Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 28

Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 Við erum sérfræðingar í malbikun Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Humarsúpa nefnist heimildarmynd sem framleidd er af Axfilms ehf. og spænsku fyrirtækjunum SUICA- films og REC Grabaketa Estudioa. Myndin var tekin upp með hléum frá nóvember 2017 fram í maí á þessu ári og er umfjöllunarefni hennar for- vitnilegt, mannlífið á veitingahúsinu Bryggjunni í Grindavík. Spænskir höf- undar mynd- arinnar, Pepe Andreu og Rafa Molés hjá SUICA films, eru með þekktustu heimildarmynda- smiðum Spánar nú um stundir en þeir komu fyrst til Íslands árið 2006, heilluðust af landi og þjóð og þá sérstaklega mannlífinu á Bryggjunni og sneru aftur 11 árum síðar. Hafði þá mikil breyting orðið á íslensku samfélagi með stórauknum straumi ferða- manna. Þær breytingar urðu kveikjan að því að gerð var heimildarmynd um Bryggjuna og mannlífið þar. Skemmtileg og góð samvinna Ólafur Rögnvaldsson hjá Axfilms sér um íslenskan hluta framleiðsl- unnar og kom hann einnig að hand- ritsgerð og annaðist hluta kvik- myndatöku myndarinnar. „Þetta er búið að vera næstum því þriggja ára ferli, frá því byrjað var að taka fyrst,“ segir Ólafur og að spænsku leikstjórarnir hafi komið fjórum sinnum til landsins í tökur. „Þess á milli var ég að skjóta fyrir þá,“ út- skýrir hann. En hvernig kynntist hann þessum spænsku leikstjórum? „Það er nú dálítið sérstakt frá því að segja. Ég kynntist þeim þannig að ég fór í húsaskipti til Valencia og það hittist þannig á að annar þeirra, Rafa, svar- aði okkar auglýsingu og þannig hóf- ust þessi kynni,“ svarar Ólafur. „Það kom í ljós að þá hafði lengi langað til að koma til Íslands til að gera mynd þannig að þetta var bara mjög skemmtileg tilviljun. Síðan hlóð þetta utan á sig og úr þessu varð mjög skemmtileg og góð samvinna sem er vonandi ekki lokið. Við erum með fleiri pælingar í gangi.“ Hrifust af Bryggjunni Ólafur segir þá Pepe og Rafa hafa hrifist mjög af Bryggjunni og fyrri eigendur staðarins, bræðurnir Að- algeir og Kristinn Jóhannssynir eða Alli og Krilli, eru aðalpersónur myndarinnar. Nýverið tóku nýir eig- endur við rekstrinum. Bræðurnir voru á árum áður með netagerð en þegar frystihúsið í bæn- um brann minnkaði eftirspurnin eft- ir netum og ákváðu þeir þá að opna kaffihús og hafa sem aukabúgrein. „Vinir þeirra fóru að koma í kaffi og smám saman varð þetta líka menn- ingarsetur því þeir voru m.a. með tónleika, upplestrakvöld og menn hafa komið til að segja sögur af öðr- um Grindvíkingum. Fleiri reglulegir viðburðir hafa verið þarna í gegnum tíðina,“ útskýrir Ólafur. „Bryggjan varð mjög þekkt fyrir humarsúpuna og þennan anda sem þar var og er með rosalega góða ein- kunn á TripAdvisor. Því fóru að streyma þangað sífellt fleiri ferða- menn sem fannst þetta ekta íslensk- ur staður og hann varð þekktur á TripAdvisor.“ Seldu staðinn Myndin átti upphaflega að fjalla um þessa stemningu og litríkt mann- lífið á Bryggjunni en Ólafur og Spánverjarnir fréttu fljótlega af því að fjárfestar úr Reykjavík vildu kaupa staðinn og drifu sig því í tökur þótt ekki væri búið að fjármagna myndina að fullu. Bræðurnir létu á endanum tilleiðast, seldu staðinn og nú er búið að breyta hluta af neta- gerðarverkstæðinu, sem var á efri hæð hússins, í stórt veitingahús. Ennþá koma þó gömlu karlarnir í kaffi og sitja og spjalla saman á neðri hæðinni, líkt og áður. Humarsúpa hófst með húsaskiptum  Mannlífið á veitingahúsinu Bryggjunni í Grindavík er viðfangsefni spænsk-íslenskrar heimildar- myndar  „Skemmtileg og góð samvinna sem er vonandi ekki lokið,“ segir íslenskur framleiðandi Á Bryggjunni Ester Bíbí Ásgeirsdóttir hljóðupptökumaður, Laura Hueso aðstoðarmaður, Pepe Andreu leikstjóri, José Luis Gonzalez myndatökumaður og Rafa Moles leikstjóri við tökur á heimildarmyndinni á Bryggjunni. Leiði José Luis Gonzalez myndatökumaður og leikstjórarnir Pepe Andreu og Rafa Moles með rit- höfundinum Guðbergi Bergssyni í kirkjugarðinum í Grindavík við leiði vinar Guðbergs. Með súpu Aðalgeir Jóhannsson, netgagerðarmaður og fyrrverandi eigandi Bryggjunnar. Aðalgeir átti Bryggjuna með bróður sínum, Kristni, en þeir seldu staðinn. Ólafur Rögnvaldsson Enska dagblaðið Guardian greinir frá því að mögulega komi í ljós í næstu kvikmynd um James Bond, No Time To Die, að hann eigi barn. Mun þetta koma fram í skjölum tengdum tökum á myndinni sem einhverra hluta vegna eru til sölu á uppboðsvefnum eBay. Segir sagan að í einu atriði komi við sögu fimm ára stúlka að nafni Mathilde en sag- an hefst einmitt fimm árum eftir að Spectre, síðustu Bond-myndinni, lauk. Hefur Bond nú sest í helgan stein með unnustu sinni og þykjast glöggir sjá að hann sé orðinn faðir, út frá þessum upplýsingum. Bond kemst auðvitað ekki upp með að hætta njósnastörfum, eins og nærri má geta, og hefur alls engan tíma til að deyja, eins og kemur fram í titli myndarinnar. Á James Bond fimm ára stúlku? Lokamyndin Daniel Craig verður í hlut- verki Bonds í síðasta sinn í No Time To Die sem frumsýnd verður í lok nóvember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.