Morgunblaðið - 05.06.2020, Page 16

Morgunblaðið - 05.06.2020, Page 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 ✝ HöskuldurJónsson fædd- ist á Mýri í Súða- víkurhreppi 9. ágúst 1937. Hann lést á Kanaríeyjum 19. mars 2020. Foreldrar hans voru hjónin Hall- dóra María Krist- jánsdóttir, f. 1892, d. 1944 og Jón Guðjón Kristján Jónsson, f. 1892, d. 1943, bóndi á Mýri í Álftafirði. Systkini Höskuldar: Hallfríður Kristín, f. 1920, d. 1985, Bjarney Guðrún, f. 1921, d. 2012, Pálína, f. 1925, d. 2011, Kristín Guðrún, f. 1928, d. 2016, Halldóra Margrét, f. 1930, d. 1965, Hermann, f. 1931, d. 1932 og Kristinn Jón, f. 1934, Bjarki Freyr, f. 17.3. 1995. 3) Jón Grétar, f. 15.1. 1976. Hösk- uldur ólst upp hjá móðursystur sinni Evfemíu Hildi Kristjáns- dóttur og fóstra, Þórði Þor- steinssyni, á Grettisgötu 35 í Reykjavík. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1957 og varð viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1963. Stundaði fram- haldsnám í þjóðfélagsfræði við Háskólann í Haag í Hollandi. Hann hóf störf í fjármálaráðu- neytinu 1965 og var ráðuneyt- isstjóri þess í 11 ár. Hann var skipaður forstjóri ÁTVR 1986 og gegndi því starfi til 2005. Hann sinnti einnig fjölmörgum trúnaðarstörfum um dagana. Hann var forseti Ferðafélags Íslands 1985-1994 og var áfram mjög virkur í starfi félagsins. Kveðjuathöfn um hann verður í Grafarvogskirkju í dag, 5. júní 2020, kl. 13. Vegna takmark- ana um fjölda samkomugesta verður hún bundin við boðs- gesti. d. 2003. Höskuldur kvæntist 1964 Guð- laugu Svein- bjarnardóttur sjúkraþjálfara, f. 1.1. 1941. Börn þeirra: 1) Þórður, f. 25.5. 1966, maki Erla Magnúsdóttir. Hún á af fyrra hjónabandi Hjalta Þórðarson, f. 18.7. 1989 og Bjarka Þórðarson, f. 4.2. 1994. Fyrrver- andi sambýliskona Þórðar er Guðlaug Gísladóttir. Hún átti fyrir Hafliða Þór Pétursson, f. 11.11. 1991. Dóttir þeirra Þórð- ar: Guðný Þóra, f. 29.7. 1997. 2) Sveinbjörn, f. 23.11. 1968, maki Kolbrún Ottósdóttir. Synir þeirra: Atli Þór, f. 23.2. 1993 og Höskuldur móðurbróðir minn var gamansamur, glaður í góðra vina hópi og á stundum stríðinn. Hann kunni ótal sögur og sagnir af fólki og fyrirbærum. Stundum velti ég því fyrir mér hvenær hann nálgaðist þann fróðleik, því að alla jafna urðu vinnudagar hans langir. Ein af fyrstu minningum mín- um sem ég get tímasett tengist því augnabliki þegar ég hitti Höskuld í fyrsta sinn. Það var haustið 1955 við kvöldverðarborð á Grettisgötunni, þar sem við for- eldrar mínir vorum gestkomandi. Á Grettisgötunni átti Hösk- uldur heimili stóran hluta ævinn- ar, kom þangað í fóstur átta ára gamall til Evfemíu móðursystur sinnar og Þórðar sambýlismanns hennar. Um áramótin 1943-1944 hafði Halldóra, móðir Höskulds, neyðst til að leysa upp heimilið að Mýri í Álftafirði. Maður henn- ar, Jón, hafði látist nokkrum mánuðum fyrr, hún sjálf orðin sjúklingur og lést í Reykjavík vorið eftir. Fjögur yngstu börnin voru þá enn heima, höfðu þrauk- að með móður sinni allt haustið bjargarlítil. Stúlkurnar tvær fóru í vist hjá vandalausum, eldri sonurinn fór í fóstur að Vonarlandi við Djúp til móðurbróður þeirra systkina, þangað fór svo Höskuldur einnig eftir stutta viðdvöl í Súðavík og dvaldi til stríðsloka, þar til óhætt þótti að senda drenginn til Reykjavíkur. Evfemía og Þórður voru þá orðin nokkuð roskin en samband Höskulds við fósturforeldrana var alla tíð einstaklega gott. Fóstri Höskulds kenndi honum að meta útivist og náttúru Ís- lands, sem áttu svo ríkan þátt í lífi hans alla tíð. Tveimur árum eftir þessa fyrstu fundi okkar varð Höskuld- ur stúdent og sendi móður minni mynd af sér. Myndin stóð á áber- andi stað í stofunni heima og ekki er örgrannt um að stolt móður minnar og myndin hafi haft hvetjandi áhrif á hugmyndir mín- ar um fullorðinslífið. Þegar ég átti erindi til Reykja- víkur á unglingsárunum tóku Höskuldur og Guðlaug kona hans alltaf einstaklega vel á móti mér. Sumarið 1968 útveguðu þau mér vinnu og ég bjó hjá þeim það sumar, auk þess sem ég fór með þeim í ferðir um Landmanna- laugar, Veiðivötn og Snæfellsnes, en það var mikið ævintýri í mín- um augum. Þegar ég hafði lokið landsprófi bauð Höskuldur móður minni að greiða fyrir mér varðandi fram- haldsnám. Varð það úr og ég bjó hjá þeim hjónum á Grettisgötunni á með- an ég stundaði nám í mennta- skóla og háskóla. Vinsemd þeirra og góðmennsku fæ ég seint full- þakkað og fagna því láni að hafa fengið að vera samvistum við þau og syni þeirra. Ég bý enn að þessum árum og öllum þeim ágætu minningunum sem munu ylja mér um ókomin ár. Elsku Gulla, Þórður, Svenni, Nonni, og fjölskyldur, ég sam- hryggist ykkur innilega. Þórhildur. „Kanntu djæf?“ spurði hann. Tilefni þess var að ég bauð hon- um upp í dans. Ég hafði haft ör- lítil kynni af elsta syni hans, Þórði, og mamma sagði mér að Höskuldur væri góður dansari. Dansinum sjálfum geri ég ekki skil, en þeir sem til þekkja vita að Höskuldur var maður kurteis og hafði hann ekki orð um frammi- stöðu mína. Hann var dansari góður og mikill samkvæmismaður. Málin þróuðust svo á þann veg að ég varð tengdadóttir þeirra heiðurs- hjóna, Höskuldar og Gullu, um nokkurra ára skeið. Það er lán að kynnast fólki eins og Höskuldi á lífsleiðinni, ekki síst til að læra af og taka orð og gerðir til eftirbreytni. Hann var vandaður í alla staði, hrein- skiptinn og maður framkvæmda. Hann hafði lag á að virkja rétta fólkið og kippa í spotta til að koma verðugum málum í fram- kvæmd. Sjálfur hikaði hann ekki við að veita öðrum liðsinni með margvíslegum hætti. Ófáar voru vinnuferðir fyrir Ferðafélag Ís- lands sem og skemmtiferðir um bæði troðnar og ótroðnar slóðir. Heima fyrir var tekið á móti fólki með höfðingsskap og að sjálf- sögðu átti Gulla stóran þátt í því. Í samkvæmum lumaði Höskuld- ur gjarnan á skemmtilegum sög- um eða einhverju óvæntu. Í gönguferðum var hann oft búinn að láta ferja drykkjarföng á leið- arenda og jafnvel annað ljúfmeti til að gleðja mannskapinn. Það eru ófáar ferðirnar sem ég fór með þeim Höskuldi og Gullu. Laugavegurinn var sú fyrsta. Sólskinsveður var alla leið, góðar sögur og annar hagnýtur fróð- leikur frá þeim hjónum. Hösk- uldur eldaði að sjálfsögðu kjöt- súpuna sína margfrægu í Hrafntinnuskeri. Svona átti lífið að vera fannst mér. Oft var stokkið í styttri gönguferðir um helgar og það eru mörg fjöllin og labbitúrarnir sem barnabörnin hafa fengið að njóta. Alltaf var passað upp á að tína dósir og annað minna verðmætt rusl sem varð á vegi. Aðspurt hvað afi gerði, svaraði eitt barna- barnanna því til að Höskuldur afi tíndi dósir! Ferðafélag Íslands naut góðs af því, en dósasjóður- inn varð drjúgur með aðstoð Höskuldar. Ekki aðeins vegna hans eigin tínslu, heldur einnig vegna útsjónarsemi hans og skipulagshæfni. Höskuldsskáli í Hrafntinnuskeri er verðugur minnisvarði um framlag Hösk- uldar til FÍ. Heima fyrir nutum við fjöl- skyldan ekki síður greiðasemi. Nefna má að eitt sumarið mætti Höskuldur nánast daglega eftir vinnu til að bera á forláta timb- urhús sem við Þórður höfðum keypt. Það var kominn tími á húsið að mati Höskuldar og því tók hann þetta upp að eigin frum- kvæði. Hann lagði einnig fram áhöld og efni, enda mjög fær með málningarpensilinn. Mörg fleiri voru viðvikin. Þau Gulla voru mjög liðtæk með barnabörnin og hafa ávallt gert vel við þau á allan hátt. Þau hjónin voru samtaka, góð- ir félagar og alltaf ánægjulegt í kringum þau. Ég er ríkari fyrir vikið. „Já, já, já, vertu blessuð“ er án efa sú kveðja sem ég fékk síðast frá Höskuldi. Ég kveð hann nú með virðingu og þakk- læti. Gullu og fjölskyldunni allri sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Guðlaug Gísladóttir. Fyrir rúmlega þrjátíu árum gekk ungur maður á fund for- stjóra ÁTVR. Fundurinn var að undirlagi sameiginlegra vina en forstjórinn hafði áhuga á að ræða við einhvern um tölvur. Á þeim tíma voru skrifstofurnar í Borg- artúni 6, rétt við Höfða. Ungi maðurinn gerði vart við sig í mót- tökunni og var vísað inn að skrif- stofu forstjórans. Önnum kafinn ritari tók á móti gestinum og bauð til sætis. Biðin var ekki löng og þegar unga manninum var vísað inn á skrifstofuna sá hann virðulegan kall, með gleraugun fremst á nefinu, sitja við risastórt skrifborð. Forstjórinn stóð upp og bauð unga manninn velkom- inn. Eftir nokkur kurteisisorð spurði forstjórinn unga manninn hvort hann kynni nokkuð á tölv- ur. Af sjálfsöryggi ungu kynslóð- arinnar svaraði sá ungi að eitt- hvað vissi hann. Þannig hófust kynni og náin vinátta sem entist þangað til Höskuldur féll frá. Aldrei bar þar skugga á. Ungi maðurinn var undirritaður og sá virðulegi Höskuldur Jónsson, fyrrverandi forstjóri ÁTVR. Höskuldur var hörkugöngu- maður og náttúruunnandi og fór víða ásamt konu sinni Gullu. Margar eftirminnilegar ferðir fórum við saman og voru þau hjónin bestu ferðafélagar sem hægt var að hugsa sér. Þegar Höskuldur var áttræður gáfum við Daði Garðarsson honum ferð um Siglunesskriður í afmælis- gjöf. Höskuld langaði að fara þá leið því hana hafði hann aldrei farið enda fáfarið um þær slóðir. Leiðin liggur frá Siglunesi að Selvíkurvita. Hún er snarbrött og eingöngu fyrir skriðuvant fólk sem er ekki lofthrætt. Vorum við Daði á báðum áttum hvort við ættum að þora að fara með kall- inn. Lögðum við í hann með línur og klifurbelti og var Gulla kona Höskulds með í för. Í stuttu máli gekk ferðin ágætlega og þau hjónin fóru þetta léttilega. Hösk- uldi, sem lét sér ekkert vaxa í augum, fannst gangan lítið mál enda fótviss með afbrigðum. Nú er Höskuldur farinn í enn eina ferðina. Takk fyrir samfylgdina í áranna rás, kæri vinur, og gangi þér vel að kanna ókunnar slóðir. Margir hjá ÁTVR minnast Höskulds með hlýhug og ég veit að hans verður sárt saknað. Gullu og fjölskyldu votta ég mína dýpstu samúð. Höskuldur var forstjóri ÁTVR í um 19 ár. Hann var sannur heið- ursmaður í fyllstu merkingu þess orðs. Í störfum hans ríkti form- festa og nákvæmni. Höskuldur var mikill leiðtogi og mannvinur. Hann var afburðaræðumaður og fróður um menn og málefni. Sögu lands og þjóðar þekkti hann ágætlega og óf þetta oft saman í skemmtilegar frásagnir við ýmis tækifæri. Það var mikil gæfa fyrir mig að kynnast Höskuldi á sínum tíma og kenndi hann mér margt. Á ég honum mikið að þakka. Leiðir okkar lágu fyrst saman í gegnum Ferðafélag Íslands og síðar í gegnum vinnu hjá ÁTVR. Áhuga á göngu- og fjallferðum áttum við sameiginlegan. Hösk- uldur var lengi forseti Ferða- félags Íslands og virkur í því starfi. Í vinnuferðum fyrir ferða- félagið fór Höskuldur alltaf sjálf- ur í erfiðustu og óþrifalegustu verkin. Dugnaðurinn var ótrú- legur og oft unnið langt fram á kvöld. Ferðafélag Íslands heiðr- aði Höskuld á ýmsan hátt fyrir vel unnin störf. Hann var heið- ursfélagi þess og var gönguskál- inn í Hrafntinnuskeri á Lauga- veginum nefndur í höfuðið á Höskuldi. Bridge var líka íþrótt sem við stunduðum af ákefð en við spil- uðum í sömu sveit. Mikil festa var á spilamennskunni. Höfuð- andstæðingar okkar voru „Taps- árir Flóamenn“ en þeir nefndu okkar sveit „Hyski Höskulds“. Þreyttum við keppni við þá í yfir þrjá áratugi, tvisvar á ári. Jafn- ræði var með liðunum og gekk farandbikar á milli. Keppnisdag- ar gengu fyrir öllu og aðeins þurfti að færa til keppni einu sinni. Gerðist það þegar makker minn gifti sig á áformuðum spila- degi. Höskuldur var í essinu sínu við spilamennskuna og þar naut hann sín fram í fingurgóma. Oft var tekist á við spilaborðið og að loknum spilum voru erfiðu spilin greind í þaula til að athuga hvað hefði betur mátt fara. Ívar J. Arndal. Ég kynntist Höskuldi fyrst við spilaborðið 1953. Við höfðum myndað briddssveit ungtemplara sem keppti á móti Stórstúkunn- ar. Við vorum litlir strákar sem kepptu við roskna og ráðsetta menn og stóðum okkur bara vel. Seinna vorum við saman í MR í 4 vetur og urðum nánir vinir. Spilamennskan hélt áfram í 67 ár og örfáum dögum fyrir hans hinstu för háðum við keppni við „stráka“ 35 árum yngri og höfð- um sigur! Lífsstarf Höskuldar var embættismennska. Hana þekkti ég bara af afspurn. Sem forstjóri ÁTVR var hann óum- deildur, en ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu sleppur ekki við gagnrýni. Mín reynsla var að þeir sem skömmuðu Höskuld áttu eitt sameiginlegt. Þeir þekktu manninn ekki per- sónulega. Árið 1959 var stofnað félag og nefndist Höskuldsvina- félagið, stofnendur voru 6. Inn- tökuskilyrði voru tvenn: Vera ná- inn vinur Höskuldar Jónssonar og vera ekki eins og fólk er flest! Fimm formenn voru í félaginu og einn óbreyttur: Höskuldur sjálf- ur. Fáum árum eftir stofnun mætti Höskuldur á fund með af- ar myndarlega stúlku, Guðlaugu Sveinbjarnardóttur. Hún upp- fyllti öll skilyrði um inngöngu og var samstundis gerð að for- manni. Aðrir makar fengu síðar inngöngu í félagið, en ég held að gleymst hafi að ræða hvort þeir yrðu formenn. Fundum félagsins hefur fækkað, en það starfar enn. Sá óbreytti er fyrstur til að leita nýrra heima. Hann ruddi oftast brautina. Maðurinn Höskuldur var einstakur. Hann var glæsi- menni, grannur, teinréttur, há- vaxinn, ekki smáfríður en svip- fallegur, traustvekjandi og oftast glaðlegur. Ég hef sjaldan vitað ósérhlífnari eða óeigingjarnari mann. Færum við bekkjarsystk- inin í ferðalag þurfti ekki einu sinni að ræða hver hefði allan veg og vanda af ferðinni og væri far- arstjóri. Eins var þegar við spila- félagar fórum vor og haust til spilamennsku út á land. Hann vissi hvaða staði þurfti að skoða og stjórnaði innkaupum og elda- mennsku. Hann hefði vel getað verið kokkur á togara! Ekki má gleyma að nefna húmoristann. Hann kunni ótal sögur og vísur og sagði þær af einstakri list. Hann átti frábæra fjölskyldu og betri fjölskylduföður hef ég aldr- ei kynnst. Hjá þeim er hugur okkar hjóna þessa sorgardaga. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna. Vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Tryggvi Ásmundsson. Leiðir okkar Höskuldar lágu fyrst saman fyrir hálfri öld, þeg- ar okkur var falið að raða öllum opinberum starfsmönnum í launaflokka í samræmi við starfsmatsramma, sem lá laus- lega fyrir. Hann var skrifstofu- stjóri í sjálfu fjármálaráðuneyt- inu en ég nýskriðinn af prófborði suður í löndum. Þrátt fyrir marg- víslegar og stundum grátbros- legar hindranir tókst okkur að klára verkið. Þarna kynntist ég embættismanni sem var sann- gjarn en jafnframt ákveðinn að beygja sig ekki fyrir þrýstingi eða hótunum. Seinna hélt kunn- ingsskapur okkar áfram að þróast eftir að ég varð aðstoð- armaður fjármálaráðherra en hann ráðuneytisstjóri. Nákvæm- ari og heiðarlegri embættis- manni hef ég ekki kynnst. Aldrei tók ég eftir því að pólitísk afstaða hans kæmi nokkurn tíma í ljós í umræðum um álitamál eða við ákvarðanatöku. Nokkru seinna, eftir að ríkið var komið í eigenda- hóp Minjaverndar hf., settist hann þar í stjórn, stundum sem formaður. Það hafði ekki farið fram hjá mér að skiptar skoðanir voru innan ráðuneytisins um þá fyrirætlan okkar að bjarga og endurgera Bernhöftstorfuna, þessar dönsku fúaspýtur. Hösk- uldur gekk til þess verks af heil- um hug og varð fljótt einn af vel- unnurum húsfriðunar og minjaverndar innan ríkiskerfis- ins. Hann var velvildarmaður Minjaverndar hf. alla tíð síðan, allt til skyndilegs dauðadægurs. Alltaf var hann reiðubúinn að leggja okkur lið og gefa okkur góð ráð þegar eftir því var leitað. Það var sannarlega betra en ekki að eiga slíkan mann að. Fyrir hönd stjórnar Minjaverndar vil ég þakka Höskuldi stjórnarstörf, hlýhug og lifandi áhuga hans á velgengni félagsins og heill þess starfs sem þar var unnið. Sjálfur þakka ég langvarandi vinskap. Við hjónin vottum Guðlaugu og sonum þeirra okkar dýpstu sam- úð. Þröstur Ólafsson. Á nokkrum vikum höfum við stúdentarnir frá MR kvatt tvo úr okkar hópi, þá Örnólf Hall arkitekt og nú Höskuld Jónsson ferðamála- frömuð. Höskuldur er mér minnis- stæður frá barnæsku þótt ég muni nú ekki hvenær okkar fyrstu kynni voru. Við vorum hins vegar góðir kunningjar frá fyrstu dögum en flugumst samt aldrei á, sem var nokkuð sjald- gæft í þá daga í barnaskólanum. Við fórum í gönguferð þegar við vorum í 3. bekk frá Kolvið- arhóli yfir Hellisheiði í miklu fannfergi. Höskuldur var þá þeg- ar auðvitað útnefndur fararstjóri af Pálma Hannessyni rektor og fór fyrir okkur. Ég man hversu feginn ég varð þegar við loksins komumst á harðan þjóðveginn eftir puðið í fannferginu. Ég átti eitt sinn góða bláleita mynd af Höskuldi bera við fallegan himin í foringjahlutverkinu en hef nú víst glatað henni. Kannski á hana einhver enn? Höskuldur var alltaf ljúfur í viðmóti við mig og eyddi óspart tíma í rökræður við mig um heimskulega hluti sem ég hafði helst þroskalausan áhuga á eins og almenn brennivíns- og óreglu- mál. Við urðum eitt sinn sam- ferða gangandi eftir dansæfingu. Og þar sem Höskuldur var bind- indissinnaður en ég ekki pexaði ég við hann líklega í klukkutíma um ágæti brennivíns og tóbaks sem ég hafði eitthvað komist í um kvöldið við kirkjugarðsvegginn í Suðurgötunni suður af leiðum Jóns Sigurðssonar og Jóns Ólafs- sonar langafa. Allt var þetta með skemmtilegasta móti og við hlóg- um með þessu talsvert man ég og fór þá sem æ síðar vel á með okk- ur. Mig minnir að Höskuldur hafi stofnað til bindindisfélags í Menntaskólanum sem við gervi- töffararnir, fyllibytturnar og Ca- mel-sjúgararnir uppnefndum Grákollu og gerðum óspart grín að. Ekki man ég lengur afdrif þessarar starfsemi eða fjöl- menni. Og þannig var það alla tíð. Hvenær sem við hittumst, í ráðu- neyti eða ríkinu, var létt yfir okk- ur og stutt í grínið. Hann var hjálpsamur og vildi öllum greiða götur. Hann var hinn farsælasti í mörgum ábyrgðarstörfum sem honum voru falin um dagana og bar hvergi skugga á það ég vissi. Hið síðasta sinn sem við hittumst í febrúar sl. hafði ég rænu á að óska honum til hamingju með að Ferðafélag Íslands, sem hann veitti lengi forystu, hafði skírt skála einn honum til heiðurs og taldi það honum til meiri sóma en mér myndi nokkru sinni falla í skaut hérna megin Heljar. Við hlógum báðir hjartanlega þarna á Mímisbar þennan fyrsta fimmtudag mánaðarins þar sem eftirlifandi 1957-árgangurinn reynir að hittast. Svona er þetta líf; hlátrunum fækkar með dögunum og að því kemur að við hlæjum ekki meira en aðrir taka við kátínunni. Ég vil þakka skólabróður mín- um, jafnaldra og vini Höskuldi Jónssyni fyrir samfylgdina, alla vinsemdina, hlátrana og hjálp- semina. Ég er viss um að skóla- systkini okkar frá MR 1957 taka undir slík orð og senda eftirlif- andi ástvinum hans bestu kveðj- ur. Góðar minningar eru gulli betri fyrir alla sem slíkum manni kynnast, dugnaðarforki, vönduð- um, tryggum og hjálpsömum húmorista sem Höskuldur Jóns- son var. Halldór Jónsson. Það var árið 1985 stuttu fyrir aðalfund Ferðafélags Íslands að nafn Höskuldar Jónssonar vinar míns barst mér fyrst til eyrna og að kjósa ætti hann sem forseta FÍ. Nokkrum mánuðum síðar fóru leiðir okkar að liggja saman á fjöllum enda um sameiginlegt áhugamál að ræða, hálendið og FÍ. Það var mikið gæfuspor fyrir FÍ að fá Höskuld sem forseta og upphófst mikið framfaraskeið fé- lagsins. Höskuldur var með ein- dæmum ósérhlífinn í öllum störf- um fyrir félagið og var ekki spurt að neinu, aðeins get ég orðið að liði hér og svo var gengið í störfin og má nefna nokkur þeirra hér. Í Landmannalaugum var verið að koma fyrir nýjum vatnstönkum upp á nokkra tugi þúsunda lítra og þurfti að byggja undir þá með sandpokum í einni hraungjótunni Höskuldur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.