Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Ísfrost, sími 577 6666, Funahöfða 7, 110 Reykjavík
Ýmsar stærðir kælikerfa
í allar stærðir sendi- og
flutningabíla, fyrir kældar
og frystar vörur. Vottuð
kerfi fyrir lyfjaflutninga.
Við ráðleggjum þér með
stærð og gerð búnaðarins
eftir því sem hentar
aðstæðum hverju sinni.
ÖFLUG KÆLIKERFI FRÁ THERMO KING
FÆRANLEG KÆLITÆKI
Í SENDIBÍLA
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vegna kórónuveirufaraldursins urðu
síðustu vikur og mánuðir náms í
Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri og Háskólanum á Hólum með
óhefðbundnu sniði. Þó tókst að veita
verðlaunin Morgunblaðsskeifuna og
Morgunblaðshnakkinn fyrir góðan
árangur í hestamennsku og hesta-
fræðum.
„Mér finnst þetta mjög gaman. Ég
bjóst ekki við að ég fengi verðlaunin
því það eru margir góðir knapar í
bekknum. En ég nýt þess að hafa
verið jöfn öll þrjú árin,“ segir Liva
Marie Hvarregaard Nielsen frá Dan-
mörku, sem fékk Morgunblaðs-
hnakkinn fyrir að vera með hæstu
einkunnir í öllum reiðmennsku-
áföngum sl. þrjú ár.
„Það var óvænt að fá Skeifuna, ég
trúði því varla og ég vissi ekki hvern-
ig ég átti að haga mér þegar það var
tilkynnt við útskriftina,“ segir Vildís
Þrá Jónsdóttir frá Hítarnesi í
Borgarbyggð en Morgunblaðs-
skeifan kom í hennar hlut. Þar sem
ekki var hægt að halda Skeifudag
var ákveðið að veita Morgunblaðs-
skeifuna þeim nemanda búfræði-
deildar sem fékk hæstu einkunn í
lokaprófi fyrir frumtamningu og
reiðpróf á tömdum hesti.
Dæmd eftir myndbandi
Öll verkleg kennsla búfræðinem-
enda féll niður vegna ástandsins.
„Veturinn byrjaði ósköp venjulega
en svo máttum við allt í einu ekki
hitta hvert annað. Við reyndum að
vera með hrossin áfram á Miðfossum
en það gekk ekki upp. Því fóru flestir
með hrossin heim,“ segir Vildís. Hún
segir að það hafi gengið ágætlega hjá
sér að ljúka verkefnum. Þó hafi verk-
in heima fyrir stundum tafið fyrir.
Nemendur þurftu síðan að senda
inn upptökur af reiðprófinu og
dæmdu kennararnir framfarirnar út
frá því og gáfu einkunnir. „Aðalmálið
var að finna tíma í þetta, láta taka
upp fyrir sig og síðan að klippa
myndbandið í rétta lengd,“ segir
Vildís. Hún hefur áhuga á að halda
áfram í tamningum og jafnvel finna
nám tengt búskap og dýrum.
Stefnir að frekara námi
„Ég bjó með foreldrum mínum í
Reykjavík í fjögur ár þegar ég var á
barnsaldri. Fjölskyldan er öll í hesta-
mennskunni og við eigum og ræktum
íslenska hesta úti í Danmörku. Mig
langaði alltaf að koma til baka og
draumurinn var að fara í nám á
Hólum,“ segir Liva Marie. Hún lét
drauminn rætast og hefur verið hér á
landi í fimm ár, fyrst tvö ár að vinna
og síðan þrjú ár í námi í reiðmennsku
og reiðkennslu í Háskólanum á
Hólum. Þá stefnir í að hún verði
lengur, því hún hefur sótt um að
komast í meistaranám við
Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
næsta vetur. Markmiðið er að halda
áfram í hestunum. Mestan áhuga
hefur hún þó á tamningum. Segir að
það gerist svo margt á fyrstu vikum í
frumtamningar og hún kynnist hest-
inum þá vel.
Útskrifaðar eftir óvenjulegan vetur
Liva Marie Hvarregaard Nielsen fékk Morgunblaðshnakkinn fyrir árangur í reiðmennsku á Hólum
Vildís Þrá Jónsdóttir hlaut Morgunblaðsskeifuna fyrir hæstu einkunn á lokaprófi á Hvanneyri
Ljósmynd/aðsend
Hólar Liva Marie Hvarregaard Nielsen fékk verðlaunin
Morgunblaðshnakkinn við útskrift á Hólum.
Ljósmynd/aðsend
Hvanneyri Vildís Þrá Jónsdóttir var ánægð með verð-
launin Morgunblaðsskeifuna sem komu í hennar hlut.