um 2% á árinu, fór
úr 44,6 tonnum árið 2018 í 46,1 tonn
í fyrra.
Kjósa ódýr léttvín og Víking í dós
Ársskýrsla ÁTVR sýnir neyslu-
mynstur áfengis á Íslandi Aukin sala
á innfluttum bjór Ítölsk vín vinsælust
Sala áfengis í Vínbúðunum 2019
Heildarsala áfengis, milljónir lítra 2012-2019 Mest selst af lagerbjór
Sífellt meira selst af innfl uttum bjór
Íslendingar elska ítölsk vín
24
22
20
18
16
14
12
10
8
6
4
2
0
Heimild: Vínbúðin
2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
7,5 lítrar af hreinu alkóhóli var heildarsala á hvern lands-
mann á síðasta ári, þar af voru seldir
5,6 lítrar í Vínbúðunum.
14,2 milljarðar króna skiluðu sér til
ríkissjóðs í formi áfengisgjalds
Söluhæsta Vínbúð
landsins er eins og
síðustu ár við Dalveg
í Kópavogi. Þar komu
rúmlega 3 milljarðar
króna í kassann á
síðasta ári.
Minnst seldist aftur á móti
í Vínbúðinni á Djúpavogi.
Þar var innkoman rífl ega
24 milljónir króna.
Íslendingar kaupa léttvín
í magninnkaupum
50%
af se
ldu ra
uðvín
i
og hv
ítvíni
í
Vínbú
ðunu
m
eru í
belju
m og
fernu
m
18,5 18,7
19,2 19,6
20,9
21,9 22,0
22,7
Bjór 17.695.000 lítrar
Létt vín 3.779.000 lítrar
Sterk vín 1.190.000 lítrar
Ítalía
Þýskaland
Spánn
Síle
Bandaríkin
Frakkland
Argentína
Suður-Afríka
Ástralía
Önnur lönd
3.000.000.000 kr
24.000.000 kr
A
lls
22
.6
64
.0
0
0
lít
ar
á
ri
ð
2
0
19
78%
17%
5%
Bjór Létt vín Sterk vín
Samtals
40%
30%
20%
10%
25%
35%
'10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19
Rauðvín Hvítvín
26%
11%
16%
18%
38%
Á T V R
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
MINNA HÁRLOS
GLANSANDI
FELDUR
Útsölustaðir:
Dýralæknastofa Reykjavíkur
Dýralæknaþjónusta Suðurlands
Dýraspítalinn Víðidal
Verslanir Dýrabæjar
Náttúruleg bætiefni fyrir hunda
Ekkert nýtt smit kórónuveirunnar
greindist hér á landi á sólar-
hringnum frá 3. til 4. júní en hins
vegar hefur einstaklingum í sóttkví
fjölgað um rúmlega eitt hundrað.
Þetta kemur fram á vefsíðunni
covid.is.
Alls voru 277 sýni tekin hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu og 48 á
sýkla- og veirufræðideild Land-
spítalans. Þeim sem eru í sóttkví
fjölgaði um 101 á milli daga og eru
þeir nú 986 talsins. Tveir eru í
einangrun og 1.794 hafa náð bata.
Samtals hafa nú 21.064 einstakl-
ingar lokið sóttkví. Tekin hafa ver-
ið 61.680 sýni samkvæmt upplýs-
ingum á vefsíðunni.
Einstaklingum í sóttkví fjölgar um 101