Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 27
SPÁIN 2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valsmenn verða Íslandsmeistarar í
knattspyrnu í karlaflokki og Breiða-
blikskonur í kvennaflokki, sam-
kvæmt spá sérfræðinga Árvakurs
fyrir Íslandsmótið 2020. Karlalið KR
og kvennalið Vals ná því ekki að verja
Íslandsmeistaratitlana frá árinu 2019
ef spárnar ganga eftir.
Alls tóku 30 sérfræðingar frá
Morgunblaðinu, mbl.is og K100 þátt í
spánni og nákvæma niðurstöðu í töl-
um má sjá í römmunum sem fylgja
þessari grein.
Valsmenn þykja afar líklegir til að
endurheimta titilinn í karlaflokki en
þeir urðu meistarar 2017 og 2018. Á
síðasta tímabili gekk hinsvegar nán-
ast allt á afturfótunum á Hlíðarenda
og liðið sem margir töldu að yrði ekki
í vandræðum með að innbyrða þriðja
meistaratitilinn í röð hafnaði í sjötta
sæti.
Valsmenn, sem nú eru komnir með
Heimi Guðjónsson við stjórnvölinn,
eru í efsta sæti hjá 14 af þeim 29 sem
spáðu um lokastöðuna í Pepsi Max-
deild karla og aðeins fjórir töldu að
þeir yrðu neðar en í þriðja sæti.
Breiðablik verður enn og aftur í 2.
sæti, þriðja árið í röð og í fjórða sinn
á sex árum, ef spáin gengur eftir.
Óskar Hrafn Þorvaldsson þreytir
frumraun sína sem þjálfari í efstu
deild og sjö sérfræðinganna spáðu
hans liði meistaratitlinum en alls 20
töldu að Blikar yrðu í einu þriggja
efstu sætanna.
KR ver ekki titilinn en verður
skammt á eftir Blikum í þriðja sæti.
Sjö spáðu þó Rúnari Kristinssyni og
hans mönnum meistaratitlinum en
ellefu töldu að meistararnir yrðu ekki
á meðal þriggja efstu og einn spáði
þeim falli.
FH verður í fjórða sæti samkvæmt
þessu en enginn spáði Hafnfirðingum
titlinum og aðeins fjórir töldu þá ná
öðru sætinu. Flestir reikna með að
Ólafur H. Kristjánsson verði með þá í
fjórða til sjötta sæti deildarinnar.
Stjarnan verður í fimmta sæti, rétt
á eftir FH. Enginn reiknar með titli í
Garðabæinn en þrír spáðu liðinu öðru
sæti. Langflestir búast við því að
Rúnar Páll Sigmundsson og Ólafur
Jóhannesson verði með liðið í fimmta
eða sjötta sæti.
Víkingar eru í sjötta sæti, rétt á
eftir Stjörnunni. Langflestir spá
þeim fimmta til sjötta sæti, einn spáði
þó að Arnar Gunnlaugsson myndi
vinna meistaratitilinn með Víkingum,
sex spáðu þeim öðru og þriðja sæti,
og aðeins einn taldi að Víkingar
myndu enda neðri hluta deildarinnar.
KA er óralangt á eftir Víkingi í 7.
sætinu og langflestir virðast reikna
með því að Akureyrarliðið með Óla
Stefán Flóventsson við stjórnvölinn
verði best í neðri helmingi deild-
arinnar. Enginn spáir KA falli.
Fylkir nær 8. sætinu naumlega
Engin titilvörn á þessu ári
Valsmenn ná meistaratitlinum af KR í karlaflokki og Blikar verða enn og aftur
í öðru sæti Breiðablik skákar Val í kvennaflokki og Selfoss í þriðja sæti
Morgunblaðið/Eggert
Meistarar? Valsmenn unnu Íslandsmót karla 2017 og
2018 og þykja sigurstranglegir á þessu ári.
samkvæmt spánni. Enginn setur
Árbæingana, sem Atli Sveinn Þór-
arinsson og Ólafur Stígsson þjálfa, of-
ar en í sjöunda sæti og fjórir spá
Fylkismönnum falli.
Skagamenn eru í 9. sæti, einu stigi
á eftir Fylki og eru með nánast sams-
konar útkomu. ÍA, undir stjórn Jó-
hannesar Karls Guðjónssonar, er
hvergi ofar en í 7. sæti og tveir spá
því að Skagamenn falli úr deildinni.
HK heldur velli í 10. sætinu ef spá-
in gengur eftir en flestir reikna með
erfiðri fallbaráttu Kópavogsliðsins
þar sem Brynjar Björn Gunnarsson
þjálfar áfram. HK er best spáð 7.
sætinu en sex telja að liðið falli úr
deildinni.
Grótta endar í 11. sæti á fyrsta ári
sínu í efstu deild og fellur en verður
sterkari nýliðinn í deildinni ef spáin
gengur eftir. Ágúst Þór Gylfason
þjálfar Gróttu sem er þó spáð 4. sæti
af einum sérfræðingi og tólf hafa trú
á að Seltirningar geti haldið sér í
deildinni.
Fjölni er spáð 12. og neðsta sætinu
en aðeins einn sérfræðingur af 29 tel-
ur að Ásmundur Arnarsson nái að
halda Grafarvogsliðinu í deildinni.
Sextán telja að Fjölnir hafni í botn-
sætinu.
Meirihluti spáir
Blikum meistaratitlinum
Breiðablik snýr við blaðinu og verð-
ur Íslandsmeistari kvenna í þriðja
sinn á sex árum undir stjórn Þor-
steins Halldórssonar, ef spá 24 sér-
fræðinga okkar gengur eftir. Fjórtán
þeirra reikna með sigri Kópavogsliðs-
ins og aðeins þrír telja að það verði
ekki annað tveggja efstu liðanna.
Valur, sem á titil að verja undir
stjórn Péturs Péturssonar, er þó að-
eins níu stigum á eftir Blikum í
spánni. Sex spá Valskonum meist-
aratitlinum og átján telja að þær
verði í öðru tveggja efstu sætanna.
Selfoss verður samkvæmt spánni
eina liðið sem fylgir Blikum og Val
eftir en Alfreð Elías Jóhannsson og
hans stúlkur eru ekki langt undan í
þriðja sætinu og þrír spá þeim meist-
aratitlinum. Enginn gerir ráð fyrir að
bikarmeistararnir verði neðar en í
fjórða sæti.
Fylkir nær fjórða sætinu eftir
jafna miðjubaráttu og einn sérfræð-
ingur spáir því að Kjartan Stef-
ánsson innbyrði meistaratitilinn með
Árbæjarliðinu. Fylkir er þó það lið
sem flestir áttu erfiðast með að stað-
setja og m.a. spáðu tveir því falli.
Stjarnan, með Kristján Guð-
mundsson við stjórnvölinn, heldur
fimmta sætinu og nánast allir telja að
liðið verði á þeim slóðum. Tveir spá
því þriðja sæti og einn áttunda sæt-
inu.
KR, undir stjórn Jóhannesar Karls
Sigursteinssonar, er í sjötta sæti og
er spáð þægilegri miðjusiglingu af
nær öllum. Tveir spá þó KR falli en
einn að Vesturbæingar nái þriðja
sætinu.
Þór/KA verður í sjöunda sæti, með
Andra Hjörvar Albertsson við stjórn-
völinn. Tveir spáðu þó Akureyrar-
liðinu þriðja sæti en flestir búast við
því í 7. til 8. sæti og tveir spá Þór/KA
falli úr deildinni.
FH heldur velli í deildinni og nær
8. sætinu ef spáin gengur eftir. Nýlið-
arnir, með Guðna Eiríksson sem
þjálfara, voru settir í 5. sætið af
tveimur en annars af flestum í eitt
þriggja neðstu sætanna og 12 af 24
spáðu FH falli.
ÍBV fellur eftir harðan slag við
FH, samkvæmt spánni. Enginn spáir
Eyjakonum, undir stjórn Andra
Ólafssonar, ofar en sjötta sæti og níu
spá þeim falli úr deildinni.
Þróttur hafnar á botninum en að-
eins þrír af 24 spá því að nýliðarnir úr
Laugardalnum, undir stjórn Niks
Chamberlains, haldi sér í deildinni.
Morgunblaðið/Hari
Meistarar? Breiðablik vann bæði deild og bikar árið
2018 en missti af báðum titlunum í fyrra.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Ég hef sjaldan verið jafn
spenntur fyrir fótboltasumrinu
og nákvæmlega núna. Tímabilið
byrjaði að rúlla eftir allt of langt
hlé um síðustu helgi þegar
Meistarakeppni karla og kvenna
fór fram. Spár eru alltaf til gam-
ans gerðar en engu að síður er
oftast eitthvað sem býr að baki
þeim. Það er sérstaklega erfitt
að spá fyrir um efstu deildirnar í
ár enda hefur maður ekki séð
meirihluta liðanna spila í nokkra
mánuði enda ekki verið spilaður
fótbolti hér af landi, af viti, síðan
í mars.
Í karlaflokki eru nokkur lið
sem ætla sér Íslandsmeistara-
titilinn eins og alltaf. Það er hins
vegar þannig í ár í fyrsta sinn í
langan tíma, að mínu mati í það
minnsta, að nokkur lið eiga al-
vöru möguleika á því að verða
meistarar. Þrjú þeirra eru í
Reykjavík og þrjú á höfuðborg-
arsvæðinu en öll eiga liðin það
sameiginlegt að væntingarnar
þar á bæ eru ansi miklar. Það
mun skipta sköpum í ár hvernig
liðin mæta til leiks og byrja mót-
ið því góð byrjun gæti ráðið úr-
slitum í ár.
Í kvennaflokki má líka búast
við mikilli spennu, líkt og í fyrra,
þar sem úrslitin réðust ekki fyrr
en í lokaumferðinni. Breiðablik
og Valur háðu þá harða baráttu
um Íslandsmeistaratitilinn en að
lokum voru það Valskonur sem
höfðu betur. Í ár gera fleiri lið til-
kall til þess að verða Íslands-
meistarar að mínu mati, eitt
þeirra er á landsbyggðinni, og
því fylgir alltaf ákveðin fegurð.
Ég hef fylgst mjög vel með ís-
lensku efstu deildunum undan-
farin 20 ár en í fyrsta sinn er ég í
talsverðum vandræðum með að
átta mig á styrkleika liðanna.
Það er erfitt að spá fyrir um úr-
slit sumarsins og íþróttaveislan
mun svo halda áfram í haust
þegar handboltinn og körfubolt-
inn byrja að rúlla líka, samhliða
fótboltanum, út október í það
minnsta. Í dag er gaman að vera
íþróttafréttamaður og það eru
bjartir tímar fram undan.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, og liðsfélagar hans í
ítalska C-deildarliðinu Padova
munu að öllum líkindum fá úr því
skorið á næstu dögum hvernig
ljúka skuli tímabilinu. Samkvæmt
fréttum Gazetta Di Reggio munu
Reggina, Monza og Vicenza fara
upp um deild og þá er eitt sæti eftir
í b-deild að ári. Sigurvegari umspils
mun fá sætið en ekki er ljóst hversu
mörg lið komast í umspilið. Padova
er í 6. sæti B-riðils C-deildar og
óljóst hvort það dugi til að komast í
umspil. Nánar á mbl.is. sport@mbl.is
Emil þarf að bíða
frekari frétta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bið Emil Hallfreðsson bíður átekta
og æfir í Hafnarfirðinum.
Ekki er sömu úrræðum beitt hjá
konum og körlum í knattspyrnu-
heiminum varðandi keppnis-
tímabilið 2019-2020. Ítalska knatt-
spyrnusambandið tilkynnti í gær að
keppni í efstu deild kvenna hefði
verið aflýst en þar lék Berglind
Björg Þorvaldsdóttir um tíma í vet-
ur með AC Mílanó. Áður hafði verið
tilkynnt að efsta deild karla myndi
hefjast 20. júní og er því það sama
uppi á teningnum og í Portúgal þar
sem liðin í efstu deild karla munu
útkljá málin en kvennadeildinni af-
lýst. Þar leikur Cloé Lacasse.
Keppni aflýst
í efstu deild
Ljósmynd/@acmilan
Ítalía Berglind Björg Þorvalds-
dóttir fagnar marki í Mílanó.
Niðurstaðan í spá Árvakurs
fyrir Pepsi Max-deild karla
2020:
1 – Valur ............................ 322
2 – Breiðablik.................... 292
3 – KR................................. 285
4 – FH................................. 256
5 – Stjarnan ....................... 246
6 – Víkingur R................... 237
7 – KA................................. 155
8 – Fylkir ........................... 126
9 – ÍA .................................. 125
10 – HK ................................ 108
11 – Grótta............................. 67
12 – Fjölnir ............................ 43
Atkvæði greiddu 29 sér-
fræðingar frá Morgunblaðinu,
mbl.is og K100. Gefin eru 12
stig fyrir efsta sæti, 11 fyrir
annað sæti o.s.frv.
Spáin 2020
Karlar
Niðurstaðan í spá Árvakurs
fyrir Pepsi Max-deild kvenna
2020:
1 – Breiðablik.................... 226
2 – Valur ............................ 215
3 – Selfoss .......................... 197
4 – Fylkir ........................... 135
5 – Stjarnan ....................... 132
6 – KR................................. 125
7 – Þór/KA ........................ 118
8 – FH................................... 70
9 – ÍBV ................................. 67
10 – Þróttur R. ...................... 35
Atkvæði greiddu 24 sér-
fræðingar frá Morgunblaðinu,
mbl.is og K100. Gefin eru 10
stig fyrir efsta sæti, 9 fyrir
annað sæti o.s.frv.
Konur
Mjólkurbikar kvenna
1. umferð:
Afturelding – HK ..................................... 3:0
Fjölnir – Augnablik.................................. 0:5
Grótta – Víkingur R ................................. 3:5
Fram – Grindavík..................................... 0:5
Í 2. umferð mætast:
13.6. ÍR – ÍA
13.6. Tindastóll – Völsungur
13.6. Fjarð/Hött/Leiknir – Sindri
14.6. Keflavík – Afturelding
14.6. Haukar – Víkingur R.
14.6. Augnablik – Grindavík
Sigurliðin fara í 16-liða úrslit ásamt lið-
um Pepsi Max-deildar kvenna.
Mjólkurbikar karla
1. umferð:
ÍH – Berserkir.......................................... 3:1
Í 2. umferð mætast:
12.6. Kórdrengir – Hamar
12.6. Ýmir – ÍR
12.6. Keflavík – Björninn
12.6. Leiknir R. – Kári
12.6. Völsungur – Þór
12.6. Hvíti riddarinn – Selfoss
13.6. Tindastóll – Samherjar
13.6. KF – Magni
13.6. KFG – Afturelding
13.6. Stokkseyri – Reynir S.
13.6. Þróttur R. – Vestri
13.6. Vængir Júpíters – Víðir
13.6. Haukar – Fram
13.6. Leiknir F. – Einherji
13.6. ÍH – GG
13.6. Grindavík – ÍBV
13.6. Þróttur V. – Víkingur Ó.
14.6. Njarðvík – Árborg
14.6. Mídas – SR
14.6. Höttur/Huginn – Fjarðabyggð
Sigurliðin fara í 32ja liða úrslit ásamt lið-
unum í Pepsi Max-deild karla.
KNATTSPYRNA