Morgunblaðið - 05.06.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Gerið verðsamanburð
Full búð af nýjum
og fallegum vörum
90 kr.
jólar
6.9
K
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Góður skriður er nú kominn á fram-
kvæmdir við breikkun og endurbæt-
ur á Suðurlandsvegi undir Ingólfs-
fjalli. Undir er 7,1 kílómetra bútur á
hringveginum; milli Gljúfurholtsár í
Ölfusi og Biskupstungnabrautar
vestan við Selfoss. Um 40 manns
sinna verkinu sem ÍAV hf. hefur
með höndum.
Vörubílar og búkollur
„Þetta er stórt verkefni og spenn-
andi,“ segir Ágúst Jakob Ólafsson
sem er yfirverkstjóri ÍAV í þessari
framkvæmd. Miklir efnisflutningar
eiga sér nú stað í tengslum við vega-
gerð og til þess eru notaðir alls átta
vörubílar og fimm búkollur – auk
þess sem í vélaflotanum eru sjö gröf-
ur, tvær ýtur og jafnmargir valtarar.
Næst Biskupstungabraut er verið að
leggja farg á mýri í stæði nýs vegar.
Við Kögunarhól nokkru vestar og
sunnar til hliðar við hringveginn er
verið að útbúa annan veg, svonefnd-
an Ölfusveg, sem verður tenging
heim á sveitabæi.
Alls verða efnisflutningar í þess-
ari vegagerð um 360 þúsund rúm-
metrar; möl og grjót sem sótt er í
námur í grenndinni. Flutningur nú
er allt að 4.000 rúmmetrar á dag,
enda er ekkert gefið eftir. Tækja- og
vélafólk í gengi ÍAV í Ölfusinu er að
stærstum hluta Íslendingar, en und-
anfarin ár hefur erlent vinnuafl ver-
ið ráðandi í framkvæmdum sem
þessum. Nú er það fólk fremur í al-
mennum verkamannastörfum og á
skóflunni.
Skref fyrir skref
„Á þessu ári ætlum við að móta
veglínuna að stærstum hluta. Kafl-
inn vestast, nærri Gljúfurholtsá, sem
við lukum í fyrra, kemur þó ekki
strax. Á næsta ári förum við svo af
krafti í byggingu fimm steyptra brúa
og undirganga sem þessari vegagerð
fylgja og svo koma líka tvenn reið-
göng,“ segir Ágúst Jakob. „Einnig
þarf að útbúa tengivegi, heimreiðar
og hefjast handa um gerð hringtorgs
við Biskupstungnabraut. Þá þarf að
setja niður jafnhliða veginum lagnir
fyrir vatn, rafmagn og fjarskipti – og
af því máttu ráða að verkið er mjög
umfangsmikið og í mörg horn að líta.
En þetta tökum við skref fyrir skref.
Hver verkþáttur er vel undirbúinn
og framvindan frá einni viku til ann-
arrar.“
Samanlagður kostnaður við þessa
vegagerð er 5,1 milljarður króna skv.
tilboði ÍAV. Framkvæmdum á að
ljúka í september 2023.
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmdir Vegurinn undir Ingólfsfjalli verður tvær akreinar og nú er verið að móta brautina sem bætist við.
Framkvæmdir á fullt
Suðurlandsvegur breikkaður í Ölfusi Flytja 4.000 tonn
af efni á dag Byggja fimm brýr Kostnaður 5,1 ma. kr.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vegagerð Ágúst Jakob Ólafsson er
yfirverkstjóri hjá ÍAV í Ölfusi.
„Hrókurinn er að svífa inn í sólar-
lagið. Við erum að þakka fyrir okkur
eftir þessi 22 ár, en við erum ekki
hættir og við taka önnur og jafnvel
enn meira spennandi verkefni,“
sagði Hrafn Jökulsson, formaður
Hróksins.
Þó segist hann enn munu beita sér
fyrir skáklífi á Grænlandi og munu
Kalak, vinafélag Íslands og Græn-
lands, og Grænlandsvinir enn hafa
Pakkhúsið til umráða fyrir fjöl-
breytta þjónustu í þágu málstað-
arins.
Hættuleg snilldarhugmynd
Á Grandrokk við Klapparstíg árið
1998 fæddist hugmyndin að skák-
félaginu Hróknum, þegar Dan Hans-
son og Hrafn Jökulsson sátu að tafli.
„Grandrokk við Klapparstíg var
andríkasta öldurhús þessara tíma.
Þangað kom fólk úr öllum áttum,
flestir höfðu sögu að segja, þarna
voru skákmenn og þarna voru lista-
menn, blaðamenn, bifvélavirkjar,
ráðherrar og rónar. Þarna blómstr-
aði skákin og tónlistin. Þetta var
skemmtilegasti staður landsins í
nokkur ár og þarna kviknaði hug-
mynd Dans Hansssonar, þegar hann
leit yfir hópinn sem sat að tafli og
kom með þessa hættulegu snilldar-
hugmynd um að við myndum stofna
skákfélag við strákarnir, sem ýmsir
litu hornauga,“ sagði Hrafn.
Úr varð þátttaka Hróksins í Ís-
landsmóti skákfélaga næstu ár og
hreppti félagið Íslandsmeistaratit-
ilinn árið 2002, og varði titilinn
næstu tvö árin.
„Eins og Dan sagði, í sínum kank-
vísa tóni, bara til þess að sjá svipinn
á þeim. Dan átti hugmyndina en
hans naut ekki við nema í tæpt ár.
Við Róbert Lagerman strengdum
þess heit og tókumst í hendur upp á
það að við skyldum láta draum vinar
okkar rætast og það gerðum við með
því að vinna strax þann vetur,“ sagði
Hrafn.
Haustið 1998 mættu Hróksliðar
galvaskir til leiks á Íslandsmóti
skákfélaga og unnu 4. deild, 3. deild,
2. deild, 1. deild og urðu loks Ís-
landsmeistarar árið 2002.
Hrókurinn var þó einungis keppn-
isfélag fyrstu þrjú árin. Eftir keppn-
isárin tóku við heimsóknir til grunn-
skóla landsins, hjúkrunarheimila,
geðdeilda og sjúkrahúsa og vikuleg-
ar heimsóknir á Barnaspítala
Hringsins festust í sessi hjá félaginu.
Með gleðina að leiðarljósi
„Við vorum ekki keppnisfélag
nema fyrstu þrjú árin og fórum síð-
an að vinna í anda kjörorða skák-
hreyfingarinnar; við erum ein fjöl-
skylda. Með gleðina að leiðarljósi
fórum við að gera ótrúlega hluti,“
sagði Hrafn.
Hróksliðar ferðuðust hringinn um
landið og dreifðu 25 þúsund eintök-
um af bókinni Skák og mát eftir
Anatoly Karpov í þýðingu Helga
Ólafssonar, til átta ára barna víða
um landið.
Hrafn hefur ákveðið að kveðja
skákheiminn á Íslandi og einbeita
sér að því að hreinsa Kolgrafarvík,
þar sem plastmagn kæfir lífríkið að
sögn hans.
„Ég er að fara að hreinsa Kolgraf-
arvík af öllu plasti og það er margra
ára verk,“ sagði Hrafn.
„Önnur verk-
efni taka nú við“
Hrókurinn kveður eftir 22 ára sögu
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Teflt Hrókurinn hefur staðið að
fjölda skákmóta um land allt.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stjórn Meistaradeildar í hesta-
íþróttum hefur ákveðið að halda
lokamót deildarinnar laugardaginn
20. júní. Verður það á Selfossi sem
liður í Íslandsmóti barna og ung-
linga sem hestamannafélagið Sleipn-
ir heldur þessa helgi. Jakob Svavar
Sigurðsson er langhæstur knapa en
þó ekki öruggur með að halda meist-
aratigninni frá síðasta vetri.
„Það er gaman að koma inn í dag-
skrá Íslandsmóts barna og unglinga.
Með því náum við að tengja okkar
fremstu knapa við ungmennin sem
eru á uppleið í íþróttinni,“ segir
Ingibjörg Guðmundsdóttir, formað-
ur stjórnar meistaradeildarinnar.
Það þýðir að keppnin verður háð úti,
ekki í reiðhöll eins og flest mót
meistaradeildarinnar til þessa.
Jakob Svavar efstur
Tvær greinar eru á lokamótinu,
flugskeið og tölt. Jakob Svavar Sig-
urðsson, meistarinn frá síðasta ári,
er langstigahæstur fyrir lokamótið.
Hann er með 38 stig en Viðar Ing-
ólfsson er með 23 stig. Munar 15
stigum á þeim. Jakob er því sigur-
stranglegur. Vitað er að Viðar mætir
með góða hesta í báðar greinar og á
raunhæfa möguleika á að safna
mörgum stigum. 24 stig eru í boði og
ef Viðar nær að sigra í báðum grein-
um þarf Jakob að ná góðum úrslitum
í annarri greininni eða þokkalegum
úr báðum. Raunar eiga Elin Holst,
Davíð Jónsson og Konráð Valur
Sveinsson, sem öll eru með 20 stig,
einnig tæknilega möguleika á sigri í
mótaröðinni.
Hjarðatún er með yfirburði í liða-
keppninni, með 299 stig og nærri 50
stigum meira en næsta lið. Fátt ógn-
ar stöðu liðsins.
Keppni í flugskeiði hefst klukkan
sjö á laugardagskvöldið og verður
verðlaunaafhending að töltkeppn-
inni lokinni.
Lokamótið verður
haldið utanhúss
Ljósmynd/Louisa Hackl
Meistari Jakob Svavar Sigurðsson
telst sigurstranglegastur.