Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 18

Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 ✝ Hulda Jóns-dóttir fæddist á Eyri við Ingólfs- fjörð 10. mars 1921. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Fossvogi 24. maí 2020 eftir skamma sjúkra- húslegu. Hulda var dóttir hjónanna Sólveigar Stefaníu Benja- mínsdóttur og Jóns Guðmunds- sonar. Systkini hennar voru Kristinn Hallur, Guðrún Jenný, Unnur Aðalheiður, Hrefna Lí- neik, Guðmunda Þorbjörg og Benjamín. Hún ólst upp á Selja- nesi við Ingólfsfjörð og fór ung að salta síld ásamt systkinum Börn þeirra eru: 1) Bragi, f. 10.5. 1947, giftur Eygló Guð- mundsdóttur. Synir þeirra eru Atli Már og Hallur Örn. 2) Sól- veig, f. 16.6. 1951, d. 30.11. 2009. Börn Sólveigar eru Magn- ús Þór, Drífa Þöll, Örn, Lucinda Hulda. 3) Margrét, f. 24.6. 1952, gift Jósé Moreira. Dætur Mar- grétar eru Stella Mjöll og Hulda Valdís.4) Magnús, f. 7.5. 1954, giftur Dagbjörtu Matt- híasdóttur. Börn Magnúsar eru Þóra Huld, Jón Bjarki og Trausti Breiðfjörð. 5) Vilborg, f. 11.1. 1957, gift Geir Zoega. Börn Trausti Veigar, Emil, Geir Fannar og Kristján Þór. 6) Jón Trausti, f. 27.1. 1965, giftur Herdísi Erlendsdóttur. Börn þeirra eru Hannibal Páll, Jódís Ósk og Hulda Ellý. Útför Huldu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9. júní 2020, klukkan 13. sínum og for- eldrum. En eins og títt var í þá daga gengu börnin ung til þeirra starfa sem þurfti til að standa undir rekstri á stóru heimili. Hulda giftist Trausta Breiðfjörð Magnússyni árið 1951 og bjuggu þau um hríð í Djúpavík uns þau fluttu að Sauðanesvita við Siglufjörð 1959. Hulda flutti ásamt eiginmanni sínum til Reykjavíkur árið 1997 þar sem þau bjuggu síðan, lengst af í Austurbrún 39. Trausti lést 7. mars árið 2019. Elskuleg móðir mín er látin. Það var stutt en snörp barátta. Mamma var á hundraðasta ald- ursári þegar hún lést. Ég er svo heppin að hafa getað eytt með henni mörgum góðum stundum undanfarið. Við áttum góð og gleðirík jól og áramót saman, fórum í skemmtilegt ferðalag á sl. ári norður á Strandir, alla leið á æskuslóðir hennar Seljanes, ferð sem verður alltaf geymd í minningunni sem fjársjóður. Þá létum við eftir okkur að gista á hótelum og njóta. Síðustu nótt- ina sem hún lifði svaf ég í her- berginu hjá henni á líknardeild Landspítalans og var hjá henni þegar hún skildi við. Við höfðum náð að tala aðeins saman um ým- islegt sem hún vildi að farið yrði eftir að henni genginni. Við ger- um okkar besta til að verða við því. Mamma var æðrulaus og ró- leg þegar hún vissi í hvað stefndi. Á því var þó enginn hissa því þannig var mamma alltaf, ró- leg og yfirveguð hvað sem á dundi. Þegar pabbi veiktist fyrir tveimur árum var það henni þung raun að geta ekki séð um hann heima en hann var of veik- ur til þess og hefði það verið of mikil ábyrgð fyrir 98 ára gamla konu að takast á við, en mamma heimsótti hann nær daglega á Hrafnistu þar sem hann dvaldi til dauðadags 7. mars 2019. Elskulegri foreldra hefði mað- ur ekki getað hugsað sér, þau voru ólík en samtaka. Mikið sakna ég mömmu, samtala okkar daglega í síma og samveru- stunda. Samræðna á kvöldin þegar við vorum saman og vor- um háttaðar, þá streymdu fram sögur úr sveitinni hennar og ým- islegt rifjaðist upp frá Sauðanes- árunum en þar bjuggu mamma og pabbi lengst af. Mamma fylgdist vel með öllu, börnunum sínum og barnabörnunum, var vel inni í þjóðmálunum, hún elsk- aði alls konar tónlist, ekki síst popp og rokk. Hún las mikið meðan hún hafði sjón til og mikið kunni hún af ljóðum. Hún orti líka sjálf en vildi sem minnst láta á því bera. Þakklát verð ég æv- inlega fyrir að hafa átt þessa stórkostlegu konu sem móður. Mamma var minn besti vinur, við gátum talað saman um allt og mikið gátum við hlegið saman ekki síst að sjálfum okkur. Mamma átti stóran þátt í uppeldi tveggja barnabarna sinna, þeirra Magnúsar Þórs og Trausta Veig- ars, það má segja að hún hafi alltaf litið á þá sem fóstursyni sína. Einnig komu önnur barna- börn og aðrir krakkar úr ættinni, mikið á Sauðanes til lengri eða skemmri tíma og alltaf var faðm- urinn hennar ömmu opin og hún talaði alltaf við börnin eins og fullorðið fólk. Ég veit að barna- börnin hennar minnast hennar með miklu þakkæti. Mamma verður lögð til hinstu hvílu í Garðakirkjugarði við hlið Sollu systur sem lést árið 2009. Það er góð tilhugsun að þær hvíli hlið við hlið enda voru þær mjög nánar mæðgur. Góður guð blessi og varðveiti minningu mömmu, Huldu Jóns- dóttur. Hún var síðasta systkinið úr systkinahópi Jóns og Sólveig- ar frá Seljanesi. Við þökkum þér ástúð alla, indæl minning lifir kær. Nú mátt þú vina höfði halla, við herrans brjóst er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín við sendum kveðju upp til þín. Ljóðið er eftir Hrefnu Líneik Jónsdóttur, sem var systir Huldu. Hrefna lést 23. febrúar 2020. Margrét Traustadóttir. Mamma bað um að ekki yrðu skrifaðar um hana innantómar lofræður með uppskrúfuðu orða- gjálfri. Ég lofaði fyrir mitt leyti að gera það ekki en sagði þó að hún ætti að njóta sannmælis. Það er nefnilega ekki hægt að skrifa um þessa konu án þess að lofa hana í hástert fyrir sína ljúfu lund og ósérhlífni. Umburðar- lyndi var henni í blóð borið og hún átti auðvelt með að spjalla um heima og geima við fólkið sitt þegar við kíktum í heimsókn. Oft barst þá talið að æskustöðvunum á Seljanesi þar sem hún rifjaði upp minningar unglingsáranna með glampa í augum. Síðustu árin sem pabbi lifði voru henni erfið, enda átti faðir minn við vanheilsu að stríða sem hafði áhrif á hans persónuleika. Hún bar þann harm í hljóði og hefur líklega talið óviðeigandi að tala um þetta við aðra. Þannig var mamma; hún bar ekki vanda- mál sín á torg, ekki einu sinni fyrir sína nánustu. Það var henni því erfitt að þurfa að játa að hún væri ekki fær um að hugsa um pabba síðustu mánuðina sem hann lifði þótt hún væri orðin 98 ára gömul og þarfnaðist sjálf að- stoðar. Hún vildi ekki íþyngja öðrum, en var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd hverjum sem til hennar leituðu. Ég gat ekki heimsótt mömmu á Landspítalann fyrr en viku eft- ir að hún var lögð inn og daginn eftir að henni var tilkynnt að ekkert væri hægt að gera henni til lækninga. Við áttum einlægan tíma saman þann dag og hinn næsta þótt hún væri mjög veik og gæti hvorki borðað né drukk- ið. Hún sagði mér að hún væri stöðugt þyrst en héldi engu niðri. Hún sagði mér draum sem hana hafði dreymt þegar hún blundaði milli ógleðikastanna. Draumurinn var á þá leið að hún sagðist hafa verið í útreiðartúr í alveg dásamlegu veðri. Það var sól og hiti, hestarnir sveittir og hún mjög þyrst. „Þá komum við að læk, tærum læk sem rann milli grasivaxinna bakka. Ég henti mér af baki, lagðist á lækj- arbakkann og drakk. Og þvílíkt vatn,“ sagði hún. „Það var svo kalt og gott að ég drakk og drakk. Svo fóru hestarnir að drekka með mér.“ Þegar hún sagði mér þennan draum ljómaði hún í framan eins og ung stúlka og hugur minn hvarflaði að Seljanesi, æsku- stöðvunum sem voru henni svo kærar. Þangað komst hún sl. sumar ásamt Margréti systur minni og okkur hjónunum, þar sem okkur var tekið opnum örm- um. Hún kom inn í gamla æsku- heimilið sitt og ég hafði ekki séð þvílíkan glampa í augum hennar eins og þegar hún strauk hend- inni yfir eldhúsborðið sem hafði beðið þessarar heimsóknar í svo mörg ár. Þessar stundir geymi ég sem dýrmætan fjársjóð sem ég tek með mér hvert sem ég fer. Henni var ljóst að einungis væru nokkrir dagar til stefnu og tók því af einstöku æðruleysi eins og henni var svo lagið. Hún bað mig fyrir kveðjur til allra ættingja og vina sem ekki áttu kost á að hitta hana þessa síðustu daga sem hún lifði. Faðir minn lést fyrir rúmu ári og bjó mamma ein í þeirra íbúð uns hún lagðist inn á spítala hinn 8. maí sl. Hún átti ekki aftur- kvæmt og lést hinn 24. maí sl. rúmlega 99 ára að aldri. Hún var mikil hetja hún móðir mín og minning hennar er mér afar kær. Magnús H. Traustason. Þegar ég minnist mömmu minnar, Huldu Jónsdóttir, fyllist hugurinn strax af fallegum og ljúfum minningum. Ég varð sam- tíða foreldrum mínum frá fæð- ingu og næstu 32 ár þar á eftir, uns þau fluttu suður til Reykja- víkur. Sterkast í minningunni er hve mamma var alltaf yfirveguð. Mamma hafði einstaklega ljúfa og þægilega nærveru og talaði aldrei niður til fólks, né okkar krakkanna. Ró hennar og yfir- vegun var aðdáunarverð auk skipulagsgáfu sem henni var í blóð borin. Hún var einstök hús- móðir og snillingur í allri mat- argerð. Alltaf var því líka nóg af heimabökuðu brauði og bakkelsi af öllum gerðum. Nokkrar upp- skriftir bjó mamma til sjálf að gómsætu bakkelsi sem hvergi finnast annars staðar en hjá þeim sem hafa náð að skrifa þær upp. Mikið mæddi á þessum eig- inleikum því jafnan var margt í heimili. Börnin mörg og líka voru oft vinnuflokkar frá Vita- og hafnamálum á Sauðanesi svo vik- um skipti er foreldrar mínir voru hér. Hafa dagarnir þá verið lang- ir og annasamir en aldrei man ég eftir að mamma kvartaði þótt oft hafi hún trúlega verið þreytt. Mamma flíkaði ekki tilfinning- um sínum en var þó mjög næm á líðan annarra. Hún unni tónlist og fylgdist vel með henni. Þegar ég horfi til baka á hina löngu ævi móður minnar get ég ekki annað en verið þakklátur. Þakklátur fyrir það hversu heilsuhraust hún var alla ævi og átti gott líf. Þakklátur fyrir uppeldið sem mamma veitti mér og veit að ég hef og mun njóta góðs af á minni lífsleið. Uppeldi sem gekk út á að vera sanngjarn, heiðarlegur og virða skoðanir fólks þótt þær færu ekki endilega alltaf saman við mínar eigin. Það að geta verið heima í eigin húsnæði allt fram á lokaáfanga lífsleiðarinnar er líka þakkarvert og ekki sjálfgefið að vera fær um á hennar aldri. Það gat móðir mín og hún vildi aldrei fara á elli- heimili. Því er það enn eitt atrið- ið sem þakka ber að sjúkralegan var ekki lengri en tvær vikur nú á lokaáfanganum. Þakklátur er ég líka fyrir hve mamma var allt- af skýr í hugsun og stálminnug. Slíkt er ekki sjálfgefið hjá fólki sem komið er yfir 99 ára aldur. Gaman var að ræða við hana um gamla daga og fá sögur af æsku- árunum norður í Árneshreppi. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu hafði ekki mátt heimsækja hana fyrstu dagana á sjúkrahúsinu og var hún því ein þegar hún fékk þær fréttir frá lækni að ekkert væri hægt að gera til bjargar í hennar veikindum. Er við og fleiri ættmenni gátum svo hitt hana var hún mjög veik en á sama tíma svo æðrulaus. Hafði sagt lækninum að hún vildi eng- ar meðferðir en vildi samt bera það undir okkur, börnin sín. Ég er þakklátur fyrir að hafa getað verið hjá mömmu á hennar erfiða síðasta áfanga lífsleiðar- innar og talað við hana. Að henni er mikill og stór missir. Kona sem var með eitt mesta jafnaðar- geð sem ég veit um, með raunsæi og yfirvegun sem var aðdáunar- verð. Þakklæti, sorg og eftirsjá eru meðal þeirra hugsana sem vaka og sofa í huga mínum nú og eiga eftir að gera um ókomna tíð. Takk fyrir allt og allt elsku mamma mín. Þinn Jón Trausti (Jonni). 24. maí sl. lést Hulda Jóns- dóttir 99 ára. Hulda var gift Trausta Breiðfjörð Magnússyni, f. 13. ágúst 1918, d. 7. mars 2019. Trausti og Hulda hófu búskap í Djúpuvík á Ströndum árið 1950. Trausti kaupir 33 m2 hús í Skjaldarbjarnavík og flytur það á báti til Djúpavíkur og reisir þar. Búinn að fá leyfi hjá Bygg- ingarnefnd ríkisins fyrir sementi í grunn. Þar fjölgar í fjölskyld- unni og þegar þau flytja þaðan 1959 eru fimm í barnahópnum, stúlkur í vist og oft gestkvæmt. Rafmagn kom frá verksmiðj- unni; þegar ekki var verið að bræða var slökkt á því kl. 10 á kvöldin en blikkað áður til að vara við. Belju höfðu þau alla tíð fyrir mjólk handa fjölskyldunni, kindur fyrir kjöt og fiskur í sjón- um. Trausti var skilvindumaður í verksmiðjunni þegar hún var í gangi en stundaði sjómennsku annars. Síldin breytti hegðun og hvarf fyrir norðan, Aliansi, sem átti verksmiðjuna, hafði fiskverkun annars staðar og vildi ekki byrja frystingu í Djúpuvík. Trausti lýsti vonbrigðunum þegar þeir voru búnir að útbúa frystiklefa í verksmiðjuhúsinu, skeyti kom að sunnan að búið væri að ákveða að hætta framkvæmdum. Það fjaraði undan byggðinni, fjölskyldur yfirgáfu hús sín og fluttu burt. Engir styrkir eða op- inber aðstoð vegna ytri áfalla. Árið 1959 yfirgaf fjölskyldan hús, og vitaskip flutti þau á Sauðanes þar sem Trausti gerð- ist vitavörður. Hvorki bryggja né vegur og híft upp í sliska sams konar þeim sem stendur enn við Hornbjarg. Einangrun þar til Strákagöngin komu 1968 að kom vegasamband. Þau höfðu undirbúið ellidag- ana og samið við yngsta soninn um að vera í horninu hjá honum gegn því að hann fengi bústofn þeirra og tæki. Tíðarandinn orð- inn annar en hjá kynslóðinni á undan og það gekk ekki. Flytja þau þá til Reykjavíkur 1997. Byrja á leigumarkaði í raðhúsi við Hrafnistu í Reykjavík. Trausti fór í ökutíma til að læra á umferðina í Reykjavík, hún var ólík því sem hann átti að venjast. Hann keyrði ekki á annatíma, villtist nokkrum sinnum en átt- aði sig alltaf hvar hann var þegar hann sá sjóinn. Raðhúsið er sett á sölu árið 2000. Hvað er þá til ráða, þau 80 ára? Æðrulaus og ákveðin í að halda reisn og sjálfstæði finna þau íbúð sem þau langar í en hafa enga sjóði til að setja í íbúð- arkaup. Þau biðja mig að skoða hvaða möguleika þau hafa á að eignast þá íbúð við Austurbrún sem þau höfðu séð auglýsta í ná- grenni við Hrafnistu. Jarðarfarasjóður og ein Lada- bifreið voru eignirnar. Ég sæi sjálfan mig 80 ára byrja frá grunni að koma þaki yfir höfuðið. Þau kaupa íbúðina, afborganir og rekstur var ódýrari en leiga. Þau voru stolt af að eiga íbúð. Erfitt var að útskýra verð- trygginguna, að það skipti ekki máli hvort tekið sé 20 eða 40 ára lán því þau verði væntanlega komin undir græna torfu áður en lánin klárist. Þau völdu 40 ár og sögðu: Það verður þá minna að rífast um þegar við förum! Þau náðu bæði að búa í eigin húsnæði 99 ára gömul, Trausti varð 100 ára og langaði að end- urnýja hjúskaparheit sitt við Huldu sína á afmælinu en ekki varð af því. Við Vilborg höfum átt margar ánægjustundir með þeim hjón- um; skólagarðarnir með sonum okkar, verslunarferðir í Costco og IKEA, bryggjurúnta svo eitt- hvað sé nefnt. Þau voru mjög ólík að eðlisfari en stóðu saman og buguðust aldrei þótt ytri að- stæður kollvörpuðu þeirra áformum. Nokkuð sem gagnast okkur í dag. Yngri kynslóðir geta lært margt af þeim. Geir Þórarinn Zoega. Elsku Hulda tengdamamma. Það er heiður að hafa fengið að kynnast jafn yndislegri konu og þér. Sár er söknuður. Þú varst svo minnug og það var svo gam- an að spjalla við þig um gamla daga. Þú varst stórkostleg kona. Heiðarleg, myndarleg og upp- finningasöm. Gerðir uppskriftir að til dæmis góðsbrauði og glass- úrbrauði sem voru og eru afar vinsæl í fjölskyldunni. Þegar þú bakaðir þá komu úr því listaverk, randalínurnar voru svo flottar hjá þér eins og allur annar bakstur. Einstök kona, þú áttir engan þinn líka. Þú varst mikið fyrir tónlist og hlustaðir á alls konar tónlist. Þú horfðir oft á hljómleika með okkur Jonna á Sauðanesi. Þú kunnir á gítar og það var svo gaman að sjá og heyra þig spila. Við áttum mörg skemmtileg jólin og áramótin saman og þá var spiluð vist og manni. Við spiluðum saman og beittum brögðum til að vinna karlana. Í gamla daga var mikill samgangur hjá foreldrum mín- um og Huldu og Trausta. Allir í minni fjölskyldu hafa alltaf haft svo mikið álit á þessari mætu konu. Hulda var með ótrúlegt jafnaðargeð, sanngjörn og góð kona. Ég vildi óska að það væru fleiri líkir þér þó ekki væri nema að litlu leyti. Mun ég minnast þín Hulda mín með gleði í hjarta. Man ég þá tíð sem við áttum saman, hlógum dátt. Ég veit að þú munt fá að njóta ljóssins bjarta. Þitt hreina og hlýja hjarta vildi öllum þeim sem lifðu sátt. Eilíf kveðja, Herdís. Nú er komið að kveðjustund. Tengdamóðir mín Hulda Jóns- dóttir hefur kvatt þennan heim. Mikið verður hennar sárt saknað. Hún var einstök kona. Það sem ég tók strax eftir við fyrstu kynni var hennar einstaka ró og æðruleysi. Hún tók öllu með sama jafnaðargeðinu, jafnt áföllum sem gleðifréttum. Það var fátt sem gat haggað henni Huldu. Þessar síðustu vikur hafa minningar um okkar mörgu góðu stundir brotist fram. Oft sátum við á pallinum hennar innan um blómin sem voru henni svo kær. Hún hafði mikið dálæti á blóm- um og þau döfnuðu líka undravel í hennar umsjá. Það voru líka góðar stundir þegar við tókum eldhússkápana í gegn fyrir hver jól. Þá tókum við fram hvern hlutinn eftir annan, bolla eða rjómakönnu, þvoðum og þurrk- uðum og með fylgdi saga; þessa rjómakönnu keypti hún á ferða- lagi eða þennan bolla fékk hún að gjöf frá góðri vinkonu eða systur. Sögurnar voru margar og auðséð að hlýja og kærleikur fylgdi minningunum. Síðasta sumar lagði hún í langferð á Strandirnar með dótt- ur sinni, Möggu. Langaði hana að sjá æskustöðvarnar í síðasta sinn. Við hjónin ákváðum að slást í för með þeim mæðgum, og fara með út á Seljanes, þar sem hún sleit barnsskónum. Það er skemmst frá því að segja að þetta var ótrúleg og ógleyman- leg ferð í alla staði. Hún komst á æskuheimilið, upp á loft fór hún, snarbrattan stigann, á nítugasta og áttunda aldursári. Hún strauk gömlu rúmin, þilin, eldhúsbekk- ina og skápana og andlit hennar ljómaði. Hún lét ekki þar við sitja, heldur vildi hún komast í nátthagann þar sem hún hafði svo oft í barnæsku setið yfir án- um. Yfir móa, mýrar og kletta- drög var að fara, en með ein- beitnina og sterkan vilja að vopni komst hún þessa leið. Hún gat litið gamla nátthagann einu sinni enn. Ég kveð þig, elsku Hulda, með söknuð í hjarta. Megi himnarnir taka vel á móti þér. Dagbjört Matthíasdóttir. Elsku amma var einstök á svo margan hátt. Lítillát, lífsreynd, róleg, réttsýn, umburðarlynd, eiginkona, systir, mamma, amma, langamma og langa- langamma. Einstök. Minningarnar frá Sauðanesi eru margar, ljúfar og ómetanleg- ar. Silungurinn, nýbakaða bakk- elsið, baulið í vitanum, ábryst- irnar, fjósið, túnin, heyskapurinn. Amma og afi. Amma var alltaf tilbúin að hafa okkur, barnabörnin, í kring- um sig og okkur var velkomið að fylgjast með, taka þátt eða bara skottast í kringum hana eins og hentaði okkur hverju sinni. Við fengum að vera við sjálf og lærð- um margt sem við búum að enn þann dag í dag. Við söknum ömmu og þökkum fyrir að hafa haft hana lengi hjá okkur og í leiðinni hugsum við Hulda Jónsdóttir Eiginmaður minn, EGGERT VIGFÚSSON, fyrrverandi slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, Austurvegi 19, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 2. júní. Útförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Hulda Vilhjálmsdóttir Guðrún, Helgi, Vilhjálmur og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.