Morgunblaðið - 05.06.2020, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020
Opið virka daga frá 8:30–16:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
FERÐAFRELSI
Hjá okkur fást rafskutlur í úrvali sem
koma þér á áfangastað.
Hringdu í síma
580 3900
og pantaðu tíma í ráðgjöf.
Söluráðgjafar okkar
aðstoða þig við að finna
skutlu sem hentar
þínum þörfum.
Arnarbæli, þau voru í sambúð.
Börn Sigurðar Rúnars og Guð-
borgar eru 1) Friðjón Rúnar, f. 7.8.
1968, framkvæmdastjóri, búsettur í
Kópavogi. Maki: Ísól Fanney Óm-
arsdóttir, f. 8.9. 1969, verkefnastjóri.
Börn þeirra eru Anna Borg, Sig-
urður Rúnar og Kristín Heba. Dóttir
Önnu Borgar er Lovísa Rún; 2),
Kristín, f. 7.3. 1973, fatahönnuður,
búsett í Reykjavík. Börn hennar eru
Alexandra Sigrún og Ármann Rún-
ar. Börn Alexöndru Sigrúnar eru
Emil Rúnar og Aría Rún; 3) Ármann
Rúnar, f. 25.5. 1980, bóndi og húsa-
smiður á Lyngbrekku í Dalabyggð.
Maki: Sigrún Hanna Sigurðardóttir,
f. 13.3. 1978, búfræðingur. Börn
þeirra eru Daníel Rúnar, Björgvin
Rúnar og Orri Freyr.
Systkini Sigurðar Rúnars: Þórð-
ur, f. 2.1. 1952, d. 8.2. 2011, hagfræð-
ingur og forstjóri Kauphallar Ís-
lands; Helgi Þorgils, f. 7.3. 1953,
listamaður, búsettur í Reykjavík;
Lýður Árni, f. 24.3. 1956, fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Riga í
Lettlandi, og Steinunn Kristín, f.
27.4. 1960, flugfreyja og húsmóðir í
Hafnarfirði.
Foreldrar Sigurðar Rúnars voru
hjónin Kristín Sigurðardóttir, f.
30.12. 1928, d. 19.5. 1989, húsmóðir,
og Friðjón Þórðarson, f. 5.2. 1923, d.
14.12. 2009, ráðherra dóms- og
kirkjumála, alþingismaður og sýslu-
maður í Búðardal og Stykkishólmi.
Seinni kona Friðjóns var Guðlaug
Guðmundsdóttir, f. 14.8. 1936, d. 5.5.
2011, húsmóðir í Kópavogi.
Úr frændgarði Sigurðar Rúnars Friðjónssonar
Sigurður Rúnar
Friðjónsson
Kristján Þórðarson
bóndi á Breiðabólsstað
Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Breiðabólsstað
á Fellsströnd
Þórður Kristjánsson
bóndi á Breiðabólsstað
Halldór Þorgils Þórðarson kórstjóri og organisti
og fv. bóndi á Breiðabólsstað og skólastjóri
Þorgeir Ástvaldsson
fjölmiðla- og
hljómlistarmaður
Guðbjörg Helga
Þórðardóttir
húsfreyja í Rvík
Steinunn Þorgilsdóttir
kennari í Húsmæðraskólanum á
Staðarfelli og húsfr. á Breiðabólsstað
Þorgils Friðriksson
bóndi og kennari í
Knarrarhöfn
Halldóra Sigmundsdóttir
húsfreyja í Knarrarhöfn í Hvammssveit
Þórhallur Þorgilsson kennari
og bókavörður í Rvík
Ólafur Gaukur
tónlistarmaður
Árni Sigurðsson fv. bóndi í Vindási
í Hvolhr., og leigubílstjóri í Rvík.
Lýður Árnason
bóndi í Hjallanesi
Sigríður Sigurðardóttir
húsfr. í Hjallanesi á Landi
Sigurður Lýðsson
bóndi í Selsundi
Guðrún Bárðardóttir
húsfreyja í Selsundi á Rangárvöllum
Bárður Eyjólfsson
bóndi í Norður-
Móeiðarhvolshjáleigu
Guðbjörg Jónsdóttir
húsfreyja í Norður-Móeiðarhvolshjáleigu á Rangárvöllum
Kristín Sigurðardóttir
húsfreyja í Búðardal og Stykkishólmi
Friðjón Þórðarson
sýslumaður, alþingismaður og ráðherra
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG KEM ÞESSUM TÚRKISBLÁU BAUNUM
BARA EKKI NIÐUR!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hækka í hitanum
þegar frost herðir úti.
GRETTIR, HEFUR ÞÚ HUGSAÐ UM
AÐ FERÐAST ÚT Í GEIM?
… EINS OG T.D.
TIL VENUSAR?
VENUSAR?!
Í ALVÖRU?!
ÞAR SEM MÁNUDAGAR ERU
2.802 KLUKKUSTUNDIR!!!
KANNSKI VAR ÞAÐ EKKI GÓÐ HUGMYND AÐ FÁ
FAR MEÐ ÞESSUM DREKA!
„ÉG SET ÞIG Á LISTANN FYRIR
LUNGNASKIPTI – EN ÉG MYNDI NÚ EKKI
HALDA NIÐRI Í MÉR ANDANUM.”
Davíð Hjálmar skrifar á Leir ogkallar „Þróun“: „Ég var
staddur í einu af gróðurhúsunum í
bænum þar sem nokkrar vel full-
orðnar konur voru að dreifplanta.
Á grasflötinni utan við gróðurhúsið
var hópur ungkvenna í jóga“:
Konur stunda karlafar,
kátar hoppa og sprikla,
en orðnar ga-ga gamlingjar
grenihríslur prikla.
Pétur Stefánsson yrkir á leir og
kallar „góða blöndu“:
Fullur stolts því fagna ber
sem finna má í skjölum
að móðurfólkið allt mitt er
ættað vestan úr Dölum.
Föður kynslóð fróm og góð
finnst mér mikils virði.
Að uppeldi mínu allvel stóð
ættin úr Skagafirði.
Ólafur Stefánsson svaraði:
Í frómri gleði fagna því
að færð sé ætt í letur,
þótt karlaraup sé komið í
kvæðamanninn Pétur.
Á Boðnarmiði yrkir Hallmundur
Kristinsson um ástandið í Banda-
ríkjunum:
Upp er runnin Trumpsins tíð:
„Traustum studdur hernum býð
Ameríku upp á stríð,
enda stutt að fara.
Átök finnst mér engin þörf að spara!“
Gylfi Þorkelsson er á svipuðum
nótum:
Álagamyrkri andann hjúpar
ofbeldi, víða um heim.
Rasisminn á sér rætur djúpar,
ranglæti sprettur af þeim.
Skáldkonan Júlíana Jónsdóttir
varð fyrst íslenskra kvenna til að
gefa út ljóðabók, „Stúlku“ árið
1876, og kostaði sjálf útgáfuna.
Hún fluttist vestur um haf og komu
„Hagalagðar – Ljóð“ út árið 1916. Í
Stúlku er þessi vísa:
Fara á skíðum styttir stund,
stúlku fríða spenna mund,
sigla um víði húna hund,
hesti ríða um slétta grund.
Jóhann frá Flögu kallar þessa
stöku „heimslystarvísu“ og segir að
hún sé fyrir löngu orðinn hús-
gangur.
Bjarni Björnsson á Neðra-
Vatnshorni í Húnavatnssýslu orti:
Hesti góðum hleypa um grund,
hlunna renna svíni,
syngja ljóð um silkihrund
og súpa á brennivíni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af góðum stofnum
og konum í jóga