Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Helga Guðmundsdóttir á Hjúkr-
unarheimilinu Bergi var í gær út-
nefnd heiðursborgari Bolungar-
víkurkaupstaðar. „Ég hélt að það
væri enginn heiður að verða
gamall,“ sagði hún kímin við
Morgunblaðið og lagði áherslu á að
hún væri ekki fyrir það að vera í
sviðsljósi fjölmiðla.
Helga fæddist á Blesastöðum á
Skeiðum 17. maí 1917 og er því 103
ára. Hún ólst upp í hópi sextán
systkina en tvö þeirra létust í æsku.
Ung flutti hún til Reykjavíkur, þar
sem hún kynntist verðandi eigin-
manni sínum, Bolvíkingnum Gunn-
ari Hirti Halldórssyni, sjómanni og
síðar verslunarmanni og útgerðar-
manni. Þau fluttu til Bolungarvíkur
1952 og eignuðust þrjú börn, Agnar
Halldór, bónda og fyrrverandi odd-
vita á Miklabæ í Skagafirði, Krist-
ínu, kennara í Bolungarvík og
Keflavík, og Ósk, kennara í Kópa-
vogi. Gunnar lést 2007 og Kristín
2016.
„Ég hafði alltaf mikil tengsl við
sveitina,“ segir Helga um æsku-
stöðvarnar. Í bókun bæjarstjórnar
vegna útnefningarinnar segir með-
al annars að Helga hafi alls staðar
áunnið sér traust og virðingu og
Bolvíkingar hafi strax metið þessa
hógværu og hljóðlátu konu. Hún
hafi unnið verk sín í hljóði, „en
framlag hennar og annarra kyn-
systra hennar var ómetanlegt og
verður seint fullþakkað“.
Helga er elsti íbúi Bolungar-
víkur og hugsanlega fyrsti Bolvík-
ingurinn til að ná 100 ára aldri.
Hún veiktist tvisvar af berklum og
athygli vakti þegar hún náði sér að
fullu eftir að hafa veikst af CO-
VID-19 í vetur. „Ég hef það ágætt
af gamalmenni að vera,“ segir hún.
„Ég sé illa, þekki illa fólk og get
ekkert lesið en að öðru leyti er ég
bara nokkuð sæmilega hress. Ég vil
ekkert hrós og það besta sem þú
gerir mér er að sleppa því.“
Helga Guðmundsdóttir heiðursborgari Bolungarvíkurkaupstaðar
Ljósmynd/Ágúst Atlason
Flottur hópur Með Helgu eru f.v.: Karólína Ósk Rafnsdóttir, Freyja Vilhjálmsdóttir og Kristín Líf Kristjánsdóttir.
Vill hvorki hrós né vera
í sviðsljósi fjölmiðla
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Lögreglumenn voru í miðbæ Reykja-
víkur um helgina og sektuðu öku-
menn sem óku um göngugöturnar.
Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri um-
ferðardeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, segir að átta öku-
menn hafi verið sektaðir, en sektin er
20.000 krónur og er gefin á grundvelli
þess að ekið sé gegn umferðarmerki.
Gangandi vegfarendur í miðbæn-
um hafa orðið varir við bílaumferð á
göngugötum en sumarskipulag
göngugatna tók gildi fyrir helgi og
varð lokun fyrir bílaumferð því víð-
tækari.
Sólveig Grétarsdóttir, eigandi
Verslunar Guðsteins Eyjólfssonar,
segir að umferðin um göngugöturnar
sýni að fólk sé ruglað í því hvað megi
og hvað megi ekki á Laugavegi, en
Árni telur að ökumenn keyri um þær
af einskærum vana.
Sá munur er á sumrinu í ár og því
síðasta, að í fyrra var götunni lokað
með sérstökum hliðum. Með breyt-
ingum á umferðarlögum, sem tóku
gildi um sl. áramót, er P-merktum
ökutækjum heimilt að keyra um
göngugötur og því hefur borgin
neyðst til að grípa til þess ráðs að taka
niður hliðin svo hreyfihamlaðir geti
komist um. Í stað hliðanna eru komin
upp merki sem segja að innakstur sé
bannaður og segir Árni það sjálfsagða
kröfu að ökumenn fari eftir umferð-
armerkjum.
„Þetta er ekkert flókið. Þú átt að
aka eftir þeim reglum sem löggjafinn
setur og á þessum göngugötum eru
merki sem segja að menn megi ekki
aka inn,“ segir Árni sem hvetur um
leið ökumenn til að virða merkingarn-
ar.
Hörður Ágústsson, framkvæmda-
stjóri Maclands, segir að hann hafi
heyrt frá sínum viðskiptavinum að
þeim þyki óþægilegt að bílar keyri um
götur sem gangandi vegfarendur eigi
einungis að vera á. Hann vonar þó að
sátt fari að nást um málið, hvort sem
göturnar verða opnar fyrir bílaum-
ferð eður ei. Hann vonast þó til að
göngugöturnar verði ofan á.
„Það er ekkert verra en óvissa,
sama hvort þú ert hjá lækni eða að
ganga niður Laugaveginn. Það er bú-
ið að vera garg og öskur frá báðum
hliðum og ég held að það sé kominn
tími til að þetta lægi.“
Gangandi á allan rétt
Hörður segir þá stöðu sem nú er
uppi sýna slæmt samspil ríkis og
borgar og vísar þá til þess að ríkið
hafi sett á lög sem henta göngugötum
borgarinnar afar illa.
„Þegar kerfi sem eru sett upp til að
vinna fyrir sjálf sig eiga að vinna sam-
an þá gerist svona. Aðalatriðið er að
friður komist á vegna þess að aðilar
þessa máls verða að geta fengið sér
einn kaffibolla og notið sumarsins.“
Árni segir að lögreglan verði ef-
laust aftur með eftirlit með göngugöt-
unum en geti ekki vaktað þær allan
sólarhringinn. Spurður hvort hætta
skapist af því að bílar keyri um götur
sem ætlaðar eru gangandi vegfarend-
um, segir Árni:
„Það hefur verið afskaplega hæg
umferð á Laugavegi en það er ekkert
leyndarmál að á samfélagsmiðlum sér
maður núning á milli ökumanna og
gangandi vegfarenda. Það verður
bara að segjast eins og er að gangandi
vegfarandi á göngugötu á allan rétt-
inn.“
Aka göngugötur af gömlum vana
Akstur um göngugötu kostar 20.000 kr. Umferðarmerkingar eina hindrunin Kaupmaður vonar
að sátt náist brátt um umferð gangandi og akandi Lögreglan hvetur ökumenn til að virða merkingar
Morgunblaðið/Kristján H. Johannessen
Laugavegur Bílaumferð var þétt um göngugötuna sl. laugardag og bílastæði vel nýtt. Gangandi héldu sig á gangstétt.
Matvælastofnun hefur nú enn á ný
varað við kræklingum úr Hvalfirði
þar sem DSP-þörungaeitur greind-
ist yfir viðmiðunarmörkum í þeim,
en þörungaeitrið getur valdið kvið-
verkjum, niðurgangi, ógleði og upp-
köstum. „Við höfum glímt við þetta
vandamál í Hvalfirði í mörg ár,“ seg-
ir Guðmundur Valur Stefánsson,
fagsviðsstjóri hjá MAST, við Morg-
unblaðið.
Hann segir ekki liggja fyrir hvers
vegna þessi vandi loði við fjörðinn.
„Þetta eru tækifærisþörungar sem
virðast spretta upp við einhverjar
aðstæður, en þetta eru ekki viðvar-
andi þörungar,“ útskýrir hann og
bendir á að þeir komi á sumrin ef
þeir birtist. Spurður hvort þetta sé
vandamál á öðrum stöðum á landinu,
svarar Guðmundur Valur: „Gallinn
er sá að við höfum ekki haft
fjárhagslega getu til þess að fylgjast
með. En við erum að fylgjast með í
Breiðafirði og Steingrímsfirði. Þar
hefur þetta ekki verið vandamál
nema þá einhver smáskot.“
Þá er ekki ástæða fyrir neytendur
að óttast að kræklingur sem fæst í
verslunum eða á veitingastöðum geti
valdið eitrun, að sögn Guðmundar
Vals.
Hann segir að á árum áður hafi
sést þörungar sem valdi alvarlegri
veikindum, meðal annars lömun.
„Þeir geta valdið dauða í verstu til-
fellum en það eru ekki dæmi um slíkt
á Íslandi.“ gso@mbl.is
Varað við kræk-
lingum úr Hvalfirði
Ekki vitað um ástand á landinu öllu