Morgunblaðið - 05.06.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra hef-
ur verið gert, með úrskurði atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytisins,
að má úr skrá sínum tilkynningu um
hækkun hlutafjár og breytingu á fé-
lagaformi ásamt samþykktum hluta-
félagsins Stemmu hf. sem sendar
voru inn til stofnunarinnar hinn 9.
september 2013.
Þá er Fyrirtækjaskrá einnig gert
að afmá úr skjölum sínum tilkynn-
ingar um breytingar á stjórn, fram-
kvæmdastjórn og prókúru félagsins
sem lagðar voru inn hinn 5. ágúst
2016.
Úrskurðurinn er ein af mörgum
vendingum í harkalegum og áralöng-
um átökum milli athafnamannanna
Skúla Gunnars Sigfússonar, oftast
kenndur við Subway, og Sigmars Vil-
hjálmssonar. Þeir voru viðskipta-
félagar og komu m.a. að uppbygg-
ingu LAVA – Eldfjalla- og
jarðskjálftamiðstöðvar Íslands á
Hvolsvelli sem Stemma hf. heldur á
27% hlut í.
Hækkun viðurkennd og þó ekki
Hinn 7. apríl 2014 var Stemma ehf.
stofnuð og var innborgað hlutafé kr.
500.000. Hinn 30. apríl sama ár var
ákveðið að auka hlutaféð um 7,5 millj-
ónir króna og eftir þá hækkun var fé-
lagið að 2⁄3 hlutum í eigu einkahluta-
félagsins Sjarms og Garms, sem er í
eigu Sigmars Vilhjálmssonar, og 1⁄3
hluta í eigu Leitis eignarhaldsfélags
sem er í eigu Skúla Gunnars.
Úrskurðar atvinnuvegaráðuneytið
svo að þessi hlutafjárhækkun skuli
standa þótt þar segi um innborgun
hlutafjárins að „framangreind með-
ferð á fjármunum félagsins er tæpast
í samræmi við ákvæði laga um bók-
hald, nr. 145/1994 og ákvæði 8. gr. þá-
gildandi laga um endurskoðendur,
nr. 79/2008 …“ og vísar þar í úr-
skurðinum til þess að greiðslan fyrir
hlutafjáraukninguna hafi farið fram
með því að Stjarnan ehf., sem er í
eigu Skúla Gunnars, hafi greitt ýms-
an kostnað fyrir Stemmu hf., m.a.
laun framkvæmdastjóra og launa-
tengd gjöld ásamt reikningum frá
BASALT arkitektum, sem þá unnu
að verkefni félagsins á Hvolsvelli.
Hinn 5. ágúst var aftur boðað til
hluthafafundar í Stemmu ehf. og til-
laga lögð fram um að breyta rekstr-
arformi félagsins í hlutafélag. Auk
þess var samþykkt að gefa út nýtt
hlutafé að nafnvirði 7,5 milljónir og
að það yrði selt á genginu 6,67 og því
var söluverð nýrra hluta 50 milljónir
króna. Samkvæmt fundargerð hlut-
hafafundarins var hækkunin bundin
því skilyrði að greitt yrði fyrir hina
nýju hluti með reiðufé.
Þriðjungurinn greiddur strax
Tilkynning um þessar vendingar
hjá félaginu barst Fyrirtækjaskrá frá
KPMG 3. september 2014 og stað-
festing á að þriðjungur hlutafjár-
hækkunarinnar hafi þá þegar verið
greiddur til félagsins með reiðufé.
Hinn hlutinn átti að greiðast eigi síð-
ar en 12 mánuðum frá fundinum.
Greiðslan fyrir meirihluta hinna
nýju hluta í félaginu barst hins vegar
ekki fyrr en í desember 2015 eða tals-
vert löngu eftir gefinn frest. Sá frest-
ur var auk þess bundinn í lög um
einkahlutafélög, sem giltu um þessa
ráðstöfun þar sem félagið var enn
ehf. en ekki hf. á þeim tíma er ákvörð-
unin um hlutafjáraukninguna var
tekin. Bendir ráðuneytið af þessum
sökum á að rangt hafi verið af Fyr-
irtækjaskrá að skrá hlutafjárhækk-
unina enda hafi framkvæmd hennar
brotið í bága við lög.
Hæpin þjónusta endurskoðanda
Í úrskurðinum, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, er hörðum orð-
um farið um framgöngu endurskoð-
anda Stemmu hf., H. Ágústar Jó-
hannessonar hjá KPMG. Hann hefur
lengi farið með endurskoðun Leitis
eignarhaldsfélags. Segir þar m.a. að
H. Ágúst hafi staðfest með undirritun
sinni og lagt fram hjá hlutafélagaskrá
að hlutafé hafi verið greitt í samræmi
við lög í apríl 2014 „þegar ljóst var að
svo var ekki“.
Nærri því á byrjunarreit
Á grundvelli úrskurðar atvinnu-
vegaráðuneytisins brást Fyrirtækja-
skrá við og máði úr skrám sínum til-
kynningar sem borist höfðu frá
endurskoðanda Stemmu ehf. á árinu
2014 og öðrum frá árinu 2016. Af
þeim sökum stendur nú, skv. vottorði
frá stofnuninni, að hlutafé félagsins
sé nú níu milljónir króna.
Stemmdi ekki hjá Stemmu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
LAVA Samstarf Skúla Gunnars og Sigmars Vilhjálmssonar hljóp í kekki.
Hlutafé Stemmu hf. fært niður Atvinnuvegaráðuneytið snuprar Fyrirtækja-
skrá og snýr við ákvörðun Ráðuneytið segir endurskoðanda hafa brotið lög
irnar jukust í fyrra. Um 136 millj-
arðar eru tilkomnir vegna fjármuna-
tekna, eða fjárfestinga, og um 37
milljarðar vegna iðgjalda.
Ársfundurinn átti upphaflega að
fara fram í mars en var frestað
vegna kórónuveirufaraldursins.
Guðmundur kynnti jafnframt af-
komuna fyrstu fjóra mánuði ársins.
Áætluð nafnávöxtun var þá 3,5% og
jókst hrein eign til greiðslu lífeyris
úr 868 milljörðum í 904 milljarða.
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins í fyrra
skiptust þannig að 18% fóru til
greiðslu örorkulífeyris, 6% í maka-
og barnalífeyri, 4% í séreignarsparn-
að og 72% í ellilífeyrisgreiðslur.
Fjárfestingartekjur skiptust
þannig að innlendar eignir skiluðu
28,2 milljörðum, erlendar eignir 81,6
milljörðum, innlend skuldabréf 26,5
milljörðum og bankainnstæður 354
milljónum. Til samanburðar voru
fjárfestingartekjurnar 30 ma. 2019.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hrein eign Lífeyrissjóðs verslunar-
manna jókst um 155 milljarða í fyrra
og var um 868 milljarðar í árslok.
Fram kom í máli Guðmundar Þ.
Þórhallssonar, framkvæmdastjóra
sjóðsins, á ársfundi sl. þriðjudag að
þetta væri metafkoma hjá sjóðnum.
Raunávöxtun var þá 15,6%.
Hér til hliðar má sjá hvernig eign-
Eignirnar 904 milljarðar
Nafnávöxtun LV var 3,5% fyrstu fjóra mánuði ársins
Hrein eign sjóðsins jókst um 155 milljarða króna í fyrra
Hrein eign Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
950
900
850
800
750
700
650
600
550
He
im
ild
: l
iv
e.
is
Milljarðar króna
136,2
36,8
712,7
1.
1.
2
0
19
Fjármuna-
tekjur
Iðgjöld Lífeyrir Rekstrar-
kostnaður
31
.1
2.
2
0
19
30
.4
. 2
0
20
867,7
904,0
-17,0 -1,1
Breyting á hreinni eign 2019
5. júní 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 134.7
Sterlingspund 169.63
Kanadadalur 99.6
Dönsk króna 20.256
Norsk króna 14.174
Sænsk króna 14.468
Svissn. franki 139.9
Japanskt jen 1.2388
SDR 185.46
Evra 151.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.6516
Hrávöruverð
Gull 1717.6 ($/únsa)
Ál 1499.5 ($/tonn) LME
Hráolía 39.75 ($/fatið) Brent
● Bandaríski fjár-
festingasjóðurinn
PAR Capital Ma-
nagement heldur
áfram að selja
hluti sína í Ice-
landair, en sjóð-
urinn hefur nú selt
tæplega 2% hlut í
félaginu. Á félagið,
sem áður var stærsti hluthafi félags-
ins, nú 11,75% og heldur þar með á
minni hlut en Lífeyrissjóður verslunar-
manna sem er orðinn stærsti hlut-
hafinn.
PAR Capital Management kom inn í
hluthafahóp Icelandair í fyrra við end-
urfjármögnun félagsins. Var hlutur fé-
lagsins þegar mest var 13,7%. Í lok
apríl var fyrst greint frá því að PAR
hefði selt 0,2% hlut í Icelandair. Ljóst
er að félagið hefur haldið sölunni
áfram síðan þá. Þriðji stærsti hluthafi
Icelandair Group á eftir PAR Capital
og LIVE er Lífeyrisstjóður starfsmanna
ríkisins með 8,25% hlut. Þá er Gildi
lífeyrissjóður með 7,24% og Birta líf-
eyrissjóður með 7,07%.
PAR Capital selur fleiri
hluti í Icelandair Group
STUTT