Morgunblaðið - 09.06.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 09.06.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 „ÓKEI, GOTT OG VEL – ÞETTA VAR BARA ÍMYNDUN Í ÞÉR. ÁNÆGÐUR?” „ÞETTA VAR BÍLL FYRRVERANDI KÆRASTANS MÍNS!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hámhorfa saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „og kisi stökk …” „OG NÁÐI LOKSINS RAUÐA DEPLINUM!” ÞESSI DEPILL ER ILLUR „en þá hvarf hann aftur” ÞAÐ ER SMÁ EFTIR AF DÓTI ÚR SJÚKRAKASSANUM., EN EKKERT ÞESS VIRÐI AÐ TAKA MEÐ … ÁÁÁI! ÞAÐ ER SYND AÐ SÓA! útgáfunnar Skruddu. Undanfarin ár hefur Þór starfað við ráðgjöf, ferðast talsvert og var nú í maí að ljúka dip- lómanámi í þýðingafræði við Háskóla Íslands. „Ferðaþjónustan var áhugaverð þó uppgangurinn þar hafi verið of hrað- ur og umfangið á landsvísu er orðið allt of mikið. Náði sjálfur líka að ferðast talsvert og var meðal annars á þriggja vikna ferðalagi í Suður- Afríku 2017 og í sex vikna ferðalagi í gríska Eyjahafinu haustið 2018. Grikkland er alveg dásamlegt land. Allt í allt hef ég líklega komið til um 55 landa. Helstu áhugamálin eru silungsveiði og ég veit fátt betra en að rölta dag- langt með flugustöng meðfram góðri á í fallegri náttúru. Við slíkar að- stæður hættir veiðin sjálf að skipta máli og veiddur fiskur er bara bónus og veiðitúr með góðum félögum er eitt mesta tilhlökkunarefni hvers árs. Eins hef ég áhuga á ljósmyndun og hef tekið kynstrin öll af myndum um allan heim og af öllum fjandanum. Svo hef ég verið þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera með sterka réttlæt- iskennd og verið aktívisti frá sextán ára aldri, fyrst í kjarabaráttu hjá Sjó- mannafélagi Reykjavíkur, síðar í mannréttindabaráttu á vettvangi Amnesty International gegn dauða- refsingum í Bandaríkjunum og svo síðast í baráttu fyrir auknu lýðræði og nýrri stjórnarskrá hér á landi.“ Fjölskylda Þór kvæntist Sólveigu Jóhann- esdóttur hjúkrunarfræðingi, f. 26.9. 1962, árið 1998. Foreldrar Sólveigar eru Elín Benediktsdóttir, fyrrverandi sendiráðsfulltrúi, f. 19.6. 1937 og Jó- hannes E. Vestdal, kennari, f. 19.3. 1937. Þór og Sólveig skildu árið 2008. Dóttir Þórs og Sólveigar er Hildi- gunnur, f. 3.12. 1999, nemi við MH. Systir Þórs er Anna Beverlee Saari, f. 24.7. 1954, kennari, búsett í Reykjavík. Foreldrar Þórs voru Rannveig Steingrímsdóttir, f. 25.10. 1925, d. 2.7. 1994, tryggingafulltrúi og Lee Elis Roy Saari, f. 25.5. 1916, d. 27.7. 1969, flugmálafulltrúi. Þór Saari Elias Saari rakari í Lahti, tekinn af lífi í finnsku borgarastyrjöldinni, f. í Miehikkälä Anna Elisabet Saari húsfreyja í Lahti og á Miami Lee Elis Roy Saari stöðvarstjóri, bjó í Forssa, New York, á Íslandi og Miami Johanna Syrén bjó í Honkilahti, f. í Turku Vilhelm Kustaanpoika Syrén bjó í Honkilahti, Finnlandi, f. í Honkilahti Margrét Steingrímsdóttir skrifstofumaður í Rvík Karl Tryggvason læknir í Svíþjóð Tryggvi Steingrímsson bryti í Reykjavík Árni Gunnarsson hagfræðingur í Rvík Þóranna Ásgrímsdóttir húsfreyja í Heiðarseli, f. í Múlakoti á Síðu Vigfús Árnason bóndi í Heiðarseli á Síðu, f. á Skálmarbæ í Álftaveri Vilborg Vigfúsdóttir húsfreyja í Reykjavík Steingrímur Magnússon sjómaður og fiskmatsm. í Rvík Rannveig Brynjólfsdóttir húsfr. í Rvík, f. í Norðurgarði í Eyjum Magnús Pálsson sjómaður í Rvík, f. í Ártúni á Kjalarnesi Úr frændgarði Þórs Saari Rannveig Steingrímsdóttir tryggingafulltrúi, bjó í Reykjavík og á Miami Þetta er vel og létt kveðið þóttGuðmundur Arnfinnsson kalli „Ættargrobb“: Hjallaættin, ættin mín, ýmsa kosti hefur, upp til hópa eðal fín, af sér mikið gefur. Glöð í lund og létt á brá, lífseig öðrum fremur hávelborin Hjöllum frá Hjallaættin kemur. Þórðarnir í þeirri ætt þykja smiðir góðir, og fleiri hafa frama gætt fornar ættarslóðir. Konur elda krásirnar, krökkunum þær smala fóthvatar og fjölvísar, feikna mikið tala, Hjallaætt, sem elskum vér, er svo margt vel gefið, á henni þó sómir sér sérstaklega nefið. Hjallaættin heiðursverð, hrausta, gæfuríka, hún er vel af guði gerð, gott er að eiga slíka. Næsta vísa á Boðnarmiði er eftir Valdimar Gunnarsson og er raunar limra: Allt sem ég yrki er gull, hver einasta vísa er full af tærustu snilld, sem má túlka að vild en breytist að lokum í bull. Hallmundur Kristinsson svaraði skemmtilega: Að vísu þína við ég kunni varla undrar þig; eins og beint úr eigin munni – ef hún væri um mig! Gylfi Þorkelsson: Mikið er nú mannlíf gott í mínum ranni. Þar býr feikna góður granni og gift er konan úrvalsmanni. Pétur Stefánsson lætur þessa stöku við sólskinsmynd af tveimur börnum og segir: „Alltaf gaman að passa barnabörnin“: Auðnusólin á mig skín og eyðir dagsins streði. Litlu barnabörnin mín brosmild auka gleði og lyfta Péturs fúla gamla geði. Kristján H. Theodórsson yrkir: Ég forðum, þá bóndi á Brúnum, í bráðræði fargaði kúnum. Aldrei ég hest, en hálfvegis prest, hafði, og helling af túnum Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Hjallaætt og tærri snilld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.