Morgunblaðið - 09.06.2020, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Þegar Franklin D.
Roosevelt (FDR) sór
embættiseið var at-
vinnuleysi í Banda-
ríkjunum komið í 25%
í kreppunni miklu. Í
slíku árferði er erfitt
að koma hjólum at-
vinnulífsins af stað og
ef rangt er farið að
getur landið lent í
hringiðu lífs-
kjaraskerðingar og skattaánauðar
eins og mörg evruríki Miðjarðar-
hafsins hafa gert.
Viðbrögð Roosevelts við krepp-
unni voru New Deal-stefnan sem
hann hafði boðað í kosningabaráttu
sinni. Hún var að koma fólki í
vinnu við verðmætasköpun í stað
atvinnuleysis. Virkasti þátturinn í
þeirri aðgerð var virkjun fallvatna
og sala á raforku til heimilis og
iðnaðar á hagstæðu verð. Lágt
orkuverð var órjúfanlegur hluti af
hugmyndafræði forsetans. Þegar
honum var bent á að rekstur orku-
veranna mundi skila engum eða
mjög takmörkuðum hagnaði, svar-
aði hann: Tekjur ríkisins koma á
hinum endanum. Þar átti hann við
að framleiðsla og sala raforku eyk-
ur ekki verðmætasköpun að neinu
marki umfram það sem byggingu
orkuveranna nemur.
En notkun á raforku gerir það,
flestir þekkja hvað orkureikningur
heimilisbílsins lækkar þegar hann
er kominn á rafmagn, áhrifin í iðn-
aðinum eru enn sterkari, svo þessi
spá FDR rættist. Lágt orkuverð til
heimila og atvinnuvega varð snögg-
lega að atvinnuauðlind sem átti eft-
ir að reisa við efnahag Bandaríkj-
anna og gera þau að mesta iðnveldi
heims. Hvort sem litið er til bif-
reiðaframleiðslu, saumavéla á
saumastofu eða frystivéla í frysti-
húsi er grundvöllurinn orka. Flest
framleiðsla reiðir sig á orku. Það
vissi Roosevelt að kostnaðarsöm
orka er jafn slæm fyrir atvinnulífið
og óhófleg skattheimta. Það vissi
Roosevelt einnig að ríki sem lítið
framleiðir og hefur lítinn eða
sveiflubundinn iðnað mun ekki
ganga upp til lengri tíma litið. Áður
en Bandaríkin urðu virkur þátttak-
andi í stríðinu var atvinnuleysi
komið undir tíu prósentustigin,
kreppan á undanhaldi og framtíð
Bandaríkjanna sem mesta efna-
hagsveldi heimsins orðin ljós. Flest
lönd tóku upp þessa stefnu, Eng-
land með Central Elecricity Gene-
rating Board, Frakkland með
Électricité de France, Svíþjóð með
Vattenfald, Noregur með Vass-
dragsvæsenet og svo mætti lengi
telja.
Stefna Íslands í orkumálum und-
ir forystu Sjálfstæðisflokksins var
sambærileg. Raforkulögin frá 1946
meitluðu í stein upphaf þeirrar
orkustefnu sem við þekkjum og
varð burðarstoð íslensku atvinnu-
veganna en í þeim sagði m.a. að
„ríkinu einu er heimilt að reisa raf-
orkuver, sem eru stærri en 100
hestöfl“ og að „Rafmagnsveitur rík-
isins skulu hafa það verkefni að
afla almenningi og atvinnuvegum
landsins nægrar raforku á sem
hagfelldastan og ódýrastan hátt“.
Fyrrnefnd stefna varð ríkjandi hér-
lendis og hefur reynst okkur Ís-
lendingum vel, styrkt fyrirtækin í
landinu og létt landsmönnum heim-
ilisstörfin. Með stefnunni varð mjög
jöfn dreifing á náttúruauðnum og
sátt ríkti um virkjanirnar.
Stóriðjustefnan var rökrétt fram-
hald af þessu. Stórar virkjanir
framleiða ódýrari raforku en litlar,
ef markaður er nægur. Lands-
virkjun var stofnuð til að útvega
markað og virkja eins stórt og
hægt var án þess að raforka til al-
mennings hækkaði. Þetta hefur
gengið mjög vel. Það var ekki fyrr
en ríkið fór að innleiða flókið laga-
bákn Evrópusambandsins og skil-
greina orku sem almenna vöru sem
málaflokkurinn fór að ókyrrast hér-
lendis. Fyrst stuttlega upp úr alda-
mótum með setningu nýrra raf-
orkulaga til þess að innleiða fyrstu
tvo evrópsku orkupakkana en svo
með innleiðingu þriðja orkupakk-
ans sem var í raun óskiljanlegur
gjörningur þvert á mikilvægustu
hagsmuni þjóðarinnar. Innleiðing
þriðja orkupakkans var einstaklega
slæm ákvörðun sem byggðist á
ótta, örlagahyggju og und-
irlægjuhætti gagnvart skriffinnaher
Brussels. Við sjáum afleiðingarnar
í fyrirhugaðri ákvörðun sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
um að styrkja grænmetisiðnaðinn
hér á landi með sértækum rík-
isstyrkjum. Eðlilegri ráðstöfun
hefði auðvitað verið að lækka raf-
orkuverð en með slíkri almennri
aðgerð skapast efnahagshvati sem
byggist á jafnræði og grunngildum
Sjálfstæðisflokksins um að dugn-
aður eigi að fá að njóta sín.
Nú þegar hinn sveiflubundni og
ótrausti ferðamannaiðnaður mun
óhjákvæmilega dragast saman hlýt-
ur að koma til tals að snúa við
þeirri slæmu vegferð sem orku-
málin stefna í, enda getur rík-
isstyrkt atvinnuástand aldrei geng-
ið til lengdar.
Hið opinbera á enn flest orkuver
og þótt hin nýja orkustefna – sem
gengur út á að orkuframleiðsla sé
tekjustofn fyrir eigendur raforku-
vera – sé vissulega komin til fram-
kvæmda er hægt að snúa þeirri
óheillaþróun við enda mun hún
óhjákvæmilega letja verðmæta-
framleiðslu á flestum sviðum sem
skipta máli. Slíkar almennar að-
gerðir eru í öllu falli betri en hug-
myndir um ríkisstyrkt atvinnu-
ástand bundið við vonir um að hin
ótrausta atvinnugrein massatúrismi
taki við sér að nýju. Landbúnaður-
inn og iðnaðurinn þarf að fá raf-
orku á hagstæðu verði og aðstoð
ríkisins (utanríkisþjónustunnar) til
að afla nýrra markaða fyrir þá há-
gæða vöru sem þær atvinnugreinar
framleiða.
Með fallvötnin í farteskinu
Eftir Viðar
Guðjohnsen og
Jónas Elíasson
»Raforkulögin frá
1946 meitluðu í stein
upphaf þeirrar orku-
stefnu sem við þekkjum
og varð burðarstoð ís-
lensku atvinnuveganna
Viðar H.
Guðjohnsen
Viðar Guðjohnsen er lyfjafræðingur
og Jónas Elíasson er prófessor. Báðir
sitja í stjórn Félags sjálfstæðismanna
um fullveldismál.
Jónas
Elíasson
Óvæntri innrás CO-
VID-19 faraldursins
með útbreiðslugetu til
að skaða heimsbyggð-
ina virðist víðast hvar
hafa verið tekið með
vantrú. Líkt og verið
hefur með heimsstyrj-
aldirnar trúðu menn
ekki við upphaf þess-
arar ókunnu drepsótt-
ar að hún næði nokk-
urn tíma til þeirra
sjálfra. Kórónuveira þessi yrði vís-
indalega greind og kveðin niður við
upptök sín í Kína á vegum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar,
World Health Organization –
WHO. Þannig höfðu Bandaríkin og
Kína í kyrrþey átt samstarf vegna
SARS-faraldursins 2003, svína-
flensunnar 2009 og ebola-veirunnar
2013.
Drepsóttin 1918, spánska veikin,
er sögð sú mannskæðasta í sögunni
og að andlátin væru tugir milljóna.
Þetta má vera til aðvörunar þegar
því er spáð að COVID- 19 kunni að
fylgja önnur bylgja jafnvel enn ill-
vígari faraldurs. Þótt margir aðilar
vinni ötullega að því að finna bólu-
efni gegn þessum faraldri er ljóst
að samvinna þjóðanna er hvergi
nærri fullnægjandi til að mæta
öðru eins og því yfir-
standandi, hvað þá
öðru miklu meira, eins
og t.d. 1918.
Nú er því ekki tím-
inn fyrir hefðbundnar
ásakanir langrar um-
ræðu í stíl Sameinuðu
þjóðanna um hver beri
ábyrgðina. Hraði út-
breiðslu COVID-19
um gjörvalla heims-
byggðina hefur verið
slíkur að umræðan
hefur ekki verið í
rauntímatengslum við
heimsþróunina þótt hins sama gæti
ekki í þrengri hópi landa. Einkum
á þetta við um ESB, sem lýsti því
óvænt yfir að í umræðu væri 750
milljarða bein efnahagsaðstoð og
lágvaxta lán við þau aðildarríki sem
harðast eru leikin af COVID-
krísunni.
Hinir fimm föstu meðlimir
Öryggisráðs SÞ hafa, að því er best
er vitað, enn ekki tekið málið sem
fastan dagskrárlið og ekki heyrist
frá G-20, samráðsvettvangi helstu
iðnríkja, um efnahagslega endur-
reisn. Til að svo mætti vera þyrfti
til sameiginlegt átak Bandaríkj-
anna og Kína. Það er því miður síð-
ur en svo fyrir hendi. Þá þarf aðra
til, hugsanlega Evrópusambandið
og Japan.
Íslensk stjórnvöld tóku þegar í
janúar þá hárréttu ákvörðun að
hefja undirbúning viðbragða við
því, sem varð seint í febrúar, að
veiran barst hingað. Þegar til kast-
anna kom og heilbrigðiskerfið var
undir það búið að takast á við þetta
risaverkefni var upplýst að koma
yrði til almenn þátttaka, þjóðar-
átak. Þá þyrftu margar fleiri stofn-
anir að eiga þar hlut að máli en
máttarstoðirnar, almannavarnir,
sóttvarnalæknir, landlæknir og Ís-
lensk erfðagreining. Og hver voru
betur til þess fallin að leiða frá-
bæra daglega sjónvarpskynningu
en þau Víðir, Þórólfur og Alma?
Kennt er að okkur beri að elska
náungann eins og okkur sjálf. Á þá
ekki að taka þessari skelfilegu
drepsótt sem áminningu um að
ávallt ber að sýna náunganum þá
umhyggju sem til þessa hefur leitt
Ísland meðal þjóða til afbragðs
góðs árangurs?
Eftir Einar
Benediktsson » Óvæntri innrás CO-
VID-19 faraldursins
með útbreiðslugetu til
að skaða heimsbyggðina
virðist víðast hvar hafa
verið tekið með vantrú.
Einar
Benediktsson
Höfundur er fyrrverandi
sendiherra.
Áminningin
Fyrrihluta nóv-
embermánaðar 2019
hafði Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri
áhyggjur af því að
Reykjavíkurflugvöllur
gæti aldrei næstu ára-
tugina komið að gagni
sem varaflugvöllur
þegar óhjákvæmilegt
er fyrir flugmenn sem
fljúga mikið milli Evr-
ópu og Norður-
Ameríku að hætta við lendingar á
Keflavíkurflugvelli vegna versnandi
veðurskilyrða.
Þessum ósannindum borgarstjóra
vísa íslenskir flugmenn sem vita bet-
ur til föðurhúsanna. Fyrir löngu
hefði átt að vera búið að gera ítarleg-
ar samanburðarmælingar á veður-
fari í Vatnsmýri og Hvassahrauni til
að fá skýr svör við spurningunni um
hvort flugvöllur á þessum stað, norð-
an Reykjanesbrautar, verði um
ókomin ár 100% öruggur fyrir allt
innanlandsflugið og sjúkraflugið
þegar hafðar eru í huga snöggar
veðrabreytingar sem enginn sér fyr-
ir, þvert á allar veðurspár. Hingað til
hafa Dagur B. og Hjálmar Sveinsson
brugðist hinir verstu við þessum
spurningum og svarað þeim með
hroka og útúrsnúningi þegar þeir
halda til streitu kröfunni um flug-
vallarlest milli Keflavíkur og Reykja-
víkur, sem er óhugsandi án neð-
anjarðarganga, undir allt höfuð-
borgarsvæðið.
Þar er áhættan fyrir svona sam-
göngumannvirki alltof mikil, vegna
jarðskjálfta sem hafa síðustu árin
fundist á Reykjavíkursvæðinu og
Reykjanesskaganum. Áður hafa
komið fram efasemdir um að heppi-
legt sé að byggja flugvöll í Hvassa-
hrauni, sem borgarstjóri vill strax fá
í stað Reykjavíkurflugvallar án þess
að stór hluti Reykjanesbrautar verði
fyrst færður suður fyrir Hafnarfjörð.
Fyrr og síðar hafa áhyggjufullir
jarðfræðingar ítrekað andstöðu sína
gegn byggingu nýs flugvallar í
Hvassahrauni og um leið varað við
því að þetta svæði norðan Reykja-
nesbrautar sé alltof nálægt gos- og
sprungusvæðum Reykjanesskagans.
Hér senda þessir jarðfræðingar skýr
skilaboð um að flugvöllur fyrir innan-
lands- og millilandaflugið eigi ekki
heima í Hvassahrauni, sem þeir telja
ekki 100% öruggt fyrir eldgosum,
fari svo að þar opnist einn góðan veð-
urdag stórar sprungur, borgarbúum
og Suðurnesjamönum til mikillar
hrellingar.
Ég spyr: Hvað kostar það íslenska
hagkerfið marga milljarða króna ef
náttúruhamfarir á höfuðborgasvæð-
inu og Reykjanesskaganum eyði-
leggja Grindavíkurveg-
inn, Suðurstrandar-
veginn, Reykjanes-
brautina og flugvöllinn,
sem Dagur B. og
Hjálmar Sveinsson
vilja fljótlega ákveða í
Hvassahrauni, án þess
að kynna sér fyrst
hvort tjónið á þessum
samgöngumann-
virkjum geti strax stór-
skaðað íslenska skatt-
greiðendur í þessu
fámenna landi meira en
eðlilegt þykir? Hér forðast borgar-
stjóri eins og heitan eld óþægilegar
spurningar fréttamanna, sem áður
hafa spurt hvort þetta tjón verði
nógu mikið til að íslenskir skattgreið-
endur stórskaðist um ókomin ár með
ófyrirséðum afleiðingum ef ríkis-
sjóður fær skellinn.
Önnur spurning: Skiptir það and-
stæðinga Reykjavíkurflugvallar
engu máli ef þessi græðgi vinstri-
flokkanna í Reykjavík kostar vinn-
andi fjölskyldur um allt land heimilin
sín, sem yrðu fórnarlömb siðspilltra
óreiðumanna á höfuðborgarsvæðinu?
Fyrri athuganir á veðurfari í ná-
grenni við Hvassahraun benda til
þess að skilyrði til flugs á þessu
svæði séu mun lakari en í Vatnsmýri.
Það segir ekkert að Dagur B. geti
á sínum forsendum skammtað sjálf-
um sér fullt og ótakmarkað lög-
regluvald til að ákveða þennan flug-
völl norðan Reykjanesbrautar án
þess að íslenska ríkið hafi efni á því
að standa undir kostnaðinum við
þetta samgöngumannvirki. Tíma-
bært er að Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra geri hreint fyrir
sínum dyrum og skipi strax nefnd til
að flýta undirbúningi að byggingu
nýrrar flugstöðvar fyrir innanlands-
flugið í Vatnsmýri, sem gagnast öll-
um landsmönnum og verður miklu
ódýrari en borgarlínuruglið, járn-
brautarbullið og nýr flugvöllur í
Hvassahrauni.
Á þessum gæluverkefnum borg-
arstjóra og Hjálmars Sveinssonar
höfum við ekki ráð þegar það liggur
ljóst fyrir að áætlaður heildarkostn-
aður er alltof hár og íslenskir skatt-
greiðendur munu aldrei ráða við
hann. Talið er fullvíst að tekjur rík-
isins af sölu ríkislandsins í Vatnsmýri
muni aðeins nægja til að greiða fjórð-
ung af framkvæmdakostnaði við
byggingu nýs flugvallar í Hvassa-
hrauni, sem er ekki í sjónmáli næstu
30 árin.
Flugvöllur á ekki
heima í Hvassahrauni
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
» Þar er áhættan fyrir
svona samgöngu-
mannvirki alltof mikil.
Guðmundur
Karl Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.